Vikan


Vikan - 12.01.1939, Qupperneq 14

Vikan - 12.01.1939, Qupperneq 14
14 VIKAN Nr. 2 1939 Tízkan er kröfuhörð, ef henni á að fylgja út í yztu æsar. — Hér verður lítið eitt minnst á fóta- bragð kvenna. Það er mikið undir því komið, að sokk- arnir fari vel og hælarnir á skónum séu óskældir. Kona, sem er í snúnum sokkum og á skökkum og skældum hælum, getur aldrei verið vel til fara. 1 samkvæmum er sjálfsagt að vera í há- hæluðum skóm — þeir eru óneitanlega fallegastir — en það er ekki hægt að ganga í þeim, hvar og hvenær sem er. Nú er í tízku að ganga í úthverfum sokkum, og eru margar tegundir af sokk- um ofnar með það fyrir augum. Auðvitað er hægt að ganga í úthverfum sokkum, þó að saumurinn komi utan á, ef sokkarnir eru þunnir, en það liggur við, að af þessu sé meira gert en góðu hófi gegnir, því að oft standa endar og tjásur út úr sokkun- um, og þykir það ekki beint fallegt. Nú sjást varla ullarsokkar hér á landi, og er þó þörfin fyrir þá hvergi meiri en einmitt hér. Erlendis ganga stúlkur venju- lega í ullarsokkum allan veturinn, nema í samkvæmum. # rJjUílcud(m.s áxsLvis. Fyrsta sporið í Lambeth Walk. Rakir fœtur. Þessum leiða kvilla fylgir oft óþægileg svitalykt, sem stafar frá hörundskirtlun- um. Hann veldur óþægindum og vanlíðan. Þetta þarf ekki að stafa af óþrifnaði, held- ur — eins og það gerir venjulega — af ofþreytu í fótunum. Stafi þetta af veikl- un í fótunum, er nauðsynlegt að fá rétt ,,innlegg“ í skóna. Ef fótrakinn stafar af ofþreytu er ágætt að þvo fæturna úr heitu vatni með grófu salti í og sótthreisandi sápu, nudda þá vandlega í 10-—15 mín., skola síðan úr köldu vatni, þurrka þá svo og nudda lítið eitt aftur. Eins er gott að strá sótthreinsandi dufti á fæturna og í sokkana. Um sokka þarf að skipta daglega og oft um skó. Ef mikil brögð eru að fótraka, er nauð- synlegt að snúa sér til fótsnyrtingakonu til frekari aðgerða. # Sá, sem hefir vit á að skýla heimsku sinni, er ekki heimskur. * Kærleikurinn er oft líkur grautnum. Fyrstu skeiðarnar of heitar, en þær síð- ustu of kaldar. Svona ekki svona. Ef þér eruð hálslangar, strona þá skuluð þér ekki ganga með hatt, sem situr aftur í hnakkanum, heldur flatan hatt með nið- urbrettu barði. Hárið skuluð þér hafa sítt. I flegn- um kjól megið þér ekki ganga. ekki sirona. ekki siron* Ef þér hafið ljóta húð, skul- uð þér forðast áberandi hatta, sem eru hnýttir með böndum undir hökuna. - Hatturinn þarf að vera látlaus með beinum lín- um. Þér skuluð mála varirnar laglega og bera sterkan kinnafarða á kinnarnar, en til litarins verðið þér að vanda. Önnur augnabrúnin má ekki koma hærra en hin, þvi að þá sýnist andlitið skakkt. Klæðn- aðurinn á að vera blátt áfram, — forðist allar rykkingar og fellingar. sirona-r Húsráð♦ Blekblettir nást bezt úr lérefti með því, að drepa blettinum niður í brædda tólg, og þvo síðan tólgina burtu í heitu vatni. * Kaffi- og súkkulaðiblettir nást vel úr með því að þvo þá sem fyrst úr brennivíni. * Skeiðar, gaflar og aðrir hlutir úr silfri eða nýsilfri, hreinsast vel í vatni, sem jarðepli hafa verið soðin í. Dúkur og fatnaður, sem litaður er, læt- ur síður lit, ef hann er þveginn úr vatni, sem hrá, brytjuð jarðepli hafa legið í. * Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Inga Jónsdóttir og hr. Guðlaugur Guðjónsson, loftskeytamaður. Heimili þeirra er á Sellands- stíg 16.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.