Vikan - 21.07.1988, Side 29
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: KRISTINN INGVARSSON
Það er margt að gerast í Vest-
manneyjum og margt að skoða,
þannig að ekki veitir af a.m.k.
einni helgi. Margir sem flogið
hafa um allan heim hafa aldrei farið með
ferju - og aldrei komið til Vestmanneyja.
Því er upplagt að nota tækifærið og hefja
ævintýraferðina á því að fara í skemmti-
lega siglingu með Herjólfi til Eyja; láta fara
vel um sig uppi á dekki ef veðrið er gott,
annars er hægt að kúra í koju á leiðinni -
vissara er þó að panta hana þá áður en lagt
er af stað — eða fá sér eitthvað að snæða í
vei tingasalnum. Krakkarnir geta horft á
sjónvarpið í setustofunni eða leikið sér í
leiktækjum og spilakössum á leiðinni —
þau sem enn þykjast ekki vera orðin of
stór geta fengið að kíkja upp í brú og fá að
taka aðeins í stýrið.
Hægt er að fara með rútu ffá Umferðar-
miðstöðinni og er þá lagt af stað þaðan um
l‘/2 klst fyrir brottför Herjólfs, en margir
kjósa að taka fjölskyldubílinn með tii Eyja
enda eru veglaengdir þar meiri en marga
grunar. Herjólfur tekur 50 bíla í hverri
ferð þannig að vissara er að panta pláss fyr-
ir bílinn fyrirfram og koma þarf með hann
að skipshlið 45 mínútum fyrir brottför.
Fjölskylduafslátt er hægt að fá á fargjaldið
ef það er greitt á afgreiðslu Herjólfs.
Eftir rúmlega þriggja tíma siglingu er
lagt að landi í Eyjum og þá er líklega næst
á dagskrá að flnna gististaðinn sinn. Margir
hafa eflaust áhuga á því að tjalda í hinum
þekkta Herjólfsdal, enda er þar prýðilegt
tjaldstæði með snyrtingu og rennandi
vatni. Annars er um marga gististaði að
ræða í Eyjum, eins og t.d. Hótel Þórshamar
þar sem öll herbergi eru með baði, síma
og ísskáp. í Eyjum eru einnig gistiheimili,
farfuglaheimili og hægt er að fá gistingu í
heimahúsum. Þegar slíkum formsatriðum
er lokið þá er að halda á vit ævintýranna.
Nú er um margt að velja. Flesta langar
án efa að sjá hraunið sem enn er svo heitt
að það rýkur úr því. Allir Eyjapeyar kunna
að spranga og gaman að fylgjast með þeim
við þá íþrótt. Gestkomandi geta fengið að
spreyta sig á þessari sérstöku íþrótt í
Spröngunni við Skipahella. Þá er einstak-
lega auðvelt að fara í fjallgöngu því hæsti
tindurinn, Heimaklettur, er ekki nema 283
m á hæð sem er þó nóg til þess að útsýni
þaðan er óviðjafnanlegt og gaman að sjá
fasta landið frá þessu sjónarhorni. Á leið-
inni rekast ferðalangar vafalaust á nokkra
skemmtilega fugla sem þarna eiga sér stað
og má vænta þess að sjá langvíu, ritu og
súlu - að ekki sé minnst á fuglinn sem er
óopinbert tákn Vestmanneyja - lundann.
Fiskasafnið í Vestmanneyjum er víð-
ffægt og ógleymanlegt öllum sem það
skoða. Þarna er að sjá lifandi flestar þær
fisktegundir sem finnast hér við land og
einnig krabbadýr, krossfiska, sæfífla, kór-
alla og margt margt fleira sem er afar for-
vitnilegt og heillandi fyrir börn á öllum
aldri að skoða. Þarna eru einnig fjölmörg
uppstoppuð dýr, stór og smá, auk mikils
VIKAN 29
LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON