Vikan - 22.02.1990, Page 48
PÓ5TURIMM
KIEFER SUTHERLAND:
22 ÁRA MEÐ GLÆSTAN FERIL
Kæri póstur.
Ég held svolítið upp á leikar-
ann Kiefer Sutherland og mig
langar að vita eitthvað um
hann. Væri ekki hægt að birta
af honum myndir og segja frá
einhverju um hann?
Bestu þakkir,
Kristjana Magnúsdóttir
Þar sem pósturinn veit að
margir fleiri hafa áhuga á
þessum leikara og við hér á
Vikunni reynum yfirleitt að
verða við óskum lesenda okk-
ar var tekinn saman smápistill
um hann sem birtist hér.
Þegar leikarar eru spurðir
að aldri líta þeir flestir undan
og koma sér hjá því að svara af
því að þeir eru hrœddir við að
viðurkenna hversu gamlir þeir
eru orðnir. Þegar Kiefer Suth-
erland er spurður að aldri lít-
ur hann líka undan en það er
vegna þess að honum er illa
við að viðurkenna hversu ung-
ur hann er. En ferill hans er
orðinn svo glœstur að hann
þarf varla lengur að vera feim-
inn við að viðurkenna að
hann sé ekki nema 22 ára og
hœtt er að minnast stöðugt á
hann sem „son pabba stns" en
sá er enginn annar en hinn
heimsþekkti leikari Donald
Sutherland - eins og sjá má.
Kiefer virðist cetla að feta með
miklum glcesibrag í fótspor
föður sín. Þau hlutverk sem
hann hefur leikið hingað til
hafa verið langt frá því að
sýna Kiefer sem hinn dcemi-
gerða ameríska skólastrák
enda þykir andlitsfall hans -
sem er fremur óreglulegt og
eitthvað skrítið við það (eins og
á pabba hans) — vart til þess
fallið.
Pabbi Kiefers, Donald Suther-
land, ásamt sambýliskonu
sinni til margra ára, Francine
Racette.
46 VIKAN 4. TBL. 1990
Myndin Promised Land fjallar
um lífið í Bandaríkjunum
árið 1969, hippamenning-
una, stúdentaóeirðir og fleira
í þeim dúr.
ílann hefur leikið for-
sprakka í hópi óknyttastráka í
myndinni Stand by Me og
brenglaðan ungling í sjón-
varpsmyndinni Trapped in Sil-
ence, svo ekki sé minnst á
höfuðpaur ungu vampíranna
í The Lost Boys, geðveikan
morðingja í Perfect Stranger,
viðkvœman einfara í Promised
Land og diskóbrjálaðan við-
skiptamann í Bright Lights, Big
City. Þetta er ekki svo slakur
afrekalisti hjá strák sem hœtti í
grunnskóla enda er varla
hœgt að segja að Kiefer hafi
verið venjulegur unglingur.
Þegar hann var 15 ára reikn-
aði hann út hvað hann myridi
grceða og hvetju hann hefði
að tapa ef hann hcetti í skólan-
um og spreytti sig upp á eigin
spýtur.
En voru foreldrar hans
þessu ekki mótfallnir? Hann
verður undrandi á svipinn og
svarar svo,- „Þetta var ekki
þannig mál að ég gceti hringt
til þeirra og talað um það í
síma. Svo ég fór bara. Þau
höfðu engan valkost. Mér
fannst heimavistarskóli ekki sá
staður sem mig langaði að
vera á og þegar öllu er á botn-
inn hvolft er það mitt líf sem
hér er um að rœða. Ég var
samt alls ekki að reyna að
hefna mín á þeim heldurþvert
á móti að sýna þeim að ég
gceti staðið á eigin fótum. “
Hann byrjaði á því að fá sér
vinnu sem kokkur á skyndi-
bitastað í Toronto (þitsur voru
hans sérgrein) og fínþússaði
aðeins aldur sinn til að fá
starfið. Hann leigði sér her-
bergi með hitunarþlötu og
klósetti og fann sér umboðs-
mann. „Ég blómstraði í starf-
inu á veitingastaðnum, “ segir
hann. „Þar fann ég frelsi sem
ég hafði aldrei uþþlifað fyrr.
Pabbi hjálþaði mér með þen-
inga til að bytja með en innan
árs var ég farinn að þéna það
vel að ég gat séð um mig
sjálfur."
Ekki nóg með að hann vceri
búinn að verða sér úti um
hlutverk í mynd, BayBoy, þeg-
ar hann var 16 ára heldur var
það ekki ómerkara en svo að
hann lék annað aðalhlutverk-
anna á móti Liv Ullman. „Ég
var svo uþþ með mér að ég var
viss um að þetta vceri það eina
sem til þyrjti; ein góð mynd og
heimurinn félli að fótum mér. “
Kiefer Sutherland sem for-
sprakki ungu vampíranna í
The Lost Boys.