Vikan


Vikan - 12.01.1939, Síða 10

Vikan - 12.01.1939, Síða 10
10 VIKAN Nr. 2 1939 — Af hverju? spurði Chicot undrandi. Má ég ekki raula það, sem mér sýnist? Eiga allir endilega að syngja „Tricotrin“ ? — Það var revy, skiljið þér, sem gekk um alla París. — 1 raun og veru held ég (hélt hann áfram, því skyndileg reiði Spánverjans hafði gert honum hverft við), að eina ástæðan til þess, að ég fór að raula „Pierr- ot“ hafi verið sú, að ég var að hugsa um, hvort Pétur B. myndi koma hingað í kvöld. Hann kallar þetta alltaf við dyrnar: „Opn- aðu fyrir mér dyrnar þínar, ef þú elskar guð“. Ég sagði það í hugsunarleysi Medina hló. Afsakið, sagði hann. Ég er dauðþreyttur. Taugar mínar eru eins. og fiðlustrengir. En ég mun vinna verð- launin — ég, Emanuele Silva de Medina — fyrstu verðlaun á sýningunni, sagði hann brosandi. — Þú mátt ekki gleyma Pétri B., sagði ég- Og við vissum allir, að það var aðeins um þessa tvo menn að ræða, því þeir voru risarnir meðal ungu málaranna. — Hefirðu séð myndina hans, Don? — Já, sagði hann. Hún er ekki fullgerð. Hún verður aldrei . . . Hann þagnaði skyndilega og bætti svo við eftir nokkra þögn . . . eins góð og mín. Rétt í þessu kallaði Chicot frá glugg- anum: — Komið þið, horfið á himininn, hvernig hann logar. Sólin var gengin til viðar eins og al- heimur. Sjóninni verður ekki með orðum lýst. Við gengum að glugganum, Spánverj- inn og ég. — Stórkostlegt, muldráði Chicot. — 1 sveitinni minni segir fólk, að þetta viti á morð eða slysfarir. — Fífl! hrópaði Medina reiðilega. Það eru drýgð morð á hverjum degi. — Það er mörg heimskan sögð í sveit- inni, sagði ég. Allt í einu rétti Spánverjinn upp fing- urinn: — Bíðið við! Hlustið! Kvöldblöðin voru að koma upp frá Bouleward de Clichy. Við heyrðum köllin nálgast, hás og óstöðvandi, eins og í hræ- fuglum, sem finna nálykt. — Hvað er það, sem þeir hrópa? Hvað eru þeir að hrópa, spurði Spánverjinn og teygði sig út úr glugganum. Chicot dró hann til baka. — Komdu, sagði hann. M;<T langar ekk- ert til að hirða þig upp af gangstéttinni þama niðri. Blöðin ? Það er einhver glæpa- maður, sem hefir myrt lögregluþjón, ef mig grunar rétt. Við fórum allir inn í herbergið og sett- umst niður. Medina vafði órólegur aðra sigarettu. Það var eins og við værum að bíða eftir einhverju — einhverju illu og óhjákvæmilegu. Spánverjinn talaði fyrst. — Lánið mér tvö sous, sagði hann önuglega. Ég ætla að fara niður og kaupa blað. — Tvö sous! Við hlógum. — Deschanel, vinur vor, hefir ávísun fyrir málverk, sagði Chicot. — Ég býst við, að hún sé meira en tveggja sous virði. Viltu taka hana? En tvö sous, herra minn! Hvað dettur þér í hug? Við emm lista- menn í Montmartre. Nú voru blaðadrengirnir á götunni fyr- ir utan. Ég gekk að glugganum og hlust- aði. — Hvað er það, Deschanel? spurði Spánverjinn. — Þey! sagði ég og hallaði mér út úr glugganum. — Það er listamaður í Montmartre, sem hefir framið sjálfsmorð, sagði ég, þegar ég heyrði, hvað þeir hrópuðu. — Hvað? hrópaði Chicot. Spánverjinn kinkaði kolli, stóð upp og teygði úr sér. Deschanel segir, að það sé listamaður í Montmartre, sem hafi tekið inn eitur, svaraði hann brosandi. Hver skyldi það geta verið? En það hafði ég alls ekki sagt. — Eitthvert vesalings-grey, sem var orðinn leiður á að láta hafna verkum sín- um, varð mér að orði. Medina gekk að dyrunum og aftur til baka. Þreytublærinn var horfinn. Ef það væri Sindon? sagði hann. Það er einkennilegt, að ég var að hugsa um það sama, og Chicot sagði mér seinna, að honum hefði einnig dottið þetta í hug. — Ómögulegt! sagði ég. Það virtist al- veg óhugsandi, að þessi ágæti Pétur B., hugrakkur, glaðlyndur, fílefldur, viður- kenndur málari, fullur lífsgleði og með- aumkun með hinum óhamingjusömu, gæti þurrkast þannig út. — Ef — sagði Medina aftur. — Þá missti okkar htli heimur í Mont- martre góðan vin, sagði ég. — Og þú ynnir verðlaunin á sýning- unni, bætti Chicot við. Spánverjinn hló lágt. En það nær engri átt, sagði hann. Þetta er einhver ræfils- konfektkassamálari, sem hefir orðið það á að taka inn eitur. Hann fór að raula einn af suðrænu söngvunum sínum. Einhvernveginn gat ég ekki fellt mig við, að Medina væri mér sammála, og sagði: — Þegar slíkt kemur fyrir, er alltaf hægt að hugsa sér, að það sé maður í ann- arri borg. Maður skilur ekki, að það geti verið maðurinn, sem sat í gærkveldi þar, sem Medina situr nú. Spánverjinn reis snögglega á fætur og bað okkur í guðanna bænum að kveikja á gasinu, sér væri svo illa við þetta myrk- ur. — Chicot var alltaf brot úr heimspekingi. Spumingin í tilgátum ykkar, sagði hann, um leið og hann bar eldspýtu að gasinu, er sú, hvað yrði um svipinn hans Péturs B. — Svipinn hans Péturs B.! hrópaði Medina. Hvem djöfulinn-------- — Vanderloo, meinti ég, svaraði Chicot. — Ó, sagði ég, Vanderloo! Hann er í Barbion. Hann kemur ekki fyrr en eftir mánuð. Það myndi fá ákaflega mikið á hann. Drengnum finnst enginn í heimin- um jafnast á við Sindon. Þið vitið, hvernig hann apar bæði látbragð og klæðnað eftir honum! — Jæja, sagði Spánverjinn, — ég verð að halda áfram að vinna. Hann brosti. — Við höfum sannarlega talað um geigvæn- leg mál. Geturðu ekki gefið mér hressingu áður en ég fer, Deschanel? Ég náði í vín og glös, tvær krukkur og eitt vínglas með löngum fæti í viðhafnar- skyni við Medina. — Skál verðlaunamálarans á sýning- unni! sagði Chicot. — Af öllu hjarta! bætti Medina mjög svo hátíðlega við og lyfti glasi sínu. Allt í einu heyrðist þmmandi hávaði utan úr stiganum: Ran-tan-tan, tan, tan! Pétur B.! Það snart taugar okkar vegna samtals- ins rétt áður. Það kom líka við Medina, það veit trúa mín! Maður hefði getað haldið að hann væri að fá krampakast. Andlitið varð öskugrátt undir skegginu og varirnar eins og blóðrautt sár. Eldurinn í augum hans slokknaði. Hann hélt glasinu kyrru hálfa leið upp að munni sér, þar til fótur þess brotnaði í hendi hans, og blóðið blandað víni lak niður á gólfið. Chicot leit á hurðina. Við erum heppnir! sagði hann. — Hann verður kominn eftir augnablik. — Kominn eftir augnabhk! endurtók Medina, eins og maður, sem talar upp úr svefni. — Kominn eftir augnablik! Nei, nei! Við verðum að stöðva hann! Allt í einu þagnaði hann, sem steinrunn inn væri. Sjálfur hafði ég séð það, sem fram fór. En það var röddin, sem kom Chicot í skilning um, að hér var maður í voðalegri taugaæsingu. Spánverjinn sneri andlitinu á móti ljósinu. Hann var álitum eins og myndastytta. Hann hélt ennþá á brotna glasinu í hægri hendi. Andlitið var eins og maður gæti hugsað sér sál í helvítiskvölum. Og í kyrrðinni nálgaðist skóhljóðið hægt í stiganum. Það yrðu kannske tíu sekúndur þar til Pétur B. kæmi upp á stigapallinn. Nú sá- um við, að það var lífsspursmál fyrir Medina að vita, hvort það væri Sindon eða ekki, sem var að koma. Við sáum jafnvel veika hugrekkis-drætti koma á andlit hans. Það var eins og hann segði huggandi við sjálfan sig: Þetta er ekki Sindon! Þetta getur ekki verið Sindon! Á stigapallinum staðnæmdist skóhljóð- ið. Ég heyrði að komumaður steig örlítið aftur á bak til.þess að búa sig undir að stökkva. Síðan stökkið, byltan og upphróp- unin í hálfum hljóðum. — Pétur B.! hrópaði Chicot, undrandi yfir hræðslu Spánverjans. — Pétur B. eða svipurinn hans! Allt í einu fór Medina að hágráta, og hljóp til dyranna. Framh. á bls. 17.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.