Vikan - 17.11.1938, Blaðsíða 16

Vikan - 17.11.1938, Blaðsíða 16
16 VIKAN Nr. 1, 1938 'T'ÍZKA VETRARINS er fjölbreytt, bæði hvað efni og snið snertir. Venju- legir dagkjólar eru sléttir og einfaldir, skreyttir með útsaum, leggingum, krögum og blómum. Þykir fara vel að hafa sterka liti saman. Grænir og bláir litir eru mjög í tízku (ofnir saman). Einnig eru mikið notuð allavega lit ullarefni — skozk og ein- lit. Talsvert er af einlitum kjólum með skozkum utanyfirtreyjum. Þess má geta, að rennilásar eru ekki eins áberandi og þeir hafa verið. Ermar eru undantekningarlaust langar, sléttar og oftast þröngar fram. Kjólpilsin eru flest skáskorin, nokkur með fellingum allt í kring. Þá eru pils og blússur mikið notaðar — ýmist pils með böndum yfir axlirnar, og eru axlaböndin útsaumuð (Tyrolabönd). Við þessi pils eru yfirleitt blússur úr skozku eða öðru sterklitu efni, rósótt eða einlitu. — Þetta eru sportblússur með skyrtuermum. Við síð pils, sem einnig eru mikið not- uð, eru blússur úr einlitum, þunnum „crepe“-efnum. Þær eru bæði víðar niður á mjaðmir með belti í milli og stuttar, ryktar í mittið með belti. Síðu pilsin eru skáskorin, þröng að ofan og víð að neðan í 2—4 stykkjum. Húsráð: Svarta rúskinnsskó á að setja yfir gufu og bursta með stálbursta. Ef það dugar ekki, má nudda þá með olíu áður en þeir eru burstaðir. Flónel, sem hefir upplitast í þvotti, nær sínum upprunalega lit, ef það er skolað úr ediksvatni. Rautt hár lýsist, ef það er greitt dag- lega upp úr vínanda. Postulín má líma saman með kollodium, og við það verður það svo traust, að það er óhætt að þvo það úr mjög heitu vatni. Pönnur er gott að hreinsa með því að setja á þær salt, hita þær og nudda þær svo vel með pappír. Regnhlífar má ekki leggja saman fyrr en þær eru vel þurrar, annars fúnar í þeim efnið. # Mál hjartans er alheimsmál. Menn þurfa aðeins að vera tilfinninganæmir til þess að geta skilið það og talað. — Duclos. * Sú vinátta, sem sprettur af ást er meira virði en ástin sjálf. — Gricoust. Hárgreiðsluf réttir: Síðasta og þá auðvitað æðsta hár- greiðsluboðorðið er. að greiða hárið upp, líka í hnakkanum, en uppi á höfðinu er það greitt í mjúka, en ekki of reglubundna lokka. Nú eru einnig komnar í tízku allskonar spennur, kambar og ,,klips“, því slíkt er oft nauðsynlegt til að halda lokkunum föst- um. Auðvitað er þetta helzt notað á kvöld- in, en einfaldri greiðsla á daginn við vinnu. Svona — ekki svona. ekkisuvrux * Ef mjótt er á milli augnanna í yður, þá skuluð þér greiða hár ið upp frá enninu, en þér megið ekki hafa ennistopp, þó það geti annars farið yður vel. Kjólinn skuluð þér hafa fleginn, en umfram allt ekki kringlótt hálsmál. Ef þér er- uð stór- fættar, þá skuluð þér forðast Ijósa, áber- andi skó. Einfaldir, dökkir skór fara lang bezt á fæti. Notkun andlitssmyrsla: Til þess að viðhalda hreinu og heilbrigðu hörundi, þarf að hreinsa húðina vandlega kvölds og morgna. Hreinsunarsmyrslin mega ekki ganga inn í húðina, heldur eiga þau að liggja utan á henni og draga í sig andlitsduft, ryk og óhreinindi. Hreinsun- arsmyrslin eru tekin burt með andlitsbað- vatni eða volgu vatni. Ef smyrslin eru þvegin burt með vatni, og- um feita húð er að ræða, skal nota nærandi smyrsli, er gera húðina eðlilega feita. Einnig má nota smyrslin undir andlitsduft. Notkun dag- smyrsla fer nú mikið minnkandi, með því að fegurðarsérfræðingar hafa komizt að raun um, að þau hafa mjög skaðleg áhrif á húðina, þurrka hana og stífla svitahol- urnar. Venjuleg fótasnyrting: Fæturnir eru einna mest notuðu og líka mest misnotuðu hlutar líkamans. Þeir verða fyrir mikilli áreynslu, og er því mikil hætta á, að þeir ofreynist. Þess vegna er sérstök ástæða til að hirða þá vel. Fæturnir eru fjarstir hjartanu, og er blóðrásin því hægari þar en annarsstaðar. Því er það mikilvægt atriði að þrengja ekki um of að fótum og fótleggjum. — Þröngir sokkar, sokkabönd og skór hindra eðlilegar hreyfingar. Skókreppa veldur líkþornum. Fæturnir verða fyrir ryki af götum, gólfum og teppum, sem smýgur í gegn- um skó og sokka og inn í svitaholur húð- arinnar, sem eru fleiri á fótunum en nokk- urum öðrum hluta líkamans. Fæturna þarf því að þvo daglega. Á fegurðar og tízkusíðu VIKUNNAR munu framvegis verða birtar nýjar brúðhjónamyndir. Hér sjáið þið Bárð fsleifsson, arkitekt, og brúði hans: Unni Arnórsdóttur, Guðmundssonar, skrif- stofustjóra hjá Fiskifélagi fslands. Ungu hjónin búa á Flókagötu 14.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.