Vikan - 19.09.1940, Page 7
VIKAN, nr. 38, 1940
7
líerri i Djöilaeyja.
Vafðir teppum er hópur af föngum fluttur út í skipið, sem á aðy flytja þá til Guiana. Þeir eru
hafðir undir ströngu lögregiueftiriiti. — Enginn færa að hverfa heim að aflokinni fangelsisvist.
Fanganýlendurnar í franska
Guiana eru fljótar að ráða
niðurlögum glæpamamianna.
* nóvember 1938 sendi Frakkland í fyrsta
skipti í þrjú ár skip með fanga til
franska Guiana. Bæði í frönskum og
útlendum blöðum hófust að nýju umræð-
urnar um fanganýlendur Frakka í Guiana
og á Djöflaeyjunni skammt þar frá, þar
sem Alfred Dreyfus var fangi.
Alfred Dreyfus var fyrsti fanginn á
Djöflaeyjunni og var þar frá 1895—99.
Eftir að hann var látinn laus, var enginn
sendur þangað, fyrr en árið 1910, þegar
Charles Ullmo, undirforingi í franska flot-
anum var fluttur í hinn tóma kofa Dreyf-
usar, dæmdur fyrir að hafa ljóstrað upp
hernaðarlegum leyndarmálum við fallega
dansmeyju, sem því miður reyndist vera
njósnari. Eftir heimsstyrjöldina voru
tuttugu pólitískir fangar sendir til eyjar-
innar, þar sem hver þeirra fékk sinn kofa.
Þeir áttu að sumu leyti góða daga, voru
ekki neyddir til að vinna og gátu gengið
frjálsir um á ströndinni.
Það hafa aldrei verið fleiri en fimmtíu
fangar á Djöflaeyjunni og líf þeirra hefir
verið miklu frjálsara og hollara en félaga
þeirra inni á meginlandinu.
Loftslagið á eyjunni er þolanlegt, og all-
ar þær óbærilegu þjáningar, samfaxa hita-
beltissjúkdómum og öðrum plágum, sem í
hugum manna er almennt tengt við nafnið
Djöflaeyja, eiga sér enga stoð í veruleikan-
um, heldur stafa af því, að menn hafa
ruglað henni saman við hinar stóru fanga-
nýlendur á meginlandinu í franska Guiana
eða hinar tvær eyjurnar í eyjaklasanum,
Iles de Salut, sem Djöflaeyjan tilheyrir.
Þessar tvær eyjar heita. Royale og St.
Joseph og eru báðar miklu stærri en
Djöflaeyjan, sem dregið hefir nafn sitt af
ofsalegum hvirfilvindum, sem stundum
geysa þar. Á St. Joseph er rúm fyrir 300
fanga, sem allir eru hafðir í niðurgröfn-
um einsmannsklefum. Auk þess er þar
deild fyrir fanga, sem orðið hafa brjálaðir.
Á Royale er hinn alræmdi „Case Rouge“
— rauði hermannaskálinn, þar sem mörg
hundruð af hættulegustu glæpamönnum
Frakklands eru geymdir.
Fimmtán kílómetra breitt sund, mor-
andi af hákarli, aðskilur þessar eyjar frá
meginlandi Suður-Ameríku og hinum stóru
fanganýlendum í franska Guiana. Þar lifa
4 þúsundir manna, dæmdir til að hfa land-
flótta það sem eftir er æfinnar, þó að þeir
lifi af hegningartímabilið. Þeir verða að
vinna í frumskógunum í hræðilega óhollu
loftslagi.
Síðan 1763, er 14,000 menn voru sendir
frá undirheimum Parísarborgar til Guiana
— þeir dóu allir á fáum árum — hafa
um 100,000 Frakkar verið dæmdir til að
veslast upp og deyja í þessu óholla landi.
En árið 1936 bar stjórn Blums fram frum-
varp til laga um að hætta að nota Guiana
sem fanganýlendu. Að flóttamenn frá ný-
lendunni gáfu útleridum blöðum full svart-
ar lýsingar af lífinu þar, átti sinn þátt í,
að Frakkar voru ekkert upp með sér af
ástandinu.
Samt mætti frumvarpið mikilli mót-
spyrnu, þó að hætt væri að senda fanga
til Guiana. En sumarið 1938 var það aftur
borið fram, í þetta skipti af stuðnings-
mönnum Daladiers, og þá var það sam-
þykkt. Nokkrum mánuðum seinna varð
stjórnin þó að afnema lögin, því að í ljós
kom, að Frakkland átti ekki nógu mörg
fangelsi til að hýsa alla glæpamenn sína.
Síðan var ákveðið að senda þúsund fanga
til Guiana í tveimur ferðum.
Frakkland er eina landið, sem starf-
rækir fanganýlendu að undanteknu Rúss-
landi, sem hefir 3500 fanga innilokaða í
miðaldaklaustri á Solovetsky-eyju í Hvíta-
hafinu. Portúgal hefir lagt niður nýlend-
una á Angola og Italir á Líparisku eyjun-
um, þangað sem margir pólitískir fangar
voru sendir á fyrstu stjórnarárum fascist-
anna. Og Spánn, sem jafnvel á árinu 1932
sendi nokkra aíftalsmenn til Rio de Oro úti
fyrir Sahara-eyðimörkinni á vesturströnd
Afríku, notar þessa eyju ekki lengur fyrir
fanganýlendu, þó að margir fyrrverandi
fangar lifi þar nú sem frjálsir menn.
Mörg ríki hafa reynt að stofna nýlend-
ur með því að senda þangað glæpamenn
og aðra lögbrjóta og ætlað sér þar með að
slá tvær flugur í einu höggi. Gott dæmi
um það eru Andaman-eyjarnar, sem liggja
í Bengalflóanum, 480 kílómetra undan
landi. Þangað voru sendir glæpamenn frá
Indlandi, alveg frá 1857 til 1921. Þegar
fanginn hafði afplánað hegningu sína, fékk
hann leyfi til að senda eftir konu og börn-
um og útvegaði sér svo atvinnu á eyjun-
um, oftast sem fiskimaður. — Þar búa nú
sem stendur um 5000 fyrrverandi fangar
og fjölskyldur þeirra.
Vitiö þér bcnö?
1. Hvað heitir konungurinn í Búlg-
aríu?
2. Hver er höfundur að „Svart-
fugl“?
3. Hver leikur aðalkvenhlutverkið í
kvikmyndinni „I sátt við dauð-
ann“?
4. Hvar beið Napoleon sinn stærsta
og síðasta ósigur?
5. Hvaða ás var guð hreysti, hug-
rekkis og hernaðar?
6. Hvað heitir flugmálaráðherra
Breta ?
7. Hvar er aðalsölumarkaður fyrir
íslenzkan ísfisk nú um þessar
mundir ?
8. Hvað heitir höfundurinn að leik-
ritinu og kvikmyndinni „Pygma-
lion“?
9. Hverjir eru þingmenn Sunnmýl-
inga?
10. Hver 'var mannflesta sýslan á
landinu við síðasta manntal?
Sjá svör á bls. 15.