Vikan - 19.03.1987, Page 37
Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið
tengdur við bændur. Ég spyr hvort þeir séu
orðnir baggi á flokknum:
„Nei, bændur hafa alltaf verið mikilvægir
aðilar að Framsóknarflokknum og ég vona
að enginn taki undir þann róg að bændur séu
baggi á þjóðfélaginu.
Eg hef stefnt að því að flokkurinn sé opinn
fyrir þeim breytingum sem eru að gerast í
heimi öllum og þjóðfélaginu okkar líka. Ég
vil ekki að hann staðni við það sem liðið er.
Þá mun hann deyja," segir Steingrímur og
bendir á að hann hafi lagt áherslu á nýsköpun
og telur upp þau ntál sem hann hefur lagt
fram í ríkisstjórninni og stuðla að nýsköpun.
„Munurinn á okkur og sjálfstæðismönnum
er kannski sá að við teljum að stjórnvöld eigi
að stuðla að þessum málum. Þeir telja hins
vegar að þetta eigi að vera í höndum hins
frjálsa markaðs."
Framsóknarflokkurinn hefur setið í ríkis-
stjórnum óslitið frá árinu 1971. Oft er talað
um svokallaðan Framsóknaráratug og eru
ekki allir á sarna máli um ágæti hans. En
tlnnst Steingrími tími til kominn að flokkurinn
iaki scr hvíld frá ríkisstjórnarsetu?
lig hef ekkert á móti því að flokkurinn
vctöí utan stjórnar en ég treysti hins vegar
engmn öðrurn betur til að stjórna landinu og
rata hinn gullna meðalveg.
Við byggjum alls ekki við þau góðu lífskjör
sem við njótum í dag ef við hefðum ekki átt
Framsóknaráratuginn. Ef við hefðum ekki
keypt togarana þá myndi fiskurinn synda
framhjá landinu."
Sorglegl að sjá
á eftir Stefáni út í kuldann
Stefán Valgeirsson ætlar í sérframboð í
Norðurlandskjördæmi eystra. Steingrímur er
ekki sáttur við þessa ákvörðun Stefáns:
„Ég hitti mann fyrir nokkru sem sagði mér
að hann hefði ferðast með framgjörnum fram-
bjóðanda í Eyjafirði fyrir allmörgum árum.
Þá var Karl Kristjánsson, sá ágæti þingmað-
ur, orðinn garnall en hafði ennþá ekki lýst
því yfír að hann ætlaði að hætta. Frambjóð-
andinn fór bæ af bæ og sagði það vera sorglegt
þegar menn væru orðnir gamlir og þekktu
ekki sinn vitjunartíma. Og hann bætti gjarnan
við að slíkt skyldi ekki henda sig.
Þetta er því miður gallinn. Stefán er búinn
að vinna gott starf. Unga fólkið vill komast
að. Stjórn kjördæmisráðsins fór fram á það
að bæði Ingvar Gíslason og Stefán hættu.
Ingvar hefur stórlega vaxið við það og er virt-
ur af öllum. Það er hins vegar sorglegt að
Stefán, sem að mörgu leyti er búinn að vinna
gott starf, endar úti í kuldanum," segir Stein-
grimur og lesendur grunar kannski hver hinn
framgjarni frambjóðandi var.
Sannleikanum verður
hver sárreiðastur
Steingrímur hefur kvatt sitt fyrra kjör-
dænti, Vestfirðina, og skipar nú efsta sæti á
framboðslista flokksins á Reykjanesi. Það er
tæpast hægt að segja að þingmenn hinna
flokkanna hafi tekið vel á móti Steingrími og
það féll ekki í góðan jarðveg er hann gaf til
kynna að þeir væru ónytjungar og átti þá við
ástand sjávarútvegsins í kjördæminu:
„Ég sagði aldrei að þeir væru ónytjungar
og það hefur komið mér á óvart hvernig þeir
hafa tekið þessum ummælum. Einhvers staðar
segir að sannleikanum verði hver sárreiðast-
ur. Ég sagði bara að ef svona hefði þróast í
sjávarútvegi á Vestfjörðum þá hefði okkur
Vestfjarðaþingmönnum ekki orðið vært þar.
Ég nefndi þá ekki. Þetta eru hinir mætustu
menn, flestir."
Arftaki Steingríms fyrir vestan er Ólafur
Þ. Þórðarson. - Ertu sáttur við hann sem
þinn arftaka?
„Það má segja að ég hafi valið hann til
framboðs á sínum tíma. Ólafur er vel gefinn
einstaklingur og margt gott um hann að segja.
Hins vegar verður því ekki neitað að hann
hefur dálítið sérstakar skoðanir á málurn og
ég er ekki frá því að það hafi skaðað hann í
kjördæminu. Hann á því töluvert verk fyrir
höndunt fyrir vestan á næstunni."
Vil helst vera í
sundi eða á skíðum
Forsætisráðherra hefur oft verið orðaður
við mikla ferðagleði og þegar við ræddum
saman var hann nýkominn af Norðurlanda-
ráðsþingi:
„Það er engin ferðagleði hjá mér. Ég vil
miklu heldur vera heima og fara í sund i há-
deginu og á skíði um helgar en að ferðast
alla leið til Helsinki á fund Norðurlandaráðs.
Þarna mæta hins vegar allir forsætisráðherr-
arnir og halda tölu. Ef ég gerði það ekki
væri ég ekki talinn sinna skyldu minni.
Kínaferðin var mjög skemmtileg og ég vona
að hún hafi líka verið gagnleg. Eg vona að
það sama eigi við um förina til Moskvu,"
segir Steingrímur.
Honum var boðið til Moskvu í tilefni leið-
togafundarins. Hann segir að Islendingar hafi
vaxið mjög af leiðtogafundinum.
„Við eigum að leggja áherslu á að varð-
veita þann anda sem skapaðist frá leiðtoga-
fundinum. Ég er ekki frá því að ísland geti
orðið eins konar annað Genf; tákn fyrir betra
mannlíf og betri heim," segir Steingrímur og
upplýsir að hann ætli að skipa nefnd til að
kanna hvað við getum gert á sviði ferðamála
og viðskipta í kjölfar leiðtogafundarins.
Kosið um árangurinn
Steingrímur útilokar enga stjórnarmyndun-
armöguleika eftir kosningar. „Ég hef ekkert
á móti því að Framsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn vinni áfram saman í ríkis-
stjórn. En ég mun ekki taka þátt í að fórna
þeim árangri sem náðst hefur. Kosið verður
unt að varðveita þennan árangur. A þessum
árangri verður að byggja hið fjölmarga góða
sem gera þarf.
Hins vegar býður Alþýðuflokkurinn gull
og græna skóga og það þarf sterk bein til að
hafna slíku. Mér skilst að Sjálfstæðisflokkur-
inn megi skrifa sinn reikning en slíkt verður
aldrei unnt gagnvart okkur," segir Steingrím-
ur en bendir jafnframt á að Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur hafi verið stofnaðir
af sama manni og flokkarnir hafi lengi átt
samleið. Hann segir það lengi hafa verið sitt
álit að flokkarnir gætu átt samleið en vill ekk-
ert segja um hvernig það verður eftir kosning-
ar.
Ætla ekki að
verða mosagróinn
„Ég sagði það þegar ég var fjórtán ára að
í pólitík skyldi ég aldrei fara og gerðist því
verkfræðingur. Ég hélt að það ætti að vera
nokkuð öruggt þvi þá taldi ég að i stjórnmál
færu aðeins lögfræðingar.
Ég verð að viðurkenna að pólitíkin hefur
verið mjög fróðleg og ég hef lært meira á
henni en í margra ára háskólanámi. Ég vildi
ekki vera án þeirra tengsla sem ég tel mig
hafa komist í við fólkið og það sem er að
gerast í landinu. Ein af mínum bestu stundum
hvern dag er inni í laugum, í heita pottinum
með fjöldanum þar. Þar er mjög gaman og
talað glatt," segir Steingrímur. Hann verður
sextugur á næsta ári. Er hans vitjunartími að
nálgast?
„Ég ætla að standa við það sem frambjóð-
andinn sagði í Eyjafirði. Ég ætla ekki að verða
mosagróinn í pólitíkinni."
12 TBL VIKAN 37