Vikan - 11.02.1988, Page 11
í öðru lagi fást leiðbeiningar um
vöruþróun og í þriðja lagi fá
fyrirtækin vitneskju um hvort
tilteknar markaðsaðgerðir
þeirra hafa borið tilætlaðan
árangur eða ekki.“
í máli Gunnars kemur fram að
spurningavagninn er fyrst og
fremst fyrir neytendamarkað og
segir hann að íslendingar al-
mennt séu mun fusari og velvilj-
aðri að svara spurningum þeirra
en gengur og gerist erlendis og
vill hann nota tækifærið hér til
að þakka þeim þúsundum ís-
lendinga sem Hagvangur hefur
leitað til á liðnum árum.
„Oft kemur sú staða upp í
framhaldi af spurningavagni að
eitthvert fyrirtækið vill kanna
mál sitt nánar. Þá köllum við
saman svonefndan umræðuhóp
(focus group), það er við tökum
Pétur og Pál af götunni og spyrj-
um þá nánar út í málið, vöruna,
þjónustuna eða annað sem hef-
ur markaðslegt gildi og fáum
þannig dýpri upplýsingar."
Gunnar tekur ákveðið dæmi
um hvernig þetta gengur fyrir
sig. í spurningavagni var spurt
um tiltekna vöru. í ljós kom að
fáir vissu eitthvað um hana og
enn færri keyptu hana. Þeir sem
hinsvegar keyptu vöruna á ann-
að borð líkaði hún mjög vel og
keyptu þeir hana aitur og aftur.
Hér var eitthvað sem kom ekki
heim og saman. Því var stofnað-
ur umræðuhópur sem staðfesti
framangreint. í framhaldi af
þessu var síðan skipt um um-
búðir á vörunni og hún auglýst
markvisst á ákveðinn hátt þann-
ig að salan á henni margfaldað-
ist.
Auðvelt að gera
kannanir hér
Ef við komum aftur að skoð-
anakönnunum sem slíkum er þá
mikill munur á að framkvæma
þær hérlendis og erlendis?
„Hér á íslandi er eitthvert
besta umhverfi í heiminum til
að gera skoðanakannanir og
kemur þar tvennt til. í fyrsta lagi
er það þjóðskráin sem er þrátt
fyrir allt ótrúlega góð saman-
borið við svipaðar skrár í ná-
grannalöndunum en með
skránni er hægt að taka úrtak
sem nær til þjóðarinnar allrar.
í öðru lagi er það hin mikla
símaeign íslendinga en það er
mjög þægilegt að ffamkvæma
þessar kannanir í gegnum
símann."
Hvað með marktækni þessara
kannana?
„Við erum með 1000—1500
manna úrtak sem að mati vís-
indamanna er mjög heppileg
stærð og úr þessu fáum við svar-
prósentu sem liggur á bilinu
75—80% sem er mjög há tala,
með því besta sem gerist í heim-
inum. Enda eru íslendingar
mjög liðlegir í svörum eins og
ég gat um áðan. Því er óhætt að
segja að kannanir okkar séu
mjög marktækar en hinsvegar
minnkar marktæknin eftir því
sem sundurgreining á spurning-
um verður meiri. Með okkar
könnunum er fýrst og fremst
verið að mæla strauma á mark-
aðnum en ekki verið að telja
fiskana sem synda þar.“
Alger nafnleynd er höfuð-
atriði skoðanakannana og upp-
lýsti Gunnar að öll úrtök þeirra
eru lögð fyrir tölvunefnd en síð-
an er leitað til Hagstofunnar
sem gefur leyfi til að nota
þjóðskrána. Að Iokum velur
Reiknistofnun Háskólans úrtak-
ið fyrir Hagvang.
Aðspurður um hver sé sér-
stæðasta skoðanakönnunin sem
Hagvangur hefur gert segir
Gunnar það vera hina viðamiklu
könnun sem gerð var fýrir
nokkrum árum á gildismati og
mannlegum viðhorfum íslend-
inga en ein af niðurstöðum
hennar var sem kunnugt er að
íslendingar væru hamingjusam-
asta þjóð í heimi. Könnun þessi
var hluti af alþjóðlegu starfi og
segir Gunnar að þeir hafi notið
stuðnings fjölda fyrirtækja, ein-
Gunnar Maack framkvæmda-
stjóri Hagvangs segir að í dag,
séu að koma stjómendur í
fyrirtækin sem vita hve dýr-
mætar upplýsingar er hægt að
fá með markaðskönnunum.
staklinga og samtaka við gerð
hennar.
Hvað framtíðina varðar segir
Gunnar að þeir Hagvangsmenn
séu mjög bjartsýnir enda sé
áhugi á könnunum, sérstaklega
markaðskönnunum stöðugt að
aukast... „Við erum fyrst og
ffernst á sviði markaðskannana
en látum aðra um þjóðmálaum-
ræðuna enda er að myndast á-
kveðin verkaskipting innan
þessarar atvinnugreinar.
Þessi bjartsýni er einkum sök-
um þess að inn í fyrirtækin eru í
dag að koma stjórnendur sem
kynnst hafa gildi markaðskann-
ana í skólum eða starfi hérlendis
og erlendis og því hve dýrmæt-
ar upplýsingar þær geta veitt.
Að lokum vil ég taka það fram
að þetta starf okkar væri ekki
hægt ef við nytum ekki jafn-
góðra starfskrafta og raunin er
meðal starfsfólks Hagvangs."
FRI.
10 VIKAN
GLÆSILEGA MJUKA HEIMILISTÆKJALINAN ER K0MIN
Blomberg kynna fyrstir heimilistækjaframleiðenda
nýja, mjúka og spennandi, heimilistækja línu.
Stílhrein hönnun.
Fallegar ávalar línur, sem
falla vel aö nútíma innrétt-
ingum. Auöveld þrif og
aðgengilegir stillihnappar.
Nútíma tækni.
Blomberg tækin fylgja
ströngustu tæknikröfum.
Þau eru hljóölát og nota
lágmarks rafmagn.
Góð fjárfesting.
Blomberg tækin eru fram-
leidd til aö endast um langa
framtíö. Þau eru því góð
framtíðar fjárfesting.
Traust merki.
Blomberg hefur framleitt
eldavélar og heimilistæki í
meir en 100 ár. Yfir 10 ára
góö reynsla hér á landi
tryggir þér framtíðar
þjónustu.
Líttu við!
Þú ert velkominn til okkar aö
skoöa tækin í glæsilegu
umhverfi. Viö höfum tíma
fyrir þig.
Einar Farestveit & Co. hf.
B0RGARTÚNI 28 ■ SÍMI 91-16995