Vikan - 22.02.1990, Page 27
5PAD0MAR
DC.
qum luött tt fa an fáff bdliqur
Jtontpotln ptus qnr (r ptte
St radt au Ift f?t luy ftnmf la pínrut
Wní fans fjamris (iiHf ftra flttptine.
íjifíer, ber in fcinem friegerifdjeu
Anmpf meljr Sieoe (‘JJreife) bnuon=
getrngen Ijnt, nls fiir iljn gut tonr; fed)fe
uierben iljn in ber 9índ)t ermorben.
ÍRndt, oljne $nrnifd) iiberrnfdjt, unter*
liegt er.
I I 2
lch habe lange gc/«-gei». cinen Quatrain
von so verhángnisvollri’ Dihalt zu veroffent-
lichen. Aber es ist nieuir n"-le Oberzeugung,
daB — wie es auch ihe nnxlerne Astrologie
lehri — der Wille des Menschen t’rei ist,
und die F.inflússe planetarrr, also kosmischer
Natur lcdiglich Tendenzen von grotJcrei oder
geringerer Starke darsiellen. Damit ergibt
sich die Konsequenz der Vermeidbarkeit des
Bosen oder Unglucklichen, zumindest bis
zu einem gewissen Grade, und darum erachte
ich es nicht nur fúr richtig, sondern fur not-
wendig, selbst diese dústere Voraussage des
Sehcrs meinen Lesern nicht vorzuenthalten.
Viellcicht nútzt der Quatrain dem Fúhrer,
wenn cr ihn zu sehen bekommt. Jedenfalls
sollte er sein wunderbar gearbeitetes Panzer-
hemd auch NACHTS tragen.
sem eru talsi’ert meira heill-
andi. Dnépr verður Jyrst til að
gefa eftir vegna gjafa og rök-
semdafœrslu þess sem er býsna
aðlaðandi. 111:95
Árið 1516 gaf Thomas More
út verkið Útópía, sem er talið
nokkurs konar fyrirrennari
þeirrar hugmyndaffæði sem
nú kailast kommúnismi. Dnépr
er fljót í Sovétríkjunum og fell-
ur í Svartahaf. Þann 30. sept-
ember 1988 voru gerðar rót-
tækar breytingar í stjórnmála-
ráði Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, æðstu valdastofnun
landsins. Andrej Gromyko,
forseti Sovétríkjanna, og þrír
aðrir menn, sem voru allir
andstæðingar umbótastefhu
Mikaíls Gorbatsjovs Sovétleið-
toga, misstu sæti sitt í stjórn-
málaráðinu. Gromyko lét jafh-
framt af embætti forseta og var
Gorbatsjov kjörinn í hans stað.
Forsetaembættinu hefur síðan
verið breytt og því veitt sterkt
framkvæmdavald að banda-
rískri fyrirmynd.
í stað Jegors Lígatsjovs, sem
var æðsti hugmyndafræðingur
kommúnistaflokksins og gekk
næstur Gorbatsjov að vöidum,
var valinn Vadím Medvedev.
Medvedev hafhaði rökum
fyrirrennara síns, að per-
esrojka græfi undan undir-
stöðum sósíaiismans. Medve-
dev sagði að lögmál fram-
boðs og eftirspurnar vaeru
homsteinninn að betri
efnahagsstjóm. Medvedev
lagði áherslu á að mismunandi
gerðir sósíalisma í kommún-
istalöndunum væru öllum fyrir
bestu og sagði að sovéskir
framfarasinnar gætu dregið
lærdóm af stjórn efhahags- og
félagsmála á Vesturlöndum.
Hann hélt því ffarn að hið nýja
kerfi sósíalista í Sovétríkjun-
um yrði að gera ráð fyrir hinni
eiginlegu uppbyggingu þjóð-
félagsins, burtséð frá gömlum
stéttarsjónarmiðum og að
„manngildið“ yrði sett skör
ofar stéttarsjónarmiðum í sam-
skiptum Sovétríkjanna við um-
heiminn. Medvedev sagði að
stefht yrði að friðsamlegri
sambúð stórveidanna og sagði
að opnar umræður væru
„sverð sem Iæknaði sárin sem
það ylli“.
Segja má með sanni að þessi
hugmyndafræði sé „talsvert
meira heillandi" en sá hugsun-
arháttur sem ríkt hefúr meðal
Kremlverja undanfarna ára-
tugi. Á hinn bóginn má færa
rök fyrir því að spádómurinn
rætist ekki að fullu fyrr en
valdaeinokun sovéska komm-
únistaflokksins ljúki og fjöl-
flokkakerfi og lýðræðislegum
stjómarháttum verði komið á í
Sovétríkjunum.
Spádómar um hrun
kommúnismans
Annar spádómur, sem birtist
í Framtíðarsýnum sjáenda
og rættist tæpum tveimur
árum eftir útkomu bókarinnar,
er svohljóðandi:
Stjórnarfari
kommúnismans
vikið til hliðar
Á þeim tíma og stað þegar
fiskur kemur í stað kjöts verð-
ur hugmyndafrœði sameign-
arinnar andmcelt. Hinir
öldnu munu spyma við fótum
en verða síðan fjarlœgðir. Þá
verður allt sameiginlegt með
vinum sett til hliðar. PV-32
Þrátt fyrir böngulegt orða-
lag fer ekki milli mála hvað
Nostradamus hefúr í huga.
„Hugmyndafræði sameignar-
innar“ og „allt sameiginlegt
með vinum“ er að sjálfsögðu
kommúnisminn eða sameign-
arstefiian. Nostradamus spáir
því að þessi hugmyndafræði
verði látin víkja til hliðar þegar
harðna fer á dalnum hjá al-
menningi.
Ársins 1989 verður án efa
minnst í sögu mannkynsins
sem ársins þegar alræðisvald
kommúnismans var afnumið í
löndum Austur- Evrópu. Nýrri
samsteypustjórn kommúnista
og lýðræðissinna var komið á
fót í Póllandi. Kommúnista-
flokkur Ungverjalands var
lagður niður og þess í stað
settur á laggirnar jafhaðar-
mannaflokkur að vestrænni
fyrirmynd. Skömmu síðar sam-
þykkti ungverska þingið nýja
stjórnarskrá sem lagði grunn
að fjölflokkakerfi í landinu.
Stjórnvöld í Tékkóslóvakíu á-
kváðu að binda enda á rúm-
lega 40 ára valdaeinokun
kommúnistaflokksins. Boðað
var til frjálsra kosninga og haf-
ist handa um að setja saman
samsteypustjórn kommúnista
og stjórnarandstæðinga.
Einnig hefur sambærileg
þróun átt sér stað í Austur-
Þýskalandi, Búlgaríu, Júgóslav-
íu og Rúmeníu. í öllum þess-
um löndum hefur „hugmynda-
fræði sameignarinnar" verið
„sett til hliðar". Og ástæðan er
ein og sú sama í öllum löndun-
um. Svo vitnað sé í orð Lech
Walesa: „Öll austantjaldsríkin
eru gjaldþrota. Hvar sem það
hefur verið reynt hefur hag-
kerfi kommúnismans engum
árangri skilað."
Falsanir á spádómum Nostra-
damusar hafa nokkrum sinn-
um verið notaðar í áróðurs-
skyni. Hér sést flugrit sem
breska leyniþjónustan lét
varpa yfir Þýskaland á tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Hinn mikilsmetni:
Gorbatsjov eða
Shakarov?
í bókinni Spádómamir
miklu, sem kom út fyrir síð-
ustu jól og fjallar að meginefiii
um spádóma Nostradamusar,
er að finna eftirfarandi
spádóm:
Áður en styrföldin hefst mun
múrinn mikli hrynja. Hinn
mikilsmetni fellur frá. Dauði
hans verður óvæntur og
þrunginn harmi. [Starf hans
verður] ófullgert, stœrsti hluti
þess lifir af. í námunda við
fljótið flekkast jörðin blóði.
11:57
Hugsanlegt er að „múrinn
mikli“ sé Berlínarmúrinn sem
hefur nú verið aflagður. „Hinn
mikilsmetni" gæti verið Andrei
Shakarov en hann lést
skömmu eftir að Berlínarmúr-
inn hætti að þjóna tilgangi
sínum. Jafnvel þó að Shakarov
væri kominn á efri ár var
„dauði hans óvæntur" og sann-
arlega „þrunginn harmi". Styrj-
öldin, sem um ræðir, er þess
vegna ef til vill styrjöld Azera
og Armena í Kákasuslöndum
Sovétríkjanna. Ef þessi túlkun
stenst er „fljótið“ í spádóms-
vísunni Arax-fljót sem skilur
að Sovétlýðveldið Azerbajdzh-
an og samnefht hérað í
norðurhluta írans. Átökin hóf-
ust þegar hópur Azera réðst á
verði á landamærum Azer-
4.TBL1990 VIKAN 27