Vikan


Vikan - 22.02.1990, Side 5

Vikan - 22.02.1990, Side 5
Glaðleg að vanda. Haukur Morthens og mæðgumar Svanhild- ur Jakobsdóttir og Anna Mjöll Ólafsdóttir. Bjöm Bjömsson og Troels Bendtsen, sem á sínum tíma sungu þjóðlög í Savanna tríóinu. Með þeim á myndinni em eigin- konurnar, þær Þóra Jónsdóttir og Björg Sigurðardóttir. ▼ Tammy Wynette lýsti einstakri ánægju með salarkynni Hótel ísland þar sem hún kom þrisvar fram fyrir fullu húsi. Hér spjallar hún við aðstoðarhótelstjórann Hörð Sigurjónsson og skemmtanastjórann Birgi Hrafnsson. hér við þau Björgvin Halldórsson og konu hans, Ragnheiði Reynisdóttur. 4. TBL 1990 VIKAN 5 „Sendu mér mann“ heitir textinn sem færði Breið- hyltingnum Steini G. Hermannssyni fyrstu verð- laun í samkeppninni um besta textann við lagið góð- kunna „Stand By Your Man“, sem sveitasöngkon- an Tammy Wynette er þekktust fyrir. Steinn gat því notið þess sem sérstak- ur boðsgestur Hótel ísland að hlýða á lagið í flutningi söngkonunnar á tónleik- um hennar. Samtals bárust um fjörutíu textar við lagið og hlaut Sigrún Ólafedóttir á Akranesi önnur verðlaun fyrir textann „Elsk- aðu hann“ og Elísabet Einars- dóttir á Seltjarnarnesi þriðju verðlaun fyrir texta sinn „Elska þinn mann“. Úrslitin voru tilkynnt í hófi sem haldið var af Menningar- stofnun Bandaríkjanna og hafði textahöfúndurinn Þor- steinn Eggertsson orð fyrir dómnefndinni en með honum dæmdu þau Jón Sigurðsson tónlistarmaður og Iðunn Steinsdóttir, sem m.a. átti stór- Tammy Wynette ásamt eigin- manni sínum, George Richey, sem er vel þekktur í Banda- ríkjunum fyrir lagasmíðar sínar fyrir sveitasöngvara. an þátt í textasmíðinni fyrir söngleikinn „Síldin kemur". Fjölmargir íslenskir tónlist- armenn voru samankomnir í húsakynnum Menningarstofh- unarinnar til að fagna komu sveitasöngkonunnar vinsælu og eru ljósmyndirnar teknar við það tækifæri. Kúrekasöngvari norðursins, Hallbjörn Hjartarson, fór ekki dult með aðdáun sína á söngkonunni. ‘J TONLI5T Sveitasöngkonunni var vel fagnað TEXTI: ÞÓRARINN J. MAGNÚSSON / LJÓSM.: RÓBERT ÁGÚSTSSON

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.