Vikan - 30.10.1986, Page 6
Yllkl.IGARDlR
Stórborg víð sund
Þegar Svartahafsjloti Sovétmanna
hugsar sér til hreyfings er aöeins um
eina siglingaleið aö rœöa; efitir Bospór-
ussundi út í Marmarahafiö og þaöan
í gegnum Dardanellasund út á Eyja-
hafi. Hér er ekki œtlunin aö setja sig í
spor sovéskra siglingafrœöinga en geta
þess eins aö á þessari leiö <?r siglt á
mörkum tveggja heimsálfa. A báöar
hendur sjást samt strendur Tyrklands.
Þar sem Bospórussundiö mcetir
Marmarahafinu breiöir mikil byggö
úr sér á strandlengjunni beggja vegna.
Þaö er Istanbúl. Ætlunin er einmitt
aö setja sig í gömul og ný spor í þess-
ari borg þar sem austriö og vestriö
hafa hvort tveggja tekist á og samein-
ast í aldanna rás.
Tyrknesk telpa.
Lega Tyrklands veldur því að þar hafa straum-
ar menningar jafnt sem innrásarherja flætt um
úr öllum áttum. Hittítar ríktu á þessu svæði frá
1600 fyrir Krist en áttu löngum í höggi við Grikki
og veitti ýmsum betur. Grikkir stofnuðu margar
borgir meðfram strönd Eyjahafsins eftir þvi sem
á leið og réðust loks alla leið inn i Persiu en seinna
snerist dæmið við. Veldi Persa stækkaði, náði
yfir Litlu-Asíu og teygði arma sína í átt til Grikk-
lands. Enn urðu umskipti á Ijórðu öld fyrir Krist
þegar Alexander rnikli lagði þetta svæði undir sig
en herir hans létu ekki staðar numið fyrr en Alex-
ander var búinn að brjóta Egyptaland, Sýrland,
Persíu og hluta Indlands undir sitt vald. Þá dó
hann líka. Tveimur öldum seinna byrjuðu Róm-
verjar að festa sig í sessi á þessu svæði og var
Litla-Asia hluti af rómverska heimsveldinu meðan
það var og hét.
Og það voru fleiri en hershöfðingjar sem létu
þarna til sín taka. Á ferðum sínum á árunum 40
til 50 eftir Krist stofnaði Páll postuli frumkristna
söfnuði á þessum slóðum og hafa fjölmargar
kirkjur þeirra varðveist.
Fyrir framan þá blindu
Um þetta leyti hafði reisuleg borg byggst upp
við Bospórussundið og var hún nefnd Býzantíon.
Sagan segir að Grikki nokkur, Býzas að nafni,
hafi að ráðum véfréttarinnar i Delfi byggt þar
fyrst. um 600 fyrir Krist. Véfréttin ráðlagði honuin
að byggja borg „fyrir framan þá blindu". Þá var
byggðakjarni Asíumegin við sundið og gerði Býz-
6 VIKAN 44. TBL