Vikan - 04.04.1940, Blaðsíða 16
16
VIKAN, nr. 14, 1940
IKiDIL.
Tungufljót rennur eftir Skaftártung-
unni fyrir austan Flögu. Vont er yfir
það að fara fyrir ókunnuga, en svo
bar til í þetta sinn, að í Flögu var staddur
gangandi maður með barn. Var hann frá
Ásum, og þurfti því að komast yfir Tungu-
fljót. Við tókum hann nú upp á einn lausa
hestinn okkar, og reiddum hann og barnið
alla leið austur að Ásum, en nutum leið-
sögu hans yfir fljótið í staðinn. Fyrir aust-
an Ása (hið forna prestssetur Skaftár-
tungumanna) eru margar kvíslar, er renna
úr Eldvatninu, nefndar Ásakvíslar. Er brú
á þeirri mestu, sem næst er bænum, en all-
ar hinar urðum við að ríða, ég man ekki
hvað margar. Fannst mér það meiri vatns-
elgurinn. Þetta sumar var verið að byggja
nýja brú yfir Eldvatnið upp undir hrauni
hjá Stórahvammi, þar sem það rennur í
einum farvegi. Mundi ég eftir nokkrum
deilum, er þá höfðu staðið að undanförnu,
um það, hvar þessi brú ætti að vera, en
strax og ég sá staðhætti,
gat ég ekki betur séð, en
að brúin væri sett á rétt-
an stað. Eftir að brúin var
tekin í notkun, fluttist
aðalþjóðleiðin þangað, en
var áður um Ása. Austan
við Ásakvíslar tekur við
Eldhraunið, er rann í
Skaftáreldum 1783. Ligg-
ur vegur niðurgrafinn —
því miður — í gegnum það,
og er til að sjá eins og
traðir. Fannst okkur sem
þessar traðir ætluðu aldrei
að taka enda, eru líka um
20 km. á lengd, og seinfarnar með hesta,
því aðeins var lag af mosa ofan á hraun-
grjótinu. Fögnuðurinn var því mikill, þeg-
ar við sáum loksins út úr tröðunum, og við
okkur blasti fagurt graslendi á bökkum
Skaftár. Heitir þessi fagri blettur Svíri.
Er þetta einkennilegt nafn, og á kannske
að merkja það, að þarna sé álíka þykkt
á stykkinu fyrir klárana, og á gildum
hrúts-svíra fyrir okkur menn. Og víst er
um það, að þama er ákjósanlegur áningar-
staður, og vel smakkaðist hestunum okkar
góðgjörðimar sem Svíri lét þeim í té.
Áðum við stundarkom á Svíra, og þótti
okkur þar yndislegt um að litast í kvöld-
kyrrðinni. Þegar við stigum á bak aftur,
var nú myndarlega sprett úr spori eftir
beinhörðum vall-lendisgötum austur með
Skaftá, og austur að brúnni á henni, en
hinu megin við ána blasti Kirkjubæjar-
klaustur við, undir dökkum núpnum í næt-
urhúminu, — sveipað ljóshafi rafmagns-
ljósanna frá Systrafossi. Hér skal ég
skjóta inn í, að mér þykir fegurst bæjar-
stæði og heimsýn, að þessum fjómm bæj-
um á landinu, af þeim sem ég hefi séð, og
FERÐ AMINNIN G AR
ÚR SKAFTAFELLSSÝSLU
eftir
A. J. Johnson, bankaféhirðir.
Framhald.
það svo af ber: Kirkjubæjarklaustri, Hall-
ormsstað (skólanum), Hólum í Hjaltadal,
og Barkarstöðum í Fljótshlíð. — Ekki var
linað á sprettinum fyrr en komið var heim
á hlað á Klaustri. Og jafnskjótt og lausu
hestarnir runnu í hlaðið laust eftir mið-
nættið, komu tveir karlmenn út úr bænum
til að taka á móti okkur, spretta af og
koma hestunum á haga upp á Klaustur-
núp. Upp núpinn liggur mjög brött gata í
mörgum krókum, og lestuðu hestarnir sig
Kirkjubæjarklaustur.
eftir henni, en uppi er mikið og gott hag-
lendi. Inni beið okkar dekkað borð með
allskonar kræsingum, og ekki spillti það
ánægjunni við borðið, að ung kona og
glæsileg gekk um beina, og vísaði okkur
síðan til sængur. Sjálfur var húsbóndinn/
genginn ,,til hvílu“ því snemma þurfti að^
vakna morguninn eftir, til að sýna ferða-1 ,
fólkinu sem fyrir var austur Síðuna, — og
Fljótshverfið, allt að Núpsstað. Eftir
stutta stund, vorum við komnir inn á ,,sól-
rík draumalönd“ og dreymdi vitanlega
yndislega drauma á hinu forna nunnu-
klaustri.
F\að var enginn asi á okkur á miðviku-
dagsmorguninn þó veðrir væri fagurt.
Þegar ég kom á fætur hitti ég Lárus úti
á hlaði, kófsveitann við að járna hesta.
Litlu síðar lagði hann af stað með hóp af
Reykvíkingum austur að Núpstað. Bað ég
hann fyrir erindi okkar við Hannes bónda
á Núpstað, sem voru þrenns konar: að fá
gistingu hjá honum næstu nótt, að fá hann
til að fylgja okkur yfir Skeiðarársand
næsta dag, og í þriðja lagi, að biðja hann
að útvega okkur hesta, nægilega marga
austur í Öræfin, því okkar reykvísku hest-
um treystum við ekki í Núpsvötnum og
Skeiðará; því þó þeir væru bæði góðir og
skemmtilegir, voru þeir ekki „vatnahest-
ar“. Kom og síðar í Ijós, að þessi ráðstöf-
un var hyggileg. Frá Klaustri fórum við
ekki fyrr en um nón, því stutt átti að ferð-
ast, og gaman að skoða sig um á Klaustri.
Að vísu er þar ekki annað að sjá frá forn-
um tímum en leifar af hinum fornu klaust-
urrústum á austanverðu túninu, sem nú
eru mjög uppgrónar. En mörg örnefni eru
þar enn frá tíð systranna, svo sem Systra-
foss, Systravatn, Systrastapi, Sönghóll og
Glennarar. Síðustu tvö örnefnin draga nöfn
af heimsöknum múnkanna í Þykkvabæjar-
klaustri í Álftaveri til systranna á Kirkju-
bæ. Þegar munkarnir komu á Sönghól
hófu þeir söng mikinn, sem heyrðist heim
að klaustrinu. Létu systurnar þá hringja
klukkum klaustursins sem mest mátti, en
gengu sjálfar með abbadísina í fararbroddi
móti munkunum á stað sem síðan heitir
Glennarar, og er neðst og austast í túninu
á Klaustri, nálægt vaði, sem þar er á Skaft-
á. Sönghóll er sunnan við ána. — Er ör-
nefnið ,,Glennarar“ ekki orðið til á þann
hátt, að einhverjum gárunganum á þeirri
tíð hafi þótt nunnurnar „glenna sig“ full-
mikið framan í munkana, er þeir komu
yfir ána og heilsuðu þeim? — Systravatn
er skammt fyrir ofan brúnina á Klaustur-
núp, Systrafoss, sem Lárus hefir beislað
til að gefa bæ sínum „yl og ljós“, fellur
niður af núpnum bak við bæinn, en Systra-
stapi er stutt norðvestur frá bænum við
Skaftá, og kvað draga nafn af tveimur
ógæfusömum systrum, sem sagan segir að
eigi að vera jarðaðar uppi á Stapanum. —
Frá síðari tímum sést móta fyrir gamalli
kirkjutóft og kirkjugarði, en kirkja var á
Klaustri fram til 1859. Þá var kirkjan flutt
þaðan að Prestsbakka. Er ekki laust við
að manni finnist ömurlegt til þess að
hugsa, að engin kirkja skuli vera á þessum
Systrastapi
Kirkjubæ, sem Ketill fíflski, dóttursonur
Ketils flatnefs, mun hafa gefið nafn í sam-
bandi við sína kristnu trú, og sem sagan
hermir, að aldrei hafi búið aðrir en kristnir
menn. 1 hinum forna kirkjugarði sést enn
leiði hins mæta ,,eldklerks“ séra Jóns
Steingrímssonar og fyrri konu hans. Séra
Jón andaðist 11. ágúst 1791, og hafði þá