Vikan - 19.03.1987, Blaðsíða 14
Olafur Oddsson:
Markmiðið að veita fyrstu hjálp
Hvernig ætli þessi mál blasi við hér á landi?
Ólafur Oddsson uppeldisráðgjafi, starfsmað-
ur hjá Rauða krossinum, er einn af aðstand-
endum Barna- og unglingasímans. Ég hitti
Ólaf að máli fyrir skömmu og bað hann að
segja frá starfseminni hér.
„Við notfærðum okkur reynslu Norð-
manna þegar við fórum að byggja þessa
starfsemi kerfisbundið upp hér á landi. Allan
þann tíma sem Rauðakrossheimilið að Tjarn-
argötu 35 hefur verið starfrækt hefur verið
boðið upp á símaþjónustu fyrir unglinga.
Okkur þótti ástæða til að leggja meira upp
úr þessari þjónustu og um leið vildum við
hafa meiri stjórn á henni. Það var starfandi
sérstakur hópur hjá Samtökum um kvennaat-
hvarf sem hugðist koma á fót símaþjónustu
fyrir börn en þar sem þessi starfsemi var fyrir
hendi hjá okkur ákváðum við að fara út í
samstarf. Með okkur tókst góð samvinna og
við hleyptum starfseminni formlega af stokk-
unum þann 14. desember síðastliðinn."
- Gerið þið sérstaka skrá yfir þá unglinga
sem hringja í ykkur?
„Nei, það er ekki gert. Við skráum og flokk-
um þau vandamál sem koma fram í samtölum
við krakkana. Krakkarnir eru ekki skráðir
undir nafni og raunar ber að taka það skýrt
fram að algerrar nafnleyndar er gætt og þeir
þurfa ekki að segja til nafns þegar þeir hringja
í okkur. En með því að skrá vandamálin get-
um við betur séð í hverju þau liggja. Við viljum
gjarnan fá einhver svör við því hver sé staða
barna og unglinga í þjóðfélaginu í dag.
Þessi starfsemi hefur ekki verið mikið kynnt
hérlendis en á döfinni hjá okkur er að gefa
út upplýsingabækling um Barna- og unglinga-
símann og dreifa honum i gegnum skólana
til allra barna og unglinga á aldrinum tíu til
sextán ára alls staðar á landinu."
- Hverjir eru það sem taka að sér að svara
í símann hjá ykkur?
„Þeir sem svara simanum eru sjálfboðaliðar
en við höfum gert það að skilyrði að allir sem
sinna þessari þjónustu fari á námskeið hjá
okkur. Á þessum námskeiðum hefur Sigtrygg-
ur Jónsson sálfræðingur, sem hefur hvað
mesta reynslu í símaþjónustu við unglinga,
upplýst um þau úrræði sem hægt er að beita
og hvernig best sé að ræða við börn og ungl-
inga í síma. Aðalsteinn Sigfússon, deildarsál-
fræðingur hjá Féiagsmálastofnun Reykjavík-
urborgar, fjallaði um hvernig hægt er að taka
á erfiðum barnaverndarmálum. Svo voru
hópæfingar þar sem við ræddum uni hvernig
hægt er að taka á alvarlegum vandamálum,
svo og þeim sem léttvægari mega teljast.
Það eru ekki allir sem komast í gegnum
Ólafur Oddsson.
Texti: Jóhanna Margrét Einarsdóttir
þessi námskeið, fólk verður að sýna og sanna
á áþreifanlegan hátt að það ráði við verkefn-
in. En við skiljum sjálfboðaliðana aldrei eftir
eina við símann heldur er Sigríður Sumarliða-
dóttir, sem hefur mikla reynslu af málefnum
barna og unglinga, alltaf til staðar til að ráð-
leggja ef á þarf að halda.“
- Hvernig bregðast krakkarnir við ykkur
þegar þeir hringja í fyrsta skipti?
„Það er algengt að þeir segi ekkert heldur
sitji og flissi eða bulli eitthvað í símann. Með
því eru þeir oft að reyna að stíga fyrsta skref-
ið og eins eru þeir oft á tíðum að prófa
okkur. Þegar þetta gerist spjöllum við ósköp
rólega og segjum þeim frá þeirri þjónustu sem
við bjóðum upp á. En þetta eru oft á tíðum
greinileg skilaboð um að eitthvað sé að. Það
er mjög eðlilegt að krakkarnir eigi í erfiðleik-
um með að tjá sig um vandamál sín. Um leið
og þeir viðurkenna vandamálin finnst þcim
oft að þeir séu þar með að viðurkenna að
þeir komi úr ómögulegri fjölskyldu. En við
höldum að þessi símaþjónusta auðveldi leið-
ina við að koma málunum á hreint og sé um
leið fyrirbyggjandi á þann hátt að vandamálin
verði ekki ofviða. Þegar búið er að viður-
kenna að eitthvað sé að er stórt skref stigið i
þá átt að leysa málin.
Við reynum ekki að greina hlutina enda-
laust heldur reynum við miklu frekar að benda
á jákvæða þætti í umhverfi hvers og eins,
hvernig hægt sé að efia fjölskylduna, hvernig
hún getur talað saman, skemmt sér saman
og svo framvegis. Við spjöllum um hvað sé
að, hvernig fjölskylda viðkomandi sé;
áhyggjuefni, skólann, heimilið og vinina. I
grundvallaratriðum reynum við að halda
ábyrgðinni hjá einstaklingnum sjálfum. Við
kortleggjum vandamálið og spyrjum í leiðinni
hvort hann eða hún hafi reynt að leysa málið
á eigin spýtur. Síðan bendum við á leiðir til
úrlausnar, hvernig eigi að taka upp málið við
kennara, vini, fjölskylduna eða þann þátt i
umhverfinu sem vandamálið snýst um. En
börnin eiga sjálf, með þeim upplýsingum sent
þau fá hjá okkur, að reyna að leysa málin.
Ef vandamálin eru svo fiókin að ekki sé hægt
að leysa þau á þennan hátt ræðum við við
viðkomandi um hvernig best sé hægt að haga
málum. Við ræðum það þá hvort þeir vilji að
við höfum samband, til dæmis við skólann
þeirra ef vandamálið liggur þar, og reynum
að koma á eðlilegum tjáskiptum í skólanum
eða að við tölum við þær stofnanir sem
þarf að hafa samband við. En það skal tekið
skýrt fram að við gerum þetta aldrei nema
með fullkontnu samkomulagi við krakkana
sjálfa og þvi aðeins að þeir séu því fylgjandi
sem við leggjum til.“
En er þörf fyrir þjónustu af þessu tagi
hér á landi?
„Reynslan af þessari þjónustu, sem hefur
þó ekki staðið nema í rúma tvo mánuði, sýn-
ir okkur að það er mikið af börnum og
unglingum sem hafa það alls ekki nógu gott.
Sum af þeim vandamálum, sem krakkarnir
leita til okkar með, eru fullkomlega eðlileg
vandamál en önnur staðfcsta að krakkarnir
fá þörfum sínum ekki fullnægt í nútímaþjóð-
félagi. Flest þessara mála eru tilkomin vegna
sambandsleysis foreldra og barna og væru
alls ekki til staðar ef börn og fullorðnir töluðu
meira saman. En það eru ekki einungis börn
og unglingar sem hafa samband við okkur
heldur hafa foreldrarnir stundum samband
lika.“
Hvereru algengustu vandamálin sem leit-
að er til ykkar með?
„Algengustu málin eru vegna skilnaða,
ósamkomulags við stjúpforeldra og alls kyns
uppeldisvandamála. Við höfum kannski ekki
tök á að bjarga erfiðustu tilfellunum sem
koma upp en við gerum okkar besta í hverju
tilviki. Grundvallarmarkmið Rauða krossins
er að veita fyrstu hjálp og það teljurn við
okkur vera að gera nteð þessari þjónustu,"
sagði Olafur að lokum.
14 VIKAN 12. TBL