Vikan - 14.05.1987, Page 23
Jean-Jacques Beineix.
Jean-Jaques
Beineix
Leikstjóri Betty Blue, Jean-Jaques
Beineix, er fertugur og á að baki
þrjár kvikmyndir, hina rórnuðu Diva
og hina misheppnuðu Moon in the
Gutter auk Bctty Blue. Hann byrjaði
feril sinn sem aðstoðarleikstjóri Rene
Clement og Claude Berri svo ein-
hveijir séu nefndir. Það er svo 1980
sem Diva kemur á markaðinn og
allt í einu var Beineix á allra vörum.
Diva fjallar um ungan póstmann sem
dýrkar óperusöngkonu sem neitar
að gefa út söng sinn á plötu. Hans
draumur er að hljóðrita rödd hennar
og gefa út á plötu...
Jean-Jaques Beineix hefur greini-
lega haldið, eftir þær rómuðu við-
tökur sem Diva fékk, að honum
væru allir vegir l'ærir, svo var nú ekki.
Eftir að mikið hafði gengið á í sam-
skiptum hans og aðalleikarans,
Gerard Depardieu, leit Moon in the
Gutter loks dagsins Ijós og allir höt-
uðu hana, gítgnrýnendur sem áhorf-
endur. Trúr sjálfum sér segir Beineix
samt að Moon in the Gutter sé meist-
araverk. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu
hefur hann greinilega séð að sér því
Betty Blue er tvímælalaust vinstelasta
mynd hans til þessa, þótt margir séu
á því að Diva sé merkilegri kvik-
mynd.
Næsta verkefni Beineix verður að
líkindum i Bandarikjunum. Hann
hefur lýst áhuga á að vinna þar og
ekki hefur hann skort tilboðin það-
an.
Myndbönd
ELENI ★ ★ ★
Leikstjóri: Peter Yates.
Aöalleikarar: Kate Nelligan, John Malkovich og Linda Hunt.
Sýningartimi: 116 mín. - Útgefandi: Tefli hf.
Elini er byggð á sönnum atburðum og fjallar um leit sonar að morð-
ingja móður sinnar. Sonurinn, Nicholas Gage, er þekktur blaðamaður og
rithöfundur og þegar hann hóf fyrst leit að örlögum móður sinnar vissi
hann aðeins að hún var tekin af lífi af skæruliðum í borgarastyrjöldinni í
Grikklandi. Myndin segir svo frá ferð Gage á heimaslóðir og um leið er
farið aftur í tímann, til þess tíma þegar móðir hans barðist fyrir að börn
hennar mættu lifa og galt þess sjálf með lífi sínu. Gage finnur morðingjann
að lokum en það reynist honum erfitt að ætla að drepa varnarlausan
mann... Eleni er dramatísk ogspennandi mynd. K.ate Nelligan og John
Malkovitch fara vel með hlutverk móður og sonar og Linta Hunt er minnis-
stæð í litlu hlutverki. Eleni er mynd sem óhætt er að mæla með.
PRETTY IN PINK + i
Leikstjóri: Howard Deutch.
Aðalleikarar: Molly Ringwald, Harry Dean Stanton og Andrew McCarthy.
Sýningartími: 86 mín. - Utgefandi: Háskólabíó.
John Hugheser leikstjóri og framleiðandi sem hefur sérhæft sig í að gera
kvikmyndir fyrir táninga sem allar virðast njóta vinsælda. Er það orðið svo
að nóg er að nefna nafnið þá vita menn hvernig myndin er. Pretty in Pink
er úr verksmiðju Hughes, þótt hann leikstýri ekki í þetta skiptið. Efnis-
þráðurinn er ekki frumlegur. Myndin fjallar um fátæku stúlkuna sern hittir
ríka, myndarlega strákinn og þau verða ástfangin, verða ósatt, sættast aftur
og myndin endar að sjálfsögðu vel fyrir alla aðila. Efnisþráðurinn er krydd-
aður með laufléttri tónlist og nokkrum bröndurum, blanda sem tekst vel í
þetta skiptið. Ekki veit ég hvað jafnágætur leikari og Harry Dean Stanton
er að gera í þessari ntynd enda hans hlutverk sem föður fátæku stúlkunnar
vandræðalegt. Ekki mæli ég rneð Pretty in Pink fyrir fullorðna en ungling-
ar ættu að hafa gaman af.
THEATER OF BLOOD ★★
Leikstjóri: Douglas Hickox.
Aöalhlutverk: Vincent Price, Diana Rigg og lan Hendry.
Sýningartími: 102 mín.-Útgefandi: Tefli hf.
Það er alltaf ánægjulegt að sjá Vincent Price og það á ekki síst við þegar
hann er í sínu uppáhaldshlutverki, morðóður brjálæðingur. í þetta skiptið
er hann Shakespeare-leikarinn Edward Lionheart sem hefur í gegnum tíð-
ina fengið óvæga dóma hjá leikhúsgagnrýnendum. Þegar allir halda
Lionheart dauðan tekur hann til við að myrða gagnrýnendur á hinn hroða-
legasta hátt og meðan hann drepur þá þylur hann texta úr leikritum
Shakespeares. Theater of Blood er hin ágætasta skemmtun fyrir unnendur
hryllingsmynda og Vincent Price svíkurengan frekaren fyrri daginn. í hlut-
verkum gagnrýnenda er hópur þekktra breskra karakterleikara. Má nefna
Harry Andrews, Robert Morley og Ian Hendry og hefur hver þeirra sinn
veikleika sem Lionheart notfærirsér til að laða þá til sín. Diana Riggleik-
ur dóttur Lionhearts og er hún ekki síður morðóð en faðirinn.
HOTCHILI ★
Leikstjóri: William Sachs.
Aðalleikarar: Charles Schillaci, Alan J. Kayser og Joe Rubbo.
Sýningartími: 85 mín. -Útgefandi: Háskólabió.
Eins og hægt er að segja að Pretty in Pink sé vel heppnuð unglingamynd
er hægt að segja urn Hot Chili að hún sé misheppnuð unglingamynd. Hún
Ijallar um Ijóra unga stráka sern fá vinnu á hóteli í Mexíkó. Vinnan er að
sjálfsögðu aukaatriði, að komast yfir kvenmann er númereitt hjá þeim og
þaðerótrúlega mikiðaflauslátukvenfólki á hótelinu. Fjallarmyndinsvo
cingöngu urn kvennafar piltanna sem oft er nokkuð skondið en um leið
of fáránlegt lil að gaman megi hafa af. Það versta við Hot Chili er að
myndin á að vera gamanmynd en til að gera gamanmynd þarf gamanleik-
ara og þeir óþekkui leikarar, sem hér eru í aðalhlutverkuin, verða jafnó-
þekktir eftir frammistöðu sína hér. Sjálfsagt hefði verið hægt að kalla Hot
Chili „djarfa" mynd einhvern tímann en í dag græðirenginn á að sýna ber
brjóst, en nóg cr af þeim i Hot Chili.
ELENI
20. TBL VI KAN 23