Vikan - 27.03.1941, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 13, 1941
9
Femand de Brinon, sem þessi
mynd er af, er „sendiherra"
Frakka í París, það er að segja,
hann er milligöngumaður á milli
Þjóðverja og stjórnarinnar i Vichy
um öll mál og ágreiningsatriði,
sem þeirra eru á milli, en þau eru
vitanlega mörg. Brinon er náinn
vinur Pierre Laval.
Júliana Holiandsprinsessa er
forseti hollenzka Rauðakross-
ins. Hún sést hér í viðræðum
við Norman Davis, forseta
ameriska Rauðakrossins. Ekki
er að efa, hvert viðræðuefnið
muni vera.
I>essi mynd er af þýzka kafbáts-
foringjanum Otlo .vi-ebschmor, er
í>jóðverjar segja að hafi sökkt
skipum, sem eru meira en 250.000
smálestir til samans, og er það
hæsta smálestatala, sem nokkur
■einn kafbátur hefir sökkt. 1 þessu
eru innifalin þrjú hjálparbeitiskip
og tundurspillirinn Daring, 1375
amálestir.
Yfirhershöfðingi Breta I Afriku,
Sir Henry Maitland Wilson, sem
stjómaði leiftursókn Englendinga
á Sidi Barrani og áframhaldandi
sókn þeirra vestur yfir Libyu. '
Eyðimerkurhemnaður. Þannig eru
ensku hermennimir, sem berjast i
eyðimörkum Egyptalands og Li-
byu útbúnir. Hlífin fyrir andlitinu
er til þess að verja augun í sand-
stormum, sem mjög em tíðir á
þessum slóðum.
Kosningaveðmál. Michael Venezia
frá Revere í Bandarikjunum veðj-
aði við kunningja sinn um úrslit
forsetakosninganna — og tapaði.
Héma á myndinni sést hann vera
að uppfylla skilyrði veðmálsins, en
þau vom að steypa sér ofan af
Charlestonbrúnni í Boston ofan i
jökulkalt fljótið.
Salan heldur áfram eins og ekkert hafi í skorizt á þessari veit-
ingastofu. Loftið yfir stofunni hangir að hálfu leyti niður, og billiard-
borðið ofan á því sýnist ekki þurfa mikið til að velta niður, en það
er eins og enginn gefi því neinn gaum. Myndin er frá smábæ í Mid-
lands í Englandi.
Á skemmtistað einum í New York var eitt skemmtiatriðið, að
gestimir fleygðu örvum að stórri mannsmynd á veggnum, sem var
áberandi lík leiðtoga ákveðinnar þjóðar í Evrópu. Hérna á mynd-
inni sést kvikmyndastjaman Rosalind Russell vera að reyna skot-
hæfni sína.