Vikan


Vikan - 12.01.1939, Side 21

Vikan - 12.01.1939, Side 21
Nr. 2, 1939 VIKAN 21 Jóhannes Steinsson: Jóhannes Steinsson er einn úr hópi hinna mörgu pennahneigðu, ungu íslendinga. Hann er upprunninn úr Vestmannaeyjum, en fluttist þaðan innan við fermingu, og hefir síðan sitt af hverju reynt til sjós og lands.. Hér skrifar hann um dagleg störf, andstreymi og drauma messu- drengsins. Kannske hefir hann sjálfur ein- hverntíma verið messudrengur? --- —- Ræs! — Messi! — Ræs! hrópar Óli, yngsti hásetinn á skipinu, og stjakar við messudrengnum. — Hvað er klukkan? spyr drengurinn og nuddar stýrurnar úr augunum. — Hún er að verða fjögur, og stýri- maðurinn verður vitlaus, ef hann fær ekki kaffið á réttum tíma. Þögn. — Messudrengurinn teygir sig og gapir. — Heyrðu Messi — þekkirðu svona margar stúlkur, Messi? — Já, og mikið fleiri. — Hvers vegna raðarðu myndunum svona einkennilega ? Því hefirðu þennan auða ferhyrning í miðjunni? Menn eru aldrei jafn opinskáir og í svefnrofunum, á takmörkum draums og vöku. Og áður en Messi veit af hefir hann gloprað út úr sér: — Hann er fyrir hana? — Hana? — Hverja? spyr Óli og verð- ur allur að einu spurningarmerki. — Ég veit ekki hvað hún heitir, en hún vinnur í brauðsölubúð í Reykjavík. Hún hefir svo falleg augu, og svo brosir hún — Messi þagnar. Hann vantar orð til að lýsa brosinu. — Það er ekki hægt að lýsa því með orðum. Hann bætir aðeins við: — Hún er í hvít- um slopp, þegar hún er í bakaríinu. Hann rennir svefnþrungnum augunum til auða ferhyrningsins, sem myndirnar af hinum stúlkunum mynda einskonar ramma utan um. — Og hún réttir honum, bros- andi, þessu brosi, sem orð fá ekki lýst, með annari hendinni disk, sem á eru rjóma- pönnukökur, en með hinni mjólkurglas. Hún er í hvíta sloppnum og svo falleg að hann getur ekki haft augun af henni. — Hann hrekkur upp og draumsýnin hverfur við að Óli segir í trúnaðartón: — Ég hitti líka eina á Þingvöllum í sumar. Geturðu hugsað þér nokkuð yndis- legra, Messi, en júnínótt á Þingvöllum, með stúlkunni---------- Óli lýkur ekki við setninguna. Hann átt- ar sig. — Ekki nema það þó. Hann, háset- inn, að ræða trúnaðarmál við messudreng- inn. — Drífðu þig á fætur, Messi! Trúnað- urinn hefir vikið fyrir göfgi embættisins og Óli snarast út úr klefanum. Messi sezt á kojubríkina og smokrar sér í sokkana. Um borð í þessu skipi heitir hann bara Messi — Messi og ekkert annað. Sjálfur hefir hann hér um bil gleymt nafninu sínu — fyrir 65 krónur á mánuði. Húsnæði: Koja og partur úr fermetra. Það er ískuldi í klefanum. Drengurinn flýtir sér að hleypa hita á ofninn — manni er þó ekki of góður yl- urinn, þegar maður kemur niður aftur. Bara að þjónsgarmurinn vakni ekki á meðan. Þjónninn er mesta hörkutól, og veit sér ekki verra gert, en ef skrúfað sé frá ofninum á meðan hann sefur. Þjóninn hrýtur, og messudrengurinn vonar, að hann vakni ekki á þessum klukkutíma, sem hann verður í burtu. Messi flýtir sér í fötin. Káetudrengurinn umlar og kallar á mömmu upp úr svefninum. — Honum leiðist víst, rýjunni, hugsar Messi með sér og hleypur upp á þilfar. Það er talsverður veltingur. Öldurnar falda hvítu og senda nokkrar kaldar kveðj- ur í andlit drengsins. Stýrimaðurinn vill fá uxatungu ofan á rúgbrauðið og ,,stytter“ á hveitibrauðið. — Vitleysa! Hann vill ekkert hveitibrauð. Það er meistarinn, sem vill hveitibrauðið. Áður en talið er upp að tíu, eru báðir bakkarnir tilbúnir: Sá, sem á að fara upp í brúna og eins hinn, sem á að fara í véla- rúmið. Þá er að gera fyrstu atrennuna til að ,,porra“ III. stýrimann og II. meistara úr kojunum. Það gengur ágætlega með stýrimann- inn. Hann er kominn inn í messuna og byrjaður að svolgra í sig kaffið, þegar messudrengurinn kemur ofan úr brúnni frá því að færa öðrum stýrimanni. Meistarann þarf hann aftur á móti að ,,ræsa“ fjórum sinnum og fá svo í fimmta skiptið blóðugar skammir fyrir hvað hann ,,ræsi“ seint. Messudrengurinn yppir aðeins öxlum. — Hann er þessu svo vanur. Meistarinn í maskínunni á eftir að fá glundrið sitt. Það dugir ekki að doska. Meistarinn situr inni í kompunni sinni. Hann er, eins og allt vélarúmið, allur löðr- andi í olíu. Messi setur bollabakkann á borðið og styður við hann á meðan meist- arinn drekkur kaffið. Næturvaktaskiptin eru um garð gengin. Allir búnir að fá sitt, nema Messi. Hann hvolfir í sig einum kaffibolla, dríf- ur uppþvottinn af, felur kakkalökkunum messuna og skundar aftur á og niður í klefann sinn. Þjónninn er vakandi. — Hann skamm- ast: — Því í andskotanum gerirðu þetta, drengur? Ætlarðu að gera út af við mig með þessum bölvuðum hita? — Sýður á þér? spyr Messi í sakleysis- legum vorkunnarróm. Þjónnin rýkur upp. Hann er orðlaus af vonzku. Svo snarast hann fram úr rúm- inu, hryndir messudrengnum til hliðar og skrúfar fyrir ofninn. — Helvítis brölt er þetta í þér, Brand- ur. Það er káetudrengurinn, sem hefir orð- ið. Hann er í neðrikoju, undir þjóninum. — Getið þið ekki haldið helv .... kjöft- unum á ykkur saman, drynur nú í búr- manninum hinu megin við þilið. Hann ætl- ar að segja eitthvað meira, en eitthvað óskiljanlegt muldur, sem kemur frá öðr- um matsveini, þaggar niður í honum. — Matsveinninn er danskur. Svo hljóðnar allt, nema hinn eilífi söng- ur skrúfuöxulsins einhversstaðar langt niðri í skipinu. Messudrengurinn smeygir sér úr görmunum. Klukkan er rúmlega hálf fimm. Hann verður vakinn aftur um sjö. Það er ekki griður gefinn. Það er þvi um að gera að sofna, því fyrr því betra. — Messi ræs! Ræs! Ræs! — Hunzkastu á lappir! Klukkan er að verða hálf átta. Ef þú verður ekki kom- inn fram úr þegar ég kem niður aftur skaltu fá bað, sem þú manst eftir. Sæmi snarast út úr klefanum og skellir hurð- inni á eftir sér. Þó þessar kveðjur séu kuldalegar og minni mann einna helzt á norðlenzkar stór- hríðar, þá er meining þeirra hlý sem júlí- dagur, hugsar Messi og skreiðist framúr. Þjónninn er á annari skoðun. Hann rýk- ur upp með andfælum, bölvandi og ragn- andi. — Hverju? — Það veit enginn. Því þegar þjónninn vaknar í raun og veru, er Sæmi fyrir löngu kominn upp á þilfar. Káetudrengurinn er hlutlaus. Hann brosir í svefninum. Veðrið er hvorki vont eða gott. Hvorki útlit fyrir logn eða storm. Það er bara dumbungs veður með gjólu úr einhverri átt. Hvaða ? Það veit Messi ekki. Það gerir heldur ekki neitt — ekki á hann að stjórna skipinu. Hann veit samt upp á sína tíu fingur

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.