Vikan


Vikan - 10.07.1941, Qupperneq 1

Vikan - 10.07.1941, Qupperneq 1
Vi er Nr. 28, 10. júlí 1941 Ogleymanlegur maður. Eftir Manuel Komroff. Manuel Komroff hefir haft mik- inn áhuga á kínverskri menningu og heimspeki síðan hann var ungur og vann við „China Press“, sem er amerískt blað í Shanghai. Þegar hann kom aftur til New York, gaf hann út bók um ferðir Marco Polos í Kína og ferðasögur ýmsra Evrópumanna, sem höfðu komið til Kína á undan Polo. Honum var ljóst, að hann gat ekki gert neitt meira á þessum vettvangi, án þess að læra kínversku, og varð það orsökin að kunningsskap þeirra Li Yung Ku. Komroff hefir einnig skrifað nokkur söguleg skáldrit, sem fengið hafa óhemju mikla út- breiðslu. Hann ritar einnig að jafn- aði í tímarit. Enginn maður hefir haft eins mikil áhrif á hugsanaferil minn eins og ungur Tíbetbúi, sem einu sinni var kennari minn. Ég lærði af honum, að dýr- mætasta kunnáttan er listin að lifa. Á þessum skuggatímum þarf ég ekki annað en minnast Li Yung Ku og rifja upp fyrir mér einn af eftirlætis málshátt- um hans: „Þetta er aðeins um stundar- sakir“, og þá verð ég strax léttur í skapi. Þetta var með því fyrsta, sem hann kenndi mér, þegar ég var að byrja að læra að skrifa kínversku hjá honum. Ég fór í þessa tíma, af því að ég hélt, að mér myndi ganga betur að skilja sögu og líf Kínverja, þó að ég kynni ekki nema fáein leturtákn þeirra. En Li Yung Ku opnaði fyrir mér víða heima, sem mig hafði aldrei grunað að væru til. Hann sýndi mér stafrófskverið, sem hann hafði komið með að heiman og hló: Fraxnh. á bls. 3. (.’j-'b M X m ****** ' í: Dauöi og bálför Búddha. Kínversk málverkasamfella á silki, sem sýnir æfi Búddha. Myndin er úr keisarahöilinni í Jehol. (Marco Poio. Ferðasaga hans, endursögð af Aage Krarup Nielsen. TJt- gefandi Isafoldarprentsmiðja h.f.).

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.