Vikan - 17.11.1938, Blaðsíða 7

Vikan - 17.11.1938, Blaðsíða 7
Nr. 1, 1938 VIKAN 7 Foreldrar Per Albin. Carl Hansson, múrari, og Kjersti, kona hans, sem störfum hlaðin, tókst að gera heimili þeirra hjóna að fyrirmyndar- ' heimili, þrátt fyrir mikla fátækt. á því, hvernig hún, þrátt fyrir alla sína útivinnu, gat gert heimili okkar að því fyrirmyndarheimili, sem það var. Jóhann, elzti bróðir minn, hóf skólagöngu sína skömmu eftir að ég fæddist, og auðvitað vorum við Sigfreður, bróðir minn, oft látnir sjá um okkur sjálfir. Við lékum okk- ur allan liðlangan daginn, svo að tíminn leið fljótt, en öðru hvoru fengum við að fara út á akur með mömmu, og höfum sennilega verið fúsari til að hjálpa henni en hitt, að við gerðum nokkurt gagn. Ekki man ég vel, að hverju við lékum okkur. Við hljótum að hafa verið orðnir nokkuð stálpaðir, þegar við fórum að skoppa gjörðum, hleypa eldfjörugum reiðprikum, búa til flugdreka, sem við svo sendum hátt í loft upp, veiða hornsíli, tína öx á slegn- um ökrum, reka kýr á beit og hjálpa slátr- aranum, bæði við að sækja kepnur og eins við sjálfa slátrunina. Við vorum engin undrabörn, sem byrja snemma á því að læra og undirbúa sig undir opinber störf, heldur venjulegir, góðir, litlir drengir. Og bernska okkar var eins og bernska barna fátækra þorpsbúa er yfirleitt. Börnin í héraðinu fóru að ganga í skóla bæjarins, þegar þau voru sex ára, nema nokkur börn heldra fólks- ins, sem voru send í skóla til Málmeyjar. Frá fyrstu skólaárunum minnist ég meðal annars kennslukonu í fyrsta bekk, sem skemmti sér stundum í tímunum við að kveikja á eldspýtum, og hún gat látið þær brenna alveg upp með því að flytja þær hendi úr hendi. Þannig leit Per Albin út, þegar hann var tvi- tugur. Staðfestulegur unglingur. Þegar ég kom upp í efri bekltina, var ég mest hjá aðstoðarkennurum. Kennslu- konan okkar hét Johansson og kunni hún bersýnilega betur við sig í Stokkhólmi en í Fosie og fól tímunum saman aðstoðar- kennurunum kennsluna. Ég man eftir nokkrum þeirra. Einn þeirra var mér mjög hliðhollur, og fékk ég aukatíma hjá honum í fagi því, sem þá kallaðist blátt áfram reikningur, fyrir það, að ég bar upp til hans eldivið. Því miður leiddi kunningsskapur minn við hann til þess, að hann kom sér í fæði hjá okkur, sem varð aðeins til þess, að móðir mín hafði enn meira að gera en áður og átti enn erfiðara með að láta peningana hrökkva til heimilisþarfanna. Að minnsta kosti er mér það vel kunnugt, að faðir minn var mjög ánægður, þegar aðstoðar- kennarinn fór úr bænum, þó að hann hefði Friðþjófssögu á brott með sér, sem þó var dýrmætasti fjársjóðurinn í litla bókasafn- inu hans. Kennarinn, sem var eftirmaður hans, var mjög drykkfelldur og gat illa látið stúlkurnar í skólanum í friði. Hann var oft sýnilega undir áhrifum áfengis í tímunum. Einu sinni, þegar hann var í þessu ástandi, var hann að leika á orgelið, en hafði ekki augun af stúlkunum, hljóp ég ásamt nokkrum öðrum drengjum út úr kennslustofunni og beint til formanns skólaráðsins, sem við fengum með okkur í skólann, til að sýna honum kennarann okkar í allri hans dýrð. Bróðir minn hefir kallað þetta fyrstu ,,kröfugöngu“ mína. Þetta leiddi til þess, að báðir bekkirnir fengu frí, en ég held, að kennarinn hafi ekki verið rekinn, fyrr en hann varð upp- vís að enn stærra afbroti. Það var því enginn furða, þó að kennsl- an væri ekki upp á marga fiska. 1 tveimur efstu bekkjunum var kennari, sem Linderoth hét, og var hann bæði ágætur kennari og hélt góðri reglu. Hann hefir fyrir skömmu talað mjög vingjarn- lega um mig sem nemanda sinn. Mér þætti gaman að vita, hvort hann man ennþá eftir því, þegar ég var látinn „sitja eftir“, af því að upp komst, að ég var að búa til vindlinga. En til þess hafði ég dagblaðs- snepla, sem ég vafði utan um tóbak, og Hinn látni foring-i sænskra jafnaðarmanna, Branting, situr fyrir borðsendanum. Á bak við hann stendur Per Albin, er síðar leysti Branting af hólmi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.