Vikan - 19.03.1987, Blaðsíða 9
NAFN VIKUNNAR: SÓLMUNDUR EINARSSON
Selurinn ekkí í útrýmingarhættu
Selir hafa verið mikið í fréttum undanfamar vik-
ur vegna stórra gangna af vöðusel við strendur
Noregs. Þangað hafa selir flykkst í þúsundatali og
rnenn greinir á um orsakimar. Hérlendis hafa einn-
ig borist fréttir þess efnis að vöðuselur hafi fundist
dauður í netum fiskimanna fyrir norðan og austan
land. Þessar fréttir leiða óhjákvæmilega hugann að
ástandi selastofnanna hér við land svo og að bar-
áttu náttúruvemdarmanna fyrir friðun selastofn-
anna og þeint breytingum sem friðun og mjög
takmörkuð veiði kann að valda á jafnvægi náttúr-
unnar. Við ræddum þessi mál við Sólntund Einars-
son, fiskifræðing hjá Hafrannsóknastofnun. En
höfum þennan fonnála ekki lengri og gefunt Sól-
mundi orðið.
„Þegar selur fór að verða að vandamáli hérlend-
is var rannsóknum á honum kippt undan Hafrann-
sóknastofnun og stofnuð sérstök nefnd til höfuðs
selnum, hringonnanefndin margfræga. Hringorma-
nefnd er í dag stefnumótandi um allt það er varðar
selveiðar og rannsóknir á sel hér við land svo og
nytjar á honum. Til að örva veiðamar hefur hún
gripið til þess ráðs að verðlauna fyrir alla skotna
seli. Svona hefur þetta gengið síðastliðin tíu ár."
- Nú hefur hringomtanefnd verið gagnrýnd mjög
ntikið...
„Það er alveg rétt. Hringonnanefnd er fyrst og
fremst fulltrúi fiskvinnslunnar í landinu svo og fisk-
útflytjenda. Hún hefur mótað þá stefnu að selurinn
sé skaðvaldur og vinni fiskvinnslunni tjón svo hon-
um beri að fækka nteð öllum ráðum. Þetta snýst
allt um hringomtinn sem er vissuiega vandantál i
fiskvinnslunni og selurinn er snar þáttur í hringrás
hans. Það er bæði mjög seinvirkt og dýrt að hreinsa
hringorm úr fiski og þar af leiðandi veldur hann
miklu tjóni. Það hefur verið slegið á að kostnaður-
inn við hvem onn sé ein til tvær krónur.
En spumingin er ekki hvort hægt sé að koma í
veg fyrir hringonnasýkingu með takmarkalausum
selveiðum. Það sem fræðimenn greinir á um er
hvort það sé nóg og hvort slíkar aðgerðir réttlæti
fækkun sela. Áður fyrr var selurinn nytjaður en
þá vom það einungis kópamir sem vom veiddir
og með því hélst stofninn í jafnvægi. Selum hvorki
fækkaði né fjölgaði. Síðan koma náttúruvemdar-
menn því til leiðar að kópaskinn verða óseljanleg
vara. Þá dettur botninn úr þessurn veiðunt og
bændur hætta að nytja selastofnana hér við land.
Þá er ákveðið að halda selveiðum áfram og verð-
launa sérstaklega fyrir þá seli sem skotnir em. En
í stað þess að veiða eingöngu kópa fara menn nú
að veiða seli á öllum aldri, kópa, kynþroska dýr
og fullorðin. Í stað þess að veiðitíminn var ein-
göngu bundinn við vorið verður nú enginn
ákveðinn veiðitími. Þótt veiddir séu sex til sjö þús-
und selir, sem er svipað og var áður, þá gefa þessar
veiðar allt aðra mynd af stofninum þeldur en ef
aðeins væri um kópaveiðar að ræða. Öllu mynstr-
inu er breytt. Það kemur líka í ijós að þegar farið
er að veiða seli gegndarlaust í látrum þar sem þeir
hafa haldið sig þá flytja þeir sig um set og nema
land á nýjum svæðum og sýkja þau um leið af
hringormi. Hér á landi em ekki neinar reglur til
um selveiðar nema um hlunnindaveiði sé að ræða
og það er út af fyrir sig slæmt."
- Hefur selur verið rannsakaður mikið vísinda-
lega hér við land?
„Já, já. Hringormanefnd hefur haft á sínum snær-
um Erling Hauksson líffræðing. Hann hefur
rannsakað lífshætti sela töluvert. Til hans hefur
borist gífurlega mikið af gögnum því öll þau gögn
sem hringormanefnd fær í hendur em skráð mjög
skilmerkilega og hann hefur aðgang að þeim. Erl-
ingur hefur unnið mjög gott starf enda hefur
peninga til þessara rannsókna ekki skort. Svo í dag
höfunt við aðgang að þónokkrum vísindaritum og
skýrslunt um íslenska selastofna. Það sem menn,
sérstaklega líffræðinga, greinir hins vegar á um er
túlkun hinna ýmsu rannsókna. Það er ýmist hægt
að túlka þær hlutlaust eða hlutdrægt. En gögnin
em engu að síður til staðar. Menn telja að hér við
land séu 30-40 þúsund landselir og 10-12 þúsund
útselir, en rannsóknir gefa til kynna að útsel sé að
fjölga. Svo koma hingað árlega nokkrar tegundir
af farselum frá Grænlandi, Jan Mayen og Sval-
barða. Það em vöðuselur, kampselur, hringanóri
og blöðmselur. Af og til slæðist hingað líka einn
og einn rostungur. Undanfarin ár hefur ekki borið
svo mjög á þessum farselum en áður fyrr komu
þeir oft upp að landinu. sérstaklega í ísámm og
þá einkum vöðuselurinn. Hann var til dæmis nýtt-
ur fyrir norðan á fyrri hluta aldarinnar. Þá var það
árvisst fyrirbæri að þeir kæmu upp að landinu svo
þúsundum skipti og var svo allt fram undir 1930.
Á stríðsárunum lá öll vöðuselsveiði Norðmanna
niðri og það hafði þau áhrif að vöðuselur fór að
koma aftur upp að landinu. Á þessu sést að þó
vöðuselur heimsæki okkur í dag þá er það ekki
ný bóla.
Vöðuselur er vandamál í Noregi þessar vikumar
en ef heimildir em skoðaðar sést að það er heidur
ekki nýtt fyrirbæri."
- Hversu mörg dýr er talið að hafi komið upp
að Noregsströndum í ár?
„Það er talið að heildarfjöldinn sé 200-300 þús-
und dýr. Frá áramótum hafa fundist 30-40 þúsund
dauðir selir í netum sjómanna. Svona stórar vöður
hlífa engu, þær em mikið uppi í sjó, nærast mest
á krabbadýrum en éta einnig mikið af loðnu, síld
og þorski. Selir komast fljótt upp á lag með að
taka fisk úr netum en við það festast þeir oft. Þetta
em stórar skepnur, 150-200 kíló fullvaxnar, svo
það er augljóst að þær geta gert mikinn usla í net-
um og valdið ómældu peningatjóni. Selir hafa einnig
gert gífurlegan usla i fiskeldiskvíum í sjó. Norð-
menn em famir að hafa af þessu miklar áhyggjur
sem sést best á því að þeir óskuðu eftir samvinnu
við Islendinga og Dani um selarannsóknir á Norð-
urlandaráðsþinginu um daginn.
Á sama tíma fóm að berast fréttir af vöðusel hér
við land. Vöðuselur er ekki vandamál hér við land
í dag en það er aldrei hægt að segja með fullri vissu
hvað verður. Bein haldgóð skýring á hvers vegna
meira ber á vöðusel hér við land en áður er varla
til. Við Jan Mayen, þaðan sem talið er að sá vöðu-
selur sem finnst hér við land sé ættaður, er töluvert
af loðnu, hugsanlega gæti hann verið að elta loðnu-
göngur hingað.
Eins og áður sagði er það ekki nýtt að stórum
vöðum af vöðusel skjóti upp við Noreg. 1902 og
1912 var til dæmis mikið af honum. Þegar rýnt er
í gögn um ásand sjávar á þessum slóðum þessi ár
kemur í ljós að töluvert var af ís. Það er talið að
selurinn hafi hrakist undan honum. í ár er nokkur
hafis við Jan Mayen og á Svalbarðasvæðinu. En
fleira ber til, Norðmenn hafa ekki stundað veiðar
á íshafssel svo nokkm nemi í austur- og norðurísn-
um síðastliðin fjögur ár. Það hlýtur að hafa haft í
för með sér stækkun stofnsins. Maðurinn og selur-
inn sækja í sama matarfatið og em í raun í
samkeppni um fiskinn. Þetta gætu allt saman verið
samverkandi þættir; fjölgun sela, lítil fæða og ísinn.
Málið snýst um orsök og afleiðingu. Selurinn er
ekki í útrýmingarhættu og stofnamir em mjög stór-
ir. Þegar svona stórir stofnar em ekki nýttir á sér
stað mikil fjölgun. Jafnvægi í selastofnunum er háð
fæðunni í sjónum. Það er líklegt, ef ekkert verður
að gert, að það eigi sér stað mikil fjölgun sela, síð-
an verði hmn í stofninum af fæðuskorti. Á meðan
á þessu hugsanlega ferli stendur getur margt borið
til því eftir því sem selurinn étur meira af fiski
minnka fiskistofnamir. Þá er það spumingin fyrir
okkur hvort við höfum efni á því að tapa öllum
þessum auðlindum í formi fisks í selsmagana. Það
hlýtur að koma að þvi að fjölgun sela hafi afieiðing-
ar fyrir þá sem nýta fiskinn í sjónum. Spumingin
verður því hvort við eigum að ganga milli bols og
höfuðs á selnum og fiýta því að stofnamir komist
í jafnvægi. Þetta em spumingar um vilja og sið-
fræði. Það verður að stefna að því að vinna aftur
markaði fyrir kópaskinn og veita í það fjármagn,
því með þvi komast selveiðamar aftur í upphaflegt
form, það er að kópar séu veiddir en ekki fullorð-
in dýr. Friðun getur gengið út í öfgar. Það þarf
ekki alltaf að vera af hinu illa að nýta stofna á
skynsamlegan hátt.
En fyrst og fremst þarf að ræða þessi mál málefna-
lega og reyna að komast að samkomulagi sem
flestir geta sætt sig við,“ sagði Sólmundur að lokum.
Viðtal: Jóhanna Margrét Einarsdóttir Mynd: Valdís Óskarsdóttir
12. TBL VIKAN 9