Vikan


Vikan - 28.11.1940, Síða 7

Vikan - 28.11.1940, Síða 7
VIKAN, nr. 48, 1940 7 ÖIDUR Síðastliðið föstudagskvöld var frum- sýning á leikrítinu Öldur eftir séra Jakob Jónsson frá Hrauni. Leikurinn mun hafa verið sýnd- ur meðal landa vestan hafs og hlaut þar, að sögn, góða dóma. Fyrsti þáttur gerist í verstöð Ásmundar (Brynjólfur Jóhann- esson), en hann er gamall og þrautreyndur sjómaður. Hann er að búa sig undir róðurinn, karlinn og Hildur (Gunnþórunn Halldórsdóttir), kona hans, færir honum kaffi, og þau rabba saman um Helgu (Alda Möller), fósturdóttur sína, Val Arason (Valur Gíslason), háseta Ásmundar, og Erlu (Þóra Borg), dótt- ur sýslumannsins, og átök þeirra stúlknanna um Val. Ásmundur gerir, að fornum sið, samanburð á þessu unga fólki og æsku jafnaldra sinna og er það nokkuð gamalsunginn sónn og tilþrifa- iítill. Síðan koma Valur og Helga fram á sjónarsviðið og eigast við orðahnippingar, og er það atriði með eðlilegri blæ frá höf- undarins hendi. Erla birtist næst með skeyti, sem skýrir frá því, að Valur, sem auðvitað er til þess lærður, sé settur sýslumaður. Hann er Erlu mjög þakklátur fyrir þann hlut, sem hún á í þess- arri forfrömun hans, en Helga rýkur út í fússi, eftir að hafa gert tilraun til að drepa keppinaut sinn með augunum. Síðan fer Erla, en Grímur (Alfreð Andrésson), sonur Ásmundar og Hildar, vindur sér snaggaralega inn. Hann segir fátt, en allt vel og er mjög eðlilegur. Annar þáttur gerist í eldhús- inu á heimili Ásmundar og Hild- ar. Það er að rjúka upp með ofviðri. Annar bátur Ásmundar er horfinn úr naustinu. Einliver óhuggnaður liggur í loftinu. Veðurhæðin eykst. Erla kemur og spyr um Val og Grím. Illur grunur grípur hjónin og Helgu. Erla verst frétta, en verður að lokum að segja sannleikann: Grímur hefir farið á sjó fyrir LEIKHUSIÐ takast. En Helga heldur í hann og Ás- mundur eys yfir hann lofi fyrir fram- komuna á sjónum um nóttina. Hann var bæði hetja og víkingur. Svo kemur Erla, eftir að hafa gert að því er virðist árangurslaus- ar lífgunartilraunir, og hótar ) honum öllu illu. Mitt í þeirri hríð, er þeim tilkynnt að Grím- ur lifi, og þá man Erla sýnilega fyrst eftir því, að hún hefir gleymt að hálda starfi sínu áfram, þótt hún myndi eftir að telja sér það til gildis við Val. Og leikurinn endar með því, að ,,lífið lifir“, og ein fær endur- goldna ást sína, en önnur ekki, eins og gengur. Það má ýmislegt gott um þetta leikrit segja. Höfundi hef- ir tekist sumt vel í því, en sumt illa, það er hvergi nærri heil- steypt og samtölin á köflum fjaskennd, þótt hjá því virðist hafa verið hægt að komast. Per- sónurnar eru aftur á móti nokk- uð skýrt mótaðar. Það mun varla vafamál, að séra Jakob Jónsson geti orðið gott leikrita- skáld. T. v.: Alda Möller í hlutverki Helgu. T. h.: Þóra Borg sem Erla. Valur Gíslason Arasonar. í hlutverki Vals sýslumanninn, vegna rauðvíns- tunnu, sem hann hafði átt von á að smyglað yrði til hans, en mátti nú fyrir engan mun koma í land. Og veðurgnýrinn verður æ meiri og meiri. — Gamli mað- urinn býr sig til að fara einn á stórum, vélknúnum báti til að reyna að bjarga syni sínum. Valur kemur, eyðilagður yfir öllu saman. Hann ætlar á sjóinn með Ásmundi. Erla gerir allt, sem hún getur, til að aftra hon- um. En þegar hann sér, að Helga er komin í sjóklæðin og ætlar til sjávar, þá skipar hann henni úr þeim, klæðist þeim sjálf- ur og fer. Þriðji þáttur gerist, eins og hinn fyrsti, í verstöð Ásmundar. Konurnar þrjár bíða, milli vonar og ótta. Þær fylgjast með bátn- um gegnum glugga. Loks koma þeir Ásmundur og Valur með Grím í fanginu og bera hann yfir sviðið. Hann er að sjá dauður og Valur talar um, að hann hafi verið stirnaður. En Erla hefir lært hjúkrun. Hún fer og gerir lífgunartilraunir. Valur ætlar að kveðja og flýja af hólminum, áður en hann veit, hvernig þær Brynjólfur Jóhannesson í hlutverki Ásmundar sjómanns. Meðferð leikendanna var yfir- leitt góð, en sá höfuðgalli var á þeim öllum, nema Brynjólfi og Alfreð, að þeir töluðu of lágt, alltof lágt! Maður fer í Ieikhús- ið til þess að h e y r a og sjá. Brynjólfur var beztur, eins og fyrri daginn. Þó hefir honum oft tekizt miklu betur, en það er ekki honum einum að kenna, leikritið á sinn þátt í því. Alda var yfirleitt ágæt. Valur virðist miður heppilegur í sitt hlutverk, enda réði hann ekki við það nema á köflum. Gunnþórunn og Þóra voru hvorugar í essinu sínu, þótt þeim tækis vel í ýmsum atriðum. Leikstjórinn, Indriði Waage, mun hafa gert það úr leikritinu, sem hægt var, að undanteknu því, hve lágt var talað. Höfundurinn var að lokum klappaður fram, og því ber ekki að neita, að það er ánægjulegt, að þetta leikrit hans var tekið hér til sýningar og enginn þarf að sjá eftir því að fara í Iðnó til þess að horfa á ,,Öldur“. Skátahetja heiðruð. Myndin er af Donn Fendler, 14 ára. Hann er skáti og hlaut þann heiður að vera sæmdur verðlaunapening af Roosevelt Bandaríkjaforseta við há- tíðahöld í Hvíta húsinu. I júlí 1939 var Donn að villast i sjö daga í eyði- skógunum í Mains, en slapp þaðan klakklaust vegna skátaþekkingar sinnar.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.