Vikan - 30.10.1986, Blaðsíða 58
í byrjun þessa mánaðar hélt
Lionsklúbburinn Týr kvenna-
kvöld í Átthagasal Hótel Sögu.
Klúbbar í Lionshreyfingunni
hafa allir einhver fjáröflunar-
verkefni, sumir eru með
kútmagakvöld, aðrir með
þorrablót en þessi klúbbur hef-
ur valið það að halda árlegt
kvennakvöld. Margir hafa
staðið í þeirri trú að konur inn-
an Lionshreyfingarinnar,
Lionessur, sem eru í sérstökum
kvennaklúbbum, hafi staðið
fyrir þessum kvennakvöldum
en það hafa verið herramenn-
irnir í Tý. Ljónin i Tý hafa
þrisvar sinnum staðið fyrir
svona kvennakvöldum og allt-
af hefur viðbúnaðurinn verið
mikill.
Gamansögur Sigríöar Hannesdóttur féllu I góðan jarðveg hjá veislugestum. Fremst á myndinni er veislustjór-
inn, Kristín Guðnadóttir.
KVENNJLKVÖLD
Maria E. Ingvadottir viðskiptafræðingur, Kristín S. Kvaran alþingismað-
ur, Esther Guðmundsdóttir markaðsstjóri, Þórunn Gestsdóttir ritstjóri og
Þóra Emelia Ármannsdóttir ritari skrafa saman að lokinni ræðu Kristinar.
Það fara sögur af smakk-
kvöldum þeirra, þegar lagðir
hafa verið hornsteinar að mat-
seðlunum fyrirkvennakvöldin.
Á þessu siðasta kvenna-
kvöldi Týs var bleikjufrauð og
reyktur lax i forrétt, ofnsteikt
villigæs í aðalrétt og eftirréttur-
inn rabarbarasorbet í sykur-
körfu.
Veislustjórinn var Kristín
Guðnadóttir og hóf hún sitt
mál með frumsömdum brag
húsmóður í vesturbænum, sem
vakti hrifningu viðstaddra.
Aðalræðumaður kvöldsins var
Kristín S. Kvaran alþingis-
maður sem miðlaði til kyn-
systra sinna reynslunni afveru
sinni á þingi. Kristín lauk máli
Fjallkonan iklædd gömlum gardinum i dönsku fánalitunum.
Týsmenn sem báru konurnar á höndum sér þetta tiltekna kvöld.
58 VIKAN 44. TBL