Vikan - 09.07.1987, Síða 35
Ég hef heyrt að einhverjir kollegar mínir
á Morgunblaðinu hafi sagt að þessi Eiríkur
Jónsson sé endaþarmur íslenskrar blaða-
mennsku. Ég veit ekki hvað þeir eiga við.
En ég tel mig vita hvers vegna svona umtal
kemst af stað. Þetta er blandið öfund því
oft hefur það verið þannig að ég hef komið
með fréttir sem aðrir hafa misst af. Blaða-
mannabransinn hefur líka breyst mikið
undanfarið. Samkeppnin milli blaðamanna
innbyrðis er mjög hörð því nú eru peningar
komnir i spilið. Þetta hefur gerst á mjög
stuttum tíma, eftir að allt var gefið frjálst
og allir þessir nýju möguleikar hafa opnast.
í dag eru þeir blaðamenn, sem ná í besta
bitann, jafnvel með ráðherralaun. Auðvitað
fylgir svona samkeppni öfund og illt umtal
- kannski sérstaklega í garð þeirra sem geng-
ur vel. Þetta orð, sem fer af mér, er aðallega
innan stéttarinnar og kemur þá helst frá
þeim sem ekki þekkja mig persónulega. Ég
er alveg sannfærður um að þeir sem unnið
hafa náið með mér, bæði yfirmenn og aðrir,
taka ekki undir þennan orðróm. Ég held að
þeir sem gera það séu menn sem lesa grein-
ar, sem birtast eftir mig, og eru slegnir yfir
þeim. En ég læt þessar sögusagnir ekki hafa
áhrif á mig. Meðan ég veit sjálfur að ég geri
rétt hef ég engar áhyggjur af þessu. Svo má
líka segja að illt umtal sé betra en ekkert
umtal.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að það
er nýr tónn í mínum fréttum. Sumir kalla
þær vitleysisfréttir, sem þær eru náttúrlega
alls ekki því þær eru byggðar á staðreyndum.
Þessi tónn byrjaði í fréttapistlum mínum frá
Kaupmannahöfn og tók síðan á sig aðra
mynd. Seinna varð þessi sama hugmynd að
þætti á Rás tvö og hefur nú þróast út í að
verða megintónninn á fréttastofu heillar út-
varpsstöðvar. A Stjörnunni er stefnan
einmitt sú að hafa fréttirnar í þessum stíl sem
ég hef tileinkað mér. Fréttirnar eiga að vera
Ég veit að ég er oft á
mörkunum en ég held
mig réttu megin við
þau.
fræðandi og skemmtilegar en um leið eiga
þær að lýsa öðrum veruleika en við_ sjáum
dagsdaglega í hinum íjölntiðlunum. Ég ætla
ekki að vera á sömu miðum og hinir. Til
dæmis hef ég ekki áhuga á að bíða fyrir utan
Stjórnarráðið í fimm tíma með mikrófón til
að spyrja hvernig gangi og fá svo bara þau
svör að allt gangi ágætlega. Ég myndi frekar
nota þessa fimm tínta til að fara til Hvera-
gerðis og tala við krákuna í Eden unt stjórn-
mál. Ég er viss um að Stjörnufréttirnar eru
góð viðbót við hina fjölmiðlana. Þar verða
farnar ótroðnar slóðir."
Fréttastjórinn kiminn á svip.
28. TBL VIKAN 35