Vikan


Vikan - 23.03.1939, Blaðsíða 14

Vikan - 23.03.1939, Blaðsíða 14
14 V IK A N Nr. 12, 1939 ífegimt og JÖízka Vorið nálgast óðum. Hér er nýtízku vorhattur úr svörtu „velour". Eina skrautið á hattinum er hvirfildúskur. — Ef við hugsum dálitið aftur í tim- ann, sjáum við, að þetta skraut var í tízku árið 1910, og við munum fljótlega komast að raun um, að það er jafnfallegt nú eins og fyrir 30 árum. — Litlu eymalokkamir eru ljómandi laglegir. Þeir em útbúnir eins og fiðrildi. Nú er mikið í tízku að nota smádúka á borðstofuborð í stað þess að hafa dúk, sem nær yfir allt borðið. Þeir eru ýmist ferkantaðir eða kringlóttir. Auglýsingaspjald fyrir heimssýn- ingirna í New York. Á miðri myndinni er merki sýningarinnar, kúlan og hin þrístrenda súla. Stendur það á miðju sýningar- svæðinu og er ekkert smásmíði. Kúlan er hol innan og er þar gert „model" að fyrirmyndarborg, eins og menn hugsa sér að borgir framtíðarinnar verði reistar. Meðfram veggj- um kúlunnar innanverðum em gangbrautir fyrir fólk, og geta menn þar virt fyrir sér borgarsmíði þetta ofanfrá, ásamt mörgu fleira furðulegu, sem sýnt er innan í hinni miklu kúlu. 1 vor flytur tízkan öllum eitthvað. Þessir tveir kjólar eru fyrir tvær mjög ólíkar manneskjur og eru báðir jafnmikið í tízku. Víði kjóllinn er úr þunnu „georgette" með svörtum blómum. Hinn kjóllinn er úr dökkbláu silkiefni og þröngur. Neðan á pilsinu og á blússunni eru falleg, marglit bönd. Blússan, sem er rykkt í hálsinn, er úr dökkbláu „ninon".

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.