Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 41
FERÐALÖC5
pokakonan (bag-lady) í Los
Angeles."
Hressið ykkur við! Við för-
um framhjá íbúðarhverfi Mae
West í Ravenswood en allt það
hverfi átti leikkonan. Hún lifði
þar í „penthouse" íbúð þangað
til hún var áttatíu og átta ára
og „guð sagði við hana að
koma og hitta sig“.
Lík Watt Disney
djúpfryst
Greg Smith, 36 ára forstjóri
Grafarferða hf., hefur alltaf ver-
ið í návígi við dauðann, jafnvel
Ekið er framhjá bleiku höll-
inni semjayne Mansfleld bjó
í þar til hún lést í bílslysi.
þegar hann var lítill drengur í
Prairie Village í Kansas. Hann
minnist þess að þegar móðir
hans var að skilja við sagði hún
við hann: „Þú er skrýtinn. Þú
ert meira að segja mjög
skrýtinn." „Þetta var fögur
kveðja," segir Greg.
Forvitni maðurinn Greg
hafði heyrt að lík Walts Disney
hefði verið djúpfryst og þegar
ísdisney World kom til heima-
bæjar hans vonaði hann að
þeir mundu renna Walt frænda
í ísklumpi ffam á svellið. í stað-
inn var það Feiti-Múli á skaut-
um. Það olli honum miklum
vonbrigðum.
Greg hefúr um ævina verið
gæslumaður nashyrnings,
einkabílstjóri fyrir mellurnar á
staðnum og aðstoðarmaður
skottulæknis. Hann hugsar sig
um — hvað fleira? Jú, nemi í
vísindastofnun um dauðann á
Kýpur. „Ég óttast mikið að
vera á lífi,“ segir Greg, „en ég
óttast ekki að deyja. Þegar á
allt er litið er maður aðeins lif-
andi í 70 ár en dauður í billjón
þannig að ég skil ekki hvers
vegna allir eru svona hræddir
Auðvitað er staldrað við í
kirkjugarðinum til að skoða
grafreit Marilyn Monroe.
við að deyja. Ég get varla
beðið.“
Greg gat varla beðið eftir að
koma til Los Angeles þar sem
hann tók þrívíddarmyndir af
legsteini Marilyn Monroe og
fann gröf Stoog Curly Howard
hins þriðja. Honum leið eins
og Heinrich Schliemann þegar
hann var að grafa upp helgi-
dóm Tróju: „Ég verð að viður-
kenna að þetta er ekki eins
spennandi núna og þegar ég
var að þessu í fyrstu og skalf.“
Sannur áttundaáratugskönn-
uður eins og Greg bætir við
verk mikilla og kynlegra
menntamanna eins og Kenn-
eths Anger, EUiotts Stein og
Johns Walters, nema hann hafði
alla Los Angeles að landnámi.
„Ég reifaði þessa hugmynd
við föður minn,“ rifjar hann
upp. „í fýrstu varð hann rauð-
ur og þrútinn og leitaði að
hjartatöflunum sínum en sagði
síðan: ’Ég læt þig hafa pening-
ana ef þú dregur ekki nafh mitt
inn í þetta.’ Allt í lagi, sagði ég,
við höfúm það að samkomu-
lagi.“
Greg hélt áffam með rann-
sóknir sínar á dauðanum,
keypti líkbíl í Kansas og ók
burt. Eina nóttina svaf hann í
líkbílnum. Þegar hann vaknaði
hugsaði hann með sér: „Ég hlýt
að vera fýrsti maðurinn sem
vaknar í líkbíl."
Lenti á pálmatré
og lét lífið
Þessa dagana bíður fólk í
röðum eftir að fá far í líkbíl
Gregs. Það brunar niður Ben-
edict Canyon Drive, sömu leið
og Richard Dreyfúss fór 10.
október 1982 þegar hann lenti
á pálmatré og lét líflð þegar
Benzinn hans lagðist saman.
Þetta gerðist eftir að hann var
fúndinn sekur fýrir dómstól-
um í kókaínmáli. Einnig heyrir
það angistaróp í Dauðra
manna beygju á þeim stað þar
sem Jan Berry, meðlimur í
popp-dúettinum Jan and Dean,
klessukeyrði sportbíl sinn í
apríl 1966 og Iamaðist að
hluta. Áfram er haldið eftir
veginum sem Montgommery
Clift fór nóttina 13. maí 1956,
missti stjórn á bíl sínum og
lenti á rafmagnslínu í botni
dalsins. Lýtalæknar gátu aldrei
lagfært lýtin sem hann hlaut á
fagra andlitinu í því slysi.
t skoðunarferðinní má sjá
húslð sem Frank Sinatra bjó í
þegar syni hans var rænt.
Núna sér Greg aðeins feg-
urðina í hryllingi Hollywood-
borgar. Hann segir: „í hvert
sinn sem fólk spyr mig hvort
þetta sé ekki niðurdrepandi
starf svara ég neitandi. Að
vinna í banka er að mínu mati
niðurdrepandi. Það yrði and-
legur dauði minn.“
í vor mun hann opna versl-
un þar sem seldar verða hljóð-
og myndbandssnældur, ljósrit
af dánarvottorðum, stutterma-
bolir og barmmerki. „Þetta er
ólöglegt,” segir Greg, „en ég er
ánægður með að selja þessa
þriggja kílóa pakka af viðhafii-
ardrasli. Ég er viss um að þetta
verða ffábærar gjafir.“
Er þetta markaðssetning á
dauðanum og hroðalegum ör-
lögum fólks, gróf vanvirðing
og niðurlæging? Eða er þetta
aðeins vísbending um heill-
andi rotna ameríska glysgirni?
Elvis þrífst í gröfinni. Hvers
vegna skyldi Greg Smith ekki
gera það? Hann segir: „Það
eina sem er öruggt að dynur
yfir okkur er dauðinn og skatt-
arnir - og enginn vill sjá hvar
stjörnurnar greiddu þá.“
ísmolar
til hjálpar
Til vökvunar
Setja má 1—2 ísmola í blómst-
urpottana og vökva blómin
með þeim — og þá hellist held-
ur ekki dropi niður.
Fyrir börnin
Ef gefa þarf barni bragðvont
meðal er ágætt ráð að láta það
fá ísmola til að sjúga áður. Þá
finnur það síður vonda bragð-
ið á eftir.
í glösin
Áður en veislan hefist er gott
að vera búinn að taka ísmolana
úr bökkunum og setja þá í
poka. Ef notaðir eru pappírs-
pokar festast ísmolarnir ekki
saman.
Eruegginfersk?
Það er ekki alltaf auðvelt að
muna hvort eggin í ísskápnum
eru nýkeypt eða búin að vera
þar lengi. Hér er aðferð sem
nota má til að ganga úr skugga
um ferskleika eggjanna.
Hrátt egg er sett í glas með
köldu vatni. Alveg ný egg
sökkva niður á botn og leggj-
ast á hlið. Þegar þau eru um
vikugömul rétta þau sig við.
Um þriggja vikna gömul egg
fljóta upp að yfirborði.