Vikan


Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 11

Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 11
ofan af fyrir henni. Hvert á ég að fara með hana í kvöld, spyr maður sjálfan sig. EH: Ég hef ekkert gert af viti í þessu. Ég á bara eina sambúð að baki og hún var tómt fyllerí og klúður. Tóm vitleysa. Mér fannst ég alltaf vera kominn upp að vegg og þrengt að mér á alla vegu en þó djúpt væri á þeirri uppgötvun sá ég eftirá að ég hafði bakað mér mín vandamál alfarið sjálfur. Um úrslitakosti? SG: Ef mér væri stillt upp við vegg í dag myndi ég reima á mig hlaupaskóna eins og skot. Allt sem heitir annað hvort eða er svo óréttlátt og fáránlegt að ég þyrfti ekki einu sinni að hugsa mig um. EH: Manneskja sem færi að stilla mér upp við vegg er greinilega ekki týpa sem ég hefði áhuga fyrir. Svarið yrði þá klárt nei. SB: Nútímakonan setur ekki úrslitakosti. Um þjóðfélagið? HG: Það er alveg hrikaleg leit í gangi og sérstaklega yngra fólks að einhverju varan- legu. Leit að lífsfyllingu sem það ekki fann í steypunni og bílunum og þessari geggjun allri. Það kann ekki mannleg samskipti, kann ekki að vera í sambúð og þá fer það bara í hvað sem er. Fólk kaupir steina á Laugaveginum og „verð ég ekki hamingju- samur á mánudaginn" og aflir trúa því, og það er örvænting í þjóðfélaginu. Trúar- samfélögin vilja breyta kirkjunni þó þau séu mörg hver kristin og það styð ég ein- dregið, því kirkjan er ekki í takt við tímann. Boðskapurinn er góður en tónlist- in er tímaskekkja. Því má ekki syngja um Jesú Krist á léttum nótum? Svona leitar fólkalveg dyrum og dyngjum. Það er allt yfirfúllt hjá spákonum með bolla, því nú eiga þær að segja manni hvenær maður verði hamingjusamur. Um að vera töffari? FE: Ég á mótorhjól og svo hef ég átt Trabant í mörg ár sem samræmist kannski ekki alveg töffaraímyndinni e'n margir af mínum kunningjum hafa neitað að fara upp í Trabantinn þó enginn annar bíll væri til staðar. Töfifaraímyndin er rík í okkur. En til að geta gefið einhverjum eitthvað þarf maður að elska sjálfan sig. HG: Já, maður gefúr ekki vatn úr tómu glasi. Við erum með tvær ímyndir; aðra sjáum við sjálf, hina sýnum við út á við. Þær fara ekki alltaf vel saman. Þegar mér leið hvað verst hafði ég næga viðurkenn- ingu úti í þjóðfélaginu en ég hafði hana ekki hjá sjálfum mér. Ég verð að vera í sátt við sjálfan mig áður en ég get farið að búa með öðrum. Annars er ég bara að biðja um ást og það er allt annað. Það skiptir máli að geta viðurkennt sig á erfiðum augnablik- um. Maður var haldinn alls kyns ranghug- myndum, meðal annars um kynlíf sem svo var reynt að breiða yfir með hroka og rugli. Ég hef upplifað að standa berrassað- ur á stofugólfinu fýrir framan stúlku eftir að ég hætti að drekka og segja við sjálfan mig skelfmgu lostinn: Hvað á ég nú að gera? en eftir á var þetta sætt. EH: Það er oft misskilningur að halda að maður sé svo góður með sig bara af því að maður er í góðri sátt við guð og menn. 1 0 VIKAN 4. TBL. 1990 SB: Ég hef oft upplifað að vera álitinn stórskrítinn fyrir það að líða vel og þora að vera vingjarnlegur við fólk sem ég þekki jafnvel lítið. En ég lenti í fjárhagsvandræð- um og það tók mig tvö ár að kyngja því að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Vænting- ar annarra stjórna stundum lífi okkar, við setjum okkur í ákveðið hlutverk sem við teljum okkur verða að leika. Maður gat verið í þessu töfifarahlutverki útávið þó maður væri algerlega kraminn innra með sér. í dag skiptir mestu máli að vera sjálf- um sér samkvæmur og það er ekki lengur takmark að eiga flottasta bílinn í bænum. Um böm? HG: Konan ræður því hvaða viðhorf barnið kemur til með að hafa til föðursins, sé hann fjarverandi — og það er hrikaleg ábyrgð. En ef við tökum saman við stúlku sem á barn og eignumst svo með henni barn, þá koma okkar heilindi gagnvart þessum málum fyrst í ljós. Karlmenn áttu alltaf að vera vondi aðilinn sem fór í burtu. Svo eru þeir að koma til konunnar sem fékk forræðið, að sækja barnið sitt, vísast í „Nútímakonan setur ekki úrslitakosti.“ „Svelta mann og fleygja svo í hann kexköku sem bragðast þá á við dýrindis máltíð.“ „Geðgóð, kvenleg, góður félagi og umfram allt sjálfstæð.“ gömlu íbúðina þeirra, eru látnir bíða úti þar til barninu er ýtt yfir þröskuldinn — þetta er ískalt. Á fúndi hjá Félagi einstæðra foreldra sögðu 60 konur einum rómi að þetta hefðu þær hreinlega aldrei hugsað út í - að auðvitað væri til fúllt af karlmönnum með tilfinningar, og ég held að við höfum þær þegar allt kemur til alls. FE: Konurnar vilja kannski eignast mann sjálfan - en þær eru ekkert betri en karlarn- ir með það að vilja ekki samþykkja börnin sem urðu til í hinu sambandinu. Um valdatafl? HG: Ég held að valdataflið sé notað al- veg hrottalega mikið í samböndum í dag. Maður kallar þetta stundum viðskiptaást - ég elska þig — ef þú elskar mig, ekkert öðruvísi. Þegar maður getur elskað ein- hvern án þess að vera alltaf að heimta eitt- hvað í staðinn, þá er maður kominn á rétta braut. FE: „Nú er eiginkonan búin að fara út þrisvar og nú er komið að mér.“ Það eru allir að safha stigum í sambúðum rétt eins og áður en til þeirra kemur. Um mannleg samskipti? HG: Það er ekki orð um mannleg sam- skipti í skólakerfinu. Ekki orð um hvernig viðkomandi getur lært að taka á sínum til- finningum. Það er sorglegt til þess að vita að menn þurfi að ánetjast ofneyslu víns til að öðlast þau forréttindi að fá aðstoð við að læra að þekkja sjálfan sig í þessu þjóð- félagi okkar. Um trú? FE: Ég er trúlaus en fallegustu konur sem ég hef séð á ævinni eru nunnurnar í Hafnarfirði sem ég sá myndir af í blaði einu sinni. Það geislaði af þeim einhver gleði og firelsi. Ef þetta er trú þá hlýtur hún að vera það besta í heimi. Það hlýtur að vera gott að geta trúað á eitthvað. HG: Það sem skipti mig mestu máli var að geta notað mitt orðalag til að ræða við minn æðri mátt. Það er ekki nauðsynlegt að kunna einhver vers úr biblíunni til að byrja. Aðalatriðið var að taka sjálfan mig sem hrokagikk og drykkjubolta og fara úr bílstjórasætinu. Ég gerði samning við minn æðri mátt um að hann mætti stjórna Laugavegi 178, 105 Reykjavík, sími 34780 Staður sem fúotið fiefur einróma íof vandíátm í sex vikur. Ég hafði alltaf reynt að stýra samkvæmt mínum vilja en eftir þessar fyrstu sex vikur hef ég stöðugt verið að framlengja samningnum því ég losnaði við margra kílóa poka af bakinu á mér. Er draumadísin til? SB: Já, hún er til og ég fann mína. Ég vissi strax og ég sá hana fyrst að hún yrði konan mín. HG: Ég var lengi að leita einhvers sem ég vissi ekki hvað var en já, hún er til og hún kemur. EH: Ég er kannski með of marga var- nagla. Hún er til í helstu atriðum en aldrei án einhverrar aðlögunar. SG: Ég pæli aldrei í hvort þetta sé sú sem ég á eftir að vera með til æviloka. Ég horfi lítið ffam í tímann með hliðsjón af því hvort þetta sé einhver lífisförunautur sem verði með mér alltaf. FE: Já, engillinn er til og það er sú sem maður er með í það og það skiptið. Ég er á móti því að líta á allt kvenfólk sem ein- hverjar varaskeifúr þar til hin eina rétta birtist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.