Vikan - 15.06.1989, Síða 35
RAUPAÐ 0C5 RI55AÐ
Gömul hús á Akureyri
TEXTI OG TEIKNINGAR:
RAGNAR LÁR
Löngum hefur Akureyri
þótt fagur bær og blóm-
I legur. Fáir staðir á ís-
landi geta státað af svo miklum
gróðri sem Akureyri en þar er
skjólsæit og gott til gróður-
setningar. Akureyri státar
einnig af mörgum gömlum og
fallegum húsum og mörg
þeirra hafa verið ffiðuð.
Sennilega er Nonnahúsið
þekktast meðal almennings.
Þetta æskuheimili Jóns Sveins-
sonar hefur um mörg ár verið
safn tii minningar um þennan
ástsæla rithöfund. Á Akureyri
er einnig varðveitt hús Matt-
híasar Jochumssonar, Sigur-
hæðir, en það er einnig opið
almenningi til skoðunar. Hús
Davíðs Stefánssonar er og
varðveitt og margt persónu-
legra muna skáldsins er þar til
sýnis. Friðbjarnarhús er enn
eitt safhhúsið á Akureyri en í
því húsi var góðtemplararegl-
an á íslandi stofnuð.
Laxdalshúsið er það elsta á
Akureyri, byggt 1795, en það
hús var endurbyggt fýrir
nokkrum árum og er þar rekin
greiðasala á sumrin. Annað
gamalt hús var endurbyggt
fyrir nokkrum árum en það
kallast Gamli-Lundur og stend-
ur við svonefndan Eiðsvöll.
Þar er rekinn myndlistarsýn-
ingarsalur. Mörg fleiri gömul
og merkileg hús mætti nefna,
svo sem Menntaskólahúsið og
Samkomuhúsið. En upptaln-
ingu skal lokið að sinni og þær
teikningar skoðaðar sem þess-
um línum fylgja.
Stóra teikningin sýnir ráð-
hústorgið á Akureyri á árunum
í kringum 1920. Teikningin er
gerð eftir gamalli ljósmynd og
er greinilegt að hátíð er í bæn-
um daginn sem myndin er
tekin. Aðeins eitt af þeim
húsum, sem sjást á myndinni,
stendur enn á sínum stað en
það er húsið næstyst til hægri.
í því er nú húsgagnaverslunin
Augsýn. Húsið til vinstri við
það stendur nú við Lónsbrú,
rétt utan við Akureyri, en
þangað var það flutt fyrir
nokkuð mörgum árum. Húsið,
sem er aftan við það hús,
brann. Timburhúsið lengst til
vinstri á myndinni var mynd-
Hamborg hýsir nú Sporthús sonarsona Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum.
arlegt eins og sjá má. Þar var
eitt sinn Hótel Oddeyri. Sölu-
turninn á miðju torginu er
einn af fleiri sömu tegundar
sem voru á Akureyri á sínum
tíma. Einn af turnunum var
fluttur austur í Mývatnssveit
og gerður að sumarbústað í
landi Haganess. Lengst til
hægri á myndinni sér í fjöru-
borð. Þar er nú löngu komin
uppfylling og stendur Nýja bíó
m.a. á uppfyllingunni.
Hús á Akureyri voru gjarnan
nefnd nöfnum erlendra borga
eins og tíðkaðist einnig í
Reykjavík. Hamborg heitir eitt
þeirra og fylgir teikning af því
húsi þessum línum. Þar er
meðal annars til húsa verslun-
in Sporthúsið sem sonarsynir
Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum reka. Loks skulum við
líta á hús þjóðskáldsins Matt-
híasar, Sigurhæðir, en það er,
sem fyrr segir, opið almenn-
ingi og vel þess virði að líta
þar inn sé fólk á ferð um höf-
uðstað Norðurlands.
12. TBL. 1989 VIKAN 33