Vikan


Vikan - 12.01.1939, Side 18

Vikan - 12.01.1939, Side 18
18 VIKAN Nr. 2 1939 Eg er barn eiinnar aldar — Framh. af bls. 5. ið. En þegar mér var ekið inn á skurð- stofuna í Landakotsspítalanum, þá blasti við mér draumsjónin, sem ég hafði séð eftir sullaveikisuppskurðinn. Er þetta ekki undarlegt? Kristján Sveinsson augnlæknir skar í augað á mér og það var hann og enginn annar, sem ég sá í draumnum. Eftir að ég kom á Elliheimilið, var ég einu sinni milli svefns og vöku — og þykir mér þá vera komið við öxlina á mér, svo að ég lít upp. En hvem haldið þið að ég hafi séð nema Guðmund heitinn Magnússon í hvíta sloppnum sínum, eins og þegar hann vitjaði mín á spítalanum eftir uppskurð- inn. Já, heimurinn er fullur af undarlegheit- um. Þess vegna segi ég: Það þýðir ekkert fyrir fólk að fela sig. Þeir, sem vinna myrkraverkin, mega vita það, að það er til einhver alvitund, sem allt sér og skilur og metur eins og það er vert. Enda sagði Jesús það fullum fetum — og hann vissi sínu viti, maðurinn sá. Hann fylgdist vel með og skildi mannssálina, þó mennirnir skildu hann ekki. Ekki var hann að kvelja sig. Hann át og drakk eins og hann þurfti, — enda kölluðu þeir hann átvaglið og ísvelginn og krossfestu síðan. Það er ljót saga, það. En alltaf finnst mér eitthvað skrítið, að fyrsta kraftaverkið, sem hann gerði, skyldi vera að breyta vatni í vín. Eiginlega er ég á móti víni, nema þá svo- htlu tári út í morgunkaffið, ef ég er sár- þyrst. Ég er svo oft þyrst á morgnana. Ekki veit ég af hverju það er, — en það ágerist með aldrinum. Eg vakna alltaf snemma á morgnana — þetta um klukkan þrjú. Meðan ég var með rótgróinn haus- inn og þykk beinin, gat ég sofið miklu lengur. En höfuðkúpan þynnist með aldr- inum, las ég einu sinni eftir frönskum vís- indamanni. En verst af öllu þykir mér, ef ég hfi það að tapa svo sjóninni, að ég ekki geti lesið. Það hafa löngum verið mínar friðar- og gleðistundir að lesa, — og þó stráka- apakettimir og stelpufíflin séu stundum að stríða mér á því, að ég trúi öllu, sem prentað stendur, þá er það ekki satt. Ég hefi mínar skoðanir, hvað sem hver segir — líka um þetta unga fólk! Það em börn sinnar aldar — og ég er bam minnar aldar. Munurinn er nú ekki annar. En sá aðstöðumunur veldur stundum misskiln- ingi, ágreiningi og sorgum. Því geta ungir ■og gamlir aldrei setið að sárshöfði. — Voruð þér aldrei trúlofuð? — Ó-nei. Það var ekkert. Ekki nema svona eins og gerðist og gengur í sveit- inni. En sorglega tókst þeim til að sækja bölvaða pestina — ég á við hémahérna doðakarakúlsauðfjárpestina. Það var nú ljótanið! S. B. Störtebecker sjóræningi. Framh. af bls. 8. jöfnunarmenn, af því að þeir skiptu her- fanginu á milli sín samkvæmt mjög ströng- um lögum, sem sett vom um leið og þess- ir flokkar urðu að skipulögðu þjóðfélagi, smáríki á hafinu. Gamlar sögur frá þessum ámm lýsa greinilega þeim hryllingi, sem gripið hefir skipshafnir verzlunarskipanna, þegar skip- um Vitaliebræðranna með svörtum fánum skaut allt 1 einu upp við hliðina á þeim, og vopnaðir ræningjarnir stukku um borð og myrtu hvern mann. Það er sagt, að Störtebecker hafi haft aðalaðsetursstað sinn í hinum auðuga bæ Visby á Gotlandi. Þaðan þyrptust skip hans yfir Eystrasalt, og síðar um Kattegat út á Norðursjóinn. Störtebecker ríkti þannig á báðum höf- unum. Mestan usla gerði hann í Málmey og Björgvin, og svo mikil var dirfska hans, að hann sigldi suður Elbefljótið og fór á land í Hamborg. Herfang hans og f jármunir vom geysi- mikhr. Og sagt er, að hann hafi, rétt áður en hann var tekinn af lífi, boðið sér til lífs, keðju úr hreinu gulli, sem næði í kringum Hamborg. Þessu var synjað, því að það var álitið að fjársjóðirnir mundu finnast, sem og varð, að minnsta kosti eitt- hvað af þeim. I annálum í Stralsund er sagt frá því, hvernig eitt verzlunarskip bæjarins hafi ráðist á eitt skip Störtebeckers og tekið 100 af mönnum hans til fanga. Áhöfnin óttað- ist þá svo, jafnvel þó að þeir væru fang- ar, að hún setti þá í tunnur, boraði gat á hlemmana fyrir höfuðin, raðaði þeim í lest- ina og sigldi heim. Tunnurnar vom hik- laust fluttar á aftökustaðinn, þar sem böð- ullinn hjó höfuðin af ,,tunnunum“. En þó að það kæmi oft fyrir, að hópur Vitaliebræðra væri tekinn, þá gengu alltaf nýir hópar undir svarta fánann. Það varð að ná í foringjana, Störtebecker og Gödeke Michel, ef útrýma átti þessu illþýði. Albrecht konungur var alltaf fangi Margrétar drottningar. Að lokum lét hún hann þó lausan, eftir endalausa samninga, og eftir að ríkin þrjú höfðu gengið henni á hönd (Kalmar-sambandið), samdi hún frið við Hansastaðabæina, en þá fengu Vitaliebræður engan frið. Bæirnir og Margrét drottning komu sér saman um að útrýma þeim, og það varð til þess, að þeir urðu að leita til f jarlægari staða. Að lokum settust þeir að 1 Austur-Fríslandi. Þar ríktu margir höfðingjar yfir sterkri og djarfri þjóð. Þeir áttu sí og æ í deilum sín á milli, og í þessu landi, þar sem var nóg af felustöðum, bæði á meginlandinu og í eyjunum fyrir utan, var tekið við Störtebecker opnum örmum, því að hver höfðingi hélt, að hann gæti látið hann hjálpa sér á móti hinum. England og Holland fóru verst út úr þessum ránum, og lá við stríði á milli Englands og Hansastaða. Ríkarður H. hélt, að Hansastaðir væru í sambandi við Störte- becker til að gera verzlun Englands tjón, og gaf skipanir um að hertaka öll Hansa- staðaskipin, hvar sem næðist í þau. Frísnesku höfðingjarnir höfðu látið ræn- ingjana hverfa úr landi sínu af ótta við Hollendinga, og ræningjarnir settust að á Helgolandi og eyjunni Neuwerk fyrir utan Cuxhaven, þar ríktu þeir yfir mynni Elbe og Hamborg. Vorið 1402 sendi Hamborg vel útbúinn herflota á móti þeim. Hann leit út eins og verzlunarfloti, svo að Störtebeck var- aði sig ekki á honum. Hann var tekinn, ásamt 70 beztu mönnum sínum. Á ströndum Eystrasalts og Norður- sjávar, urðu þessir menn að sagnhetjum, áður en langt um leið. Hjálrú og kvikmpda-stjornur. Til að byrja með má athuga kenjar og hjátrú hinnar heimsfrægu Gretu Garbo. Garbo vill hvorki sjá eða tala við aðal- mótleikara sixm fyrr en sama dag og myndatakan byrjar. T. d. er sagt frá því, að hún hafi forðazt Charles Boyer eins og heitan eldinn, meðan stóð á undirbún- ingi myndarinnar „Conquest“ (Landvinn- ing).) Hún trúir því fastlega, að hún verði að nota belti við að minnsta kosti einn búning í hverri mynd. Einnig trúir hún því, að það boði ólán að drepa köngurló, og að sjá svartan flækingskött á leið sinni. Hún svarar aldrei í síma fyrr en hún hef- ir talið upp að tíu! Hinn skemmtilegi gamanleikari Arthur Treacher játar það, að hann sé sá hjá- trúarfyllsti karlmaður, sem hann hafi nokkurntíma heyrt nefndan. Ef hann rek- ur olnbogan í vegg, þá slær hann alltaf hinum olnboganum við sama vegg, af ótta við að verða annars fyrir einhverjum von- brigðum eða óheppni. Hann neitar algjör- lega að ganga undir stiga; honum er illa við að horfa á nýja peninga, nema þegar fullt tungl er. Þá vill hann alls ekki hörfa á tunglið í gegnum glugga, en telur það boða hamingju, ef hann sér svartan kött! Marlene Dietrich telur það óheillavæn- legt að missa gaffal, þegar hún er að borða. Annars er það almennt talin ókurteisi, að missa gaffalinn í gólfið. Ginger Rogers álítur það mikið óláns- merki að leggja hatt sinn eða regnhlíf í rúm sitt, og einnig að flauta í búnings- herbergi sínu. En þess utan er hún alls ekki hjátrúarfull! En ef til vill er Helen Vinson (kona tennisleikarans heimsfræga, Fred Perry) sú, sem hefir óvanalegustu hjátrúna. Hún telur það boða mikið happ að brjóta spegil, og hún brýtur alltaf a. m. k. einn spegil á afmæhsdegi sínum. Hún gerði það í fyrsta sinn fyrir mörgum árum síðan, og afmælis- dagurinn sá færði henni gjöf, sem hún hafði aldrei búist við — lifandi hest!

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.