Vikan


Vikan - 22.02.1990, Side 17

Vikan - 22.02.1990, Side 17
5KEMMTAMIR Afkvæmi Ómar: Jú, ég á sjö börn, en ekkert þeirra hefúr farið í sama farveg og ég. Ég hef heldur ekkert skipt mér af því eða reynt að beina þeim inn á þá braut. Það verður hver og einn að komast að því sjálfur hvort hann á einhverja möguleika sem skemmtikraftur eða hvort áhugi er fyrir hendi á því. Laddi: Ég er nú líka búinn að vera dugleg- ur við þetta. Á fjögur stykki. Hver veit nema ég nái Ómari í barneignum einhvern tíma. Það er sama sagan hjá mér; börnin hafa lítið fengist við þetta. Það má hins vegar segja að „hin“ börnin mín séu alveg bandóð í þetta. Eiríkur Fjalar, Elsa Lund, Skúli rafvirki, Hallgrímur kokkur, Saxi læknir og allur sá skari sem ég er með í eftirdragi og fe engan frið fyrir. Ég hef lagt mikið upp úr því að þau standi sig vel í bransanum, alltaf að kenna þeim eitthvað nýtt. Þau eru með skemmtisýki. Svona að betur athuguðu máli á ég miklu fleiri börn en Ómar og þau eru alltaf að verða tll. Ég er alveg að verða vitlaus á þessu. Það er mikið á mínar herðar lagt sem uppalanda og maður sofhar sko oft afskaplega þreytt- ur á kvöldin - það get ég sagt ykkur. Frístundir Ómar: Vinna og frístundir hafa alltaf farið saman hjá mér. Ætli við getum ekki sagt að vinnan sé mitt hobbí. Fréttamennska, flugið, bílar og þar með talið rallíið, skemmtibransinn, fótbolti og aðrar íþrótt- ir. Oft er erfitt að greina á milli hvað er vinna og hvað er frístundaiðja. Laddi: Það er lítið um ffí á mínum bæ, ja nema ég fer með Ómari í frí núna um hverja helgi í sýningunni Omladí - Omlada á ms. Sögu. Við siglum þetta suðureftir með skemmtilegu fólki. Þetta eru sko alls ekki viðburðasnauð frí, stöðugt djamm og hasar og maður verður að hafa sig allan við til að vera með í öllu sem er að gerast um borð. Maður kemur dauðuppgefinn heim úr hverju fríi um ólgusjó á Sögu. Ómar: Þarna sérðu, ég fer í ffíið en er samt í vinnunni. Þetta er nú bara svona. Samkvæmt þessu verð ég í ffíi með Ladda og fleira ágætisfólki um hverja helgi fram á vor. Sýningin Omladí - Omlada er annars sett saman með eitt ákveðið sumar í huga. Það er sumarið 1967, ár skemmtiferða- skipanna þegar Regina Maris og fleiri glæsiskútur fóru með hópa af íslendingum í frí. Þetta voru eftirminnilegar og umtal- aðar ferðir og hafi maður farþegana í huga má líkja þessum ferðum við siglingu lítils íslensks samfélags um heimsins höf. Það má nærri geta hvort ekki hafi verið úr nógu að moða þegar við vorum að smíða og setja á svið þessa sýningu. Persónur og leikendur í sýningunni eru um þrjátíu að tölu. Skipstjórinn um borð er Haraldur Sigurðsson, stýrimaður við píanóið er samferðamaður Ómars gegnum tíðina, læknirinn og píanistinn Haukur Heiðar Ingólfsson og Árni Scheving stjórn- ar skipshljómsveitinni. Það er mikið um að vera um borð allt ffá því festar eru leystar og þar til lagt er að landi affur. □ Hva...tvö eintök af Saxa lækni komin fram á sjónarsviðið? Þetta bakaði þeim óneitan- lega nokkur vandræði sem reyndu að hafa stjóm á sýningunni... Frá sýningunni á ms. Sögu, en þar koma við sögu um þrjátiu persónur og Ieikendur. Halli og Laddi í gamlkunnum gervum: Tvær úr Tungunum reyndust leynast um borð á ms. Sögu. „Nei, sérðu þennan jarpa þama...“ 4. TBL 1990 VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.