Vikan - 30.10.1986, Page 27
Umsjón: Jóhanna Margrét Einarsdóttir
Það verður að fara mjög varlega í
að fjarlægja þessi hús.
Það er ekki alltaf nauðsynlegt að
varðveita timburhús á þeim stað þar
sem þau voru byggð heldur er hægt
að flytja þau á milli staða ef nauðsyn
krefur. Mörg af þessum húsum eru
staðsett þannig að það hefur verið
þrengt of mikið að þeim til að þau
njóti sín.
En við verðum að fara gætilega í
allar breytingar og hugsa okkur vel
uin varðandi hverju við viljum kasta
fyrir róða og hvað við viljum varð-
veita.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur:
Nýjar tillögur til afgreiöslu
Skortur á heildarskipulagi gamla
miðbæjarins hefur háð eðlilegri upp-
byggingu þessa svæðis verulega.
Ýmsar tillögur hafa verið gerðar um
einstaka hluta gamla miðbæjarins en
aldrei hefur verið ráðist í heildar-
skipulag þessa svæðis fyrr en nú.
Þetta svæði markast af Tjörninni og
höfninni annars vegar og Lækjargötu
og Aðalstræti hins vegar.
Fyrrverandi vinstri meirihluti lét
deiliskipuleggja svokallaðan Póst-
hússtrætisreit 1979-1980 en sá reitur
afmarkast af Lækjargötu, Austur-
stræti. Pósthússtræti og Skólabrú. 1
þessu deiliskipulagi var gert ráð fyrir
að kæmi til endurbyggingar á ná-
kvæmlega sömu lóðum og gert er í
nýju skipulagstillögunum. Hins veg-
ar var nánast engin grein gerð fyrir
umferðar- og bílastæðamálum sem
er þó mikilvæg forsenda þess að
skipulag sé framkvæmanlegt.
I greinargerð þessa skipulags kom
m.a. fram að það sem einkenndi
götumynd byggðar vestan Lækjar-
götu væri mikið ósamræmi i hæð og
gerð húsa þannig að til stórra lýta
væri. Það er einmitt þetta atriði sem
skipulagshöfundar nýja skipulagsins
hafa reynt að meta, ekki síst hvað
snertir uppbyggingu vestan Lækjar-
götu og vestan Aðalstrætis. Eg held
að það sé óumdeilt að nauðsynlegt
sé að efla - og bæta - götumynd
þessara tveggja gatna. En vafalaust
verða deilur um leiðir að þessu mark-
miði. Það er í sjálfu sér eðlilegt þegar
um er að ræða hluta af elstu byggð
borgarinnar.
í nýju skipulagstillögunum er gert
ráð fyrir að íjölmörg eldri hús standi
áfram og lögð áhersla á að nýjar
byggingar geti sem best fallið að eldri
byggð. Víða erlendis hefur þetta tek-
ist mjög vel og flestar stærri borgir
í nálægum löndum hafa með einum
eða öðrum hætti endurnýjað hluta
af eldri borgarhlutum eða miðbæjum
sínum.
Markmiðið með endurskipulagn-
ingu gamla miðbæjarins er fyrst og
fremst að efla stöðu og hlutverk hins
eina og sanna miðbæjar Reykjavík-
ur. Við viljum treysta gamla mið-
bæinn i sessi sem stjórnsýslu-,
viðskipta- og þjónustumiðstöð
Reykjavíkur og landsins alls. Við vilj-
um einnig skapa betri skilyrði fyrir
fjölbreytt mannlíf, menningarstarf-
semi og tómstundir fólks.
Til að fyrrgreindum markmiðum
verði náð er í skipulagstillögunum
byggt á eftirfarandi forsendum:
- bætt umhverfi og betri aðstaða
sköpuð fyrir gangandi vegfarend-
ur, m.a. með fjölgun göngugatna,
aukinni gróðursetningu og skjól-
myndum.
- úrbætur í umferðar- og bílastæða-
málum, m.a. með byggingu bíla-
geymsluhúsa,
- veruleg fjölgun íbúða. 15 íbúðir
eru nú í gamla miðbænum en gert
er ráð fyrir að þeim fjölgi í 60-80,
- auknir möguleikar á starfsemi sem
fer fram eftir að verslunum og
skrifstofum er lokað.
Það er löngu orðið tímabært að veru-
legt átak verði gert í endurnýjun og
uppbyggingu gamla miðbæjarins.
Það er von mín að þær skipulagstil-
lögur, sem á næstunni verða af-
greiddar frá skipulagsnefnd, ljúki því
stöðnunartímabili sem í tugi ára hef-
ur lamað allt endurbyggingarstarf í
gamla miðbænum.
Skipulagsvinnunni lýkur senn og
framkvæmdir þurfa að hefjast. Því
fyrr því betra.
44. TBL VI KAN 27