Vikan - 30.10.1986, Blaðsíða 12
„Þetta er eins og
eilíft sumarfrí“
Viðtal vid Jónatan IVliller, hinn þekkta breska leikstjóra
Það er svo einfalt mál að skreppa í leikhúsið eða óperuna. Velja spenn-
andi sýningu, ákveða gott kvöld, kaupa miöa, bóka barnapíu. Draga fram
skárri spjarirnar þegar þar að kemur, gera sig sœtan og drífa sig af stað.
Finna fiðringinn hríslast um sig þegar Ijósin dofna og þögn fœrist yfir
salinn. Leyfa leikurum og söngvurum að spila með tilfinningar manns þar
til maður veit ekki sitt rjúkandi ráð. Fá útrás í að klappa á eftir og rœða
svo af mikilli speki um ágœti sýningarinnar yfir kaffibolla eða einhverju
sterkara. Fœstum dettur í hug að veltafyrir sér aðdragandanum að sýning-
unni eða hver vinna liggur á bak við þessa kvöldstund- að sýningin byrjaði
í rauninni ekki klukkan átta, hún byrjaði fyrir mörgum vikum. Og hún
er ekki búin klukkan ellefu því hún heldur áfram á meðan fólk vill horfa
á hana. Ihvert skipti, sem hún er endurtekin, verður hún að vera splunkuný.
Björg Árnadóttir,
blaðamaður Vikunnar
í London
12 VIKAN 44. TBL