Vikan


Vikan - 23.03.1939, Side 5

Vikan - 23.03.1939, Side 5
Nr. 12, 1939 VIKAN 5 SVIPIR IJR DAGLEGA LÍFINU: r I forsœlu Bjarnaborgar. Brynki gamli í kofanum. Hann getur ekki staðið kyrr! Og þótt hann eigi að baki sér hartnær átta- tíu ára úlfúðaræfi, vappar hann í kringum kofann sinn, eins og gæflyndur tóuhvolpur og iðar allur í skinninu af stríðni og stráksskap eins og hugsunar- laus unglingur, sem enn á allt í vonum. Fullu nafni heitir hann Brynjólfur Jóns- son, en það vita fáir nema kirkjubækurn- ar og bæjarskráin, því síðasta mannsald- urinn hafa allir nefnt hann Brynka — og sumir segja: Brynki gamli til aðgreining- ar og staðfestingar á því, að það sé þessi eini og sami gamh Brynki, sem þeir eiga við. Foreldrar Brynjólfs hétu Guðrún og Jón, ákaflega bláttáfram og alþýðleg nöfn á bláttáfram og látlausum einyrkj- um lélegrar kotjarðar í erfiðri sveit. Þau bjuggu að Söndum á Meðallandi. Jóni þess- um entist nákvæmlega aldur til að geta tíu böm við konu sinni, og dó hann síðan. En Guðrún á Söndum fytjaði upp á nýju hjónabandi, ól seinni manni sínum fimm böm og dó í fyrravetur hjá syni sínum, Lofti bónda á Strönd á Meðallandi. Hafði hún þá lifað í níutíu og sjö ár og einu sinni fært heimilisfang sitt úr stað um eina bæjarleið. Svo skammt fara sumir, þótt lengi hfi. Á þrítugsaldri yfirgaf Brynjólfur æsku- stöðvar sínar, systkini, móður og stjúp- föður, og hugði að höndla hamingjuna í blámóðu fjarlægra stranda. Hvort hann fann ævintýralandið, skal ekkert fullyrt. En hitt er vitað, að eftir örfá vistaskipti og nokkrar vertíðir suður með sjó, kom hann hingað th Reykjavíkur og staðfesti hér ráð sitt 1891. Reisti hann bú í kot- greni, er Kasthús nefndist og var við Hverfisgötu, þar sem nú er verzlunarhús Ámunda Árnasonar: — Meðallandið var mögur sveit, segir Brynki, byggð bláfátæku og óupplýstu fólki — vertu blessaður, lagsmaður. 1 ung- dæmi mínu var þar ekki nema einstaka fulltíða maður, sem gat lesið skrift. Sum- ir þekktu staf og staf á stangli. Marg- ir kunnu vart að lesa, enda var bókakost- ur mjög rýr. Helzt vom rímur og hug- vekjur, og „Fjallkonuna" keyptu nokkrir bændur í félagi, og gekk hún manna á mihi. Það var blaðakosturinn. Stunda- klukka var þá engin til 1 sókninni. Brynjólfur Jónsson. — Teikning eftir Jóh. S. Kjarval. I æsku minni flæktist um Meðallandið og Skaftártungur undarlegur maður, er Vigfús hét, og var auknefndur „Geysis“, því að hjá honum varð aht geysimikið. Hafði hann flækzt úr skóla frá Bessastöð- um, kvænzt og byrjað búskap þar eystra, en síðar flosnað upp. Hann var maður undarlegur um margt og lyginn í bezta lagi. Fór hann milli bæja og fortaldi fólk- inu þessar líka voða historíur, lags- maður. Sagði hann t. d. frá manni einum, sem var kappi mikill, og lýsti hann búnaði hans á þessa leið: Hann var girtur svarð- arreipi af átta ára gömul griðung, sem var alinn á Blámannsvöllum, en skorinn á Stóm-Laxárheiði. Öðm sinni lýsti Vigfús þessi fundum sínum við skessu þann veg: Er ég gekk fram á hana, var hún að prjóna falla- peysu á hrossleggi og fór svo vel á því sem skarlat væri. Það hefir verið dálag- legt handbragð, — lagsmaður. Nú eru allir þessir gömlu karlfuglar dauðir fyrir löngu, og Meðallandið kvað vera orðin blómleg sveit og byggð vel- menntuðu fó’ki. Eiginlega langar mig að skreppa þangað austur, en það kostar sína fínu peninga, lasm, — og þá á ég ekki til. Ég hefi ekki verið neinn afkastamaður um æfina og aldrei safnazt fé. Aðallega hefi ég unnið að vegalagningu hjá bænum. I sumar fékk ég vinnu í þrjá mánuði og þótti kaupið hátt. Ég er íhaldsmaður og vil að fólk vinni fyrir því kaupi, sem því ér goldið. En jafnframt íhaldsmennsku minni er ég jafnaðarmaður og vil miðla af því litla, sem ég hefi, ef ég veit af öðmm, sem minna eiga. Þetta er mín heimspeki — mín lífsskoðun. Hún er ósköp einföld, þótt Framh. á bls. 20. Hungur! Menn tönglast á skorti og allsleysi nú á dögum, og vissulega fara margir margs á mis. En þið hefðuð átt að líta inn í kotin á Meðallandinu fyr- ir sextíu og fimm ámm síðan. Þar var fullkominn skortur — algjör eymd. Einstöku unglingar munu þar hafa beðið æfilangt tjón á heilsu sinni og skortsisn vegna aldrei orð- ið jafn nýtir menn og þeir höfðu upplag til. Það, sem hélt lífinu í fólkinu, var sauð- arfinn, — stórgerð jurt, sem vex á hin- um víðáttumiklu auðnum sunnan við Með- allandið. Ekki veit ég, hvort sauðarfinn var notaður til manneldis, nema þar í sveit- inni. En þar var hann sleginn og rakaður handa mannfólkinu, á sama hátt og tað- an var slegin ofan í kýmar. Að vísu var arfinn ekki sleginn með orfi og ljá, held- ur ristur upp með torfljá, reiddur heim og látinn í skyrsým. Einu sinni heyrði ég Guðmund gamla í Háu-Kotsey kvarta um hungur við kerlingu sína. Kom hann þá af engjum og hafði verið að heiman lengi dags. Er konan tjáði honum, að ekkert væri matarkyns í bænum, nema sauðarfi, snaraði karl sér fram í búr og óð með krumlurnar og handleginn upp að öxl nið- ur í sýrukerið eftir arfavisk og slumsaði þessu góðgæti upp í sig eins og belja. Mér er þetta minnisstætt, og hefi ég aldrei séð mann ganga að mat sínum með slíkum hamförum, enda var Guðmundur rumur stór og svakalegur — en bezti karl og einstaklega skemmtilegt grey. . Meðallendingar voru skrítnir og eru það máske enn. Það var heill heimur út af fyrir sig. Það var ekki fyrr en lausamenn þaðan fóru að stunda sjóróðra í verstöðv- unum hér sunnanlands, að þessi svokall- aða heimsmenning brauzt inn í Meðalland- ið. Vermennimir fluttu heim með sér ýms- ar nýjungar, svo sem Eyrarbakkaúrin og búðarföt, er fóru þeim ólíkt betur en gömlu, heimaunnu vaðmálsfötin, — og um leið fengu heimasæturnar tækifæri til að sjá, hvemig sauma skyldi karlmannsföt, svo að vel færi. Þannig kom menningin inn í Meðallandið.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.