Vikan - 22.02.1990, Qupperneq 47
RAUPAÐ 0C5 RI55AÐ
Vodkann fyrstan
Fiskurinn mun enn vera í fyrsta sæti hvað
útflutningsverðmæti íslendinga varðar.
Samkvæmt skýrslum er kísiljárnið í öðru
sæti. Hver skyldi trúa því að vodkinn sé
kominn í þriðja sætið og álið þar með í
það fjórða, eða hvað? Góðkunningi Bogga
(og lögreglunnar) trúir nú ekki svona
fréttum.
Kaupakonur
Raupari minnist þess frá gömium dögum
að hafa heyrt lítinn strák kyrja slagara sem
Ellý Vilhjálms gerði vinsælan á sínum tíma.
Strákur misskildi textann og söng hástöf-
um: „Ég vil fara upp í sveit að kaupa
konur.“ Þessi endurminning kom upp í
hugann þegar viðtal birtist við Helgu
Thorberg og var fyrirsögnin á viðtalinu
þessi: „Konur munu fjárfesta í konum“.
Annars fjallar viðtalið um væntanlegan
banka sem eingöngu mun ætlaður konum,
nokkurs konar kvennabanka.
--Sveifir Hemuumsaon, bankastjóri Landsbankans: -
„Þessar pempíur hafa aldrei
þorað að taka á sig ábyrgð“
Pempíurnar
Hann Sverrir Hermannsson hefur löngum
tekið stórt upp í sig. Um Kvennalistann var
eftir honum haft í blaðaviðtali að „þessar
pempíur hafi aldrei þorað að taka á sig
ábyrgð". Varla hefur þessi fullyrðing hans
fallið í góðan jarðveg meðal kvenna. Raup-
ara verður til dæmis hugsað til hennar
Þórhildar Þorleifsdóttur sem auk þess að
vera margra barna móðir hefur sett upp
hverja stórsýninguna á fætur annarri, bæði
á óperusviðinu og leiksviðinu, og er þar að
auki alþingismaður. Það væri fróðlegt að
vita hvað Sverrir Hermannsson hefði sagt í
viðtalinu ef örlögin hefðu nú hagað því
svo að hann hefði kvænst Þórhildi.
Uppblásnir íþróttaskór
Loftpúðar
Fyrir nokkuð mörgum árum fékk há-
stökkvari þá hugmynd að hækka sólann á
þeim skó sem hann bar á stökkfætinum.
Hástökkvarinn tók stórstígum framförum
og var honum loks bannað að nota slíkan
skó. Nú eru komnir á markaðinn upp-
blásnir íþróttaskór og hefur Boggi reynt
þá með góðum árangri, eins og sjá má á
meðfylgjandi teikningu.
Verðlaunin
Hver bókmenntaverðlaunin á fætur öðr-
um hafa dunið yfir þjóðina frá áramótum.
Stefán Hörður fékk milljón og bókmennta-
verðlaunum Norðurlandaráðs verður út-
hlutað hér á landi innan tíðar. Hjörtur
Pálsson fékk svonefnd Útvarpsverðlaun að
þessu sinni og var það Jónas Kristjánsson
sem afhenti þau við hátíðlegt tækiferi.
Glettilega seigur
Jón Sigurðarson, fýrrum forstjóri Álafoss,
er einn af þessum ungu athafhamönnum
sem hafa skotist upp á stjörnuhimininn
með undrahraða.
4.TBL 1990 VIKAN 45