Vikan - 30.10.1986, Blaðsíða 62
Sl<ajrtn&cfl%Mjr
Ótrúlegustu hlutir verða vinsælir
á gervihnattaöld. j dageru skartnegl-
ur tískufyrirbæri sem fæstir geta án
verið vilji þeir teljast með skartliðinu.
Rauðar, bláar, svartar og gylltar
skartneglur með mynstri eða stein-
um, sem límdir eru á nögl litlafingurs,
eru fyrirbæri dagsins.
Sænskur listmálari, Raino Rydel-
ius að nafni, hefur í áratug málað
og skreytt alls konar örsmá listaverk
og haldið fjöldamargar sýningar á
verkum sínum í Bandaríkjunum. Og
þar byrjaði æðið. Hann fór á snyrti-
stofur og málaði á neglur viðskipta-
vina listaverk og skreytti jafnvel
steinum. Vinsældirnar jukust og
hann komst ekki yfir að sinna öllum
tilboðum sem honum bárust. Þá var
farið út í fjöldaframleiðslu. Og nú
er hægt að kaupa skartneglur í fimm-
tíu mismunandi útgáfum. Sum erlend
fyrirtæki hafa séð ástæðu til að kaupa
skartneglur Rydeliusar fyrir starfs-
menn sína. Carlsberg, danska bjór-
fyrirtækið, hefur keypt rauðar skart-
neglur, prýddar nafni fyrirtækisins
gylltum stöfum. Raino Rydelius er
orðið nafn í tískuheiminum fyrir
listaverkin sem hann málar á neglur.
Skartneglur Rainos Rydelius fást hér. Hverri nögl fylgja litlir límmiöar.
Rauð nögl með gylltum linum stingur í stúf við ómálaðar neglur.
viBurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn,
kennara og námsfólk.
r®trmg
Rotring téiknipennar og teikniáhöld
fást í þsegilegum einingum fyrir
skóla og teiknistofur.
PENNAVIÐGERÐIN
Hafnarstræti 18, sími 10130.
Hafnarstrœti 18 s. 10130.
ið^iing
62 VIKAN 44. TBL