Vikan


Vikan - 14.09.1939, Blaðsíða 11

Vikan - 14.09.1939, Blaðsíða 11
Nr. 37, 1939 VIK A N 11 Tveir syndaselir. George Merivale kom út úr Waterloo járnbrautarstöðinni og leið kynlega vel út af því, að honum skyldi í raun og veru leiðast, að konan hans var farin. Það er alltaf gaman að finnast mað- ur vera fyrirmynd, og það var áreiðanlega ekki margur eiginmaðurinn, hugsaði hann, sem þótti það verra að vera ekkill í nokkra daga. George hafði verið kvæntur í rúmt ár. Kona hans hafði farið til vinafólks síns Smásaga. Hann kinkaði brosandi kolh: — Já, og ég er hamingjusamasti maður í heiminum. Cynthia Stanton horfði hugsandi á hann, því að konum verður alltaf hulin ráðgáta, hvemig öðrum konum tekst að ná svo ágætum árangri. — Það er ágætt, sagði hún. — Hefi ég nokkum tíma séð konuna þína ? — Má ég ekki aka þér þangað? Það er í leiðinni! — Jú, þakka þér fyrir, svaraði hún. Áður en George Merivale skildi við Cynthiu hafði hann ákveðið að bjóða henni í leikhús um kvöldið. — Enginn, sagði hún — skilur eins vel og ég, hvað það er að vera einmana. Og George, sem í einfeldni sinni vissi ekki, að einvera er trompið í spilum djöf- ulsins, fannst þau skilja hvort annað svo vel. Cyntia var ágæt. Kunningjar þeirra beggja voru iðulega með þeim, og þau töl- uðu um það, sem einu sinni var, með þeirri angurværð, sem maður hefir fyrir því, sem liðið er. George minntist oft á það, hvað Betty yrðí henni þakklát fyrir það, hvað í Cowes og ætlaði að dvelja þar í tíu daga. Honum fannst tíu dagar vera heil eilífð. Til allrar hamingju hafði hann nóg að gera á skrifstofunni, og á kvöldin gat hann spilað og hlakkað til þess að fá bréf frá Betty. Aumingja fólkið, sem dæmdi hjónaband- ið frá sjónarmiði léttúðugra manna! Auð- vitað voru þau hjónabönd til, þar sem hjón- in döðruðu við hina og þessa, en það mundu þau Betty aldrei gera. Fyrir þeim var ekki til nokkur annar maður eða kona — það var ekkert auðveldara fyrir þau en að vera hvort öðru trú . . . Þegar George Merivale kom út úr stöð- inni hljóp hann bókstaflega í fangið á Cynthia Stanton. Cynthia hafði allt það við sig, sem þarf til þess að láta mann gleyma öllu því, sem hann á ekki að gleyma. Hún skildi vel, hvað það var að vera ekkill og átti gott með að hlusta á allt það, sem karlmenn hafa að segja um gjörðir sínar. Brúnu augun hennar horfðu með hrifningu á George. — George Merivale! Ég held, að ég hafi ekki séð þig í tvö ár! Hann þrýsti hönd hennar glaðlega. — Cynthia! En hvað það var gaman að sjá þig! — Heyrðu, þú ert kvæntur? spurði hún. — Ég held ekki. Hún heitir Betty Fraser og er frá Cowes. Ég var að fylgja henni á brautarstöðina. Hún ætlar að skreppa heim. — Aumingja drengurinn að vera skilinn aleinn eftir, sagði hún. — Já, tíu dagar eru langur tími. En þeg- ar hún kemur heim, skaltu heimsækja okkur — hún er yndislegasta konan í heim- inum. — Hún er að minnsta kosti hamingju- samasta kona í heiminum, sagði Cynthia. George brosti. Engin maður er svo ást- fangin af konu, að gullhamrar annarrar konu hafi ekki áhrif á hann. — Þetta var fallega sagt, sagði hann. — Hvert ertu að fara? — Ég? Ég er að fara að borða á Savoy með kunningjum mínum. hún væri almennileg við sig. — Þú heldur, að hún hafi ekkert á móti því? spurði Cynthia dálítið vonsvikin, því að það eru nú einu sinni engir gullhamrar fyrir konu, að önnur kona skuli trúa henni fyrir manni sínum. — Nei, áreiðanlega ekki. Hún skilur þetta, svaraði hann sannfærandi. Maður, sem er ástfanginn af konu sinni, þjáist af kynlegu iítillæti, og það aðgreinir hann frá öllum öðrum mönnum. George gat ekki séð neina ástæðu til þess, að Cynthia kærði sig um að tala við sig, en þegar hún sagði honum, að hún kæmi út með honum aftur, fannst honum hún vera alveg einstakur félagi. Þannig liðu tíu dag- amir fljótt. Síðasta kvöldið áður en George fór að Pramh. á bls. 20. Enginn, sagði hún — skilur eins vel og ég, hvað það er að vera einmana.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.