Vikan


Vikan - 10.07.1941, Qupperneq 9

Vikan - 10.07.1941, Qupperneq 9
\IKAN, nr. 28, 1941 9 María Teresa Hopfinger er tveggja mánaða gömul. Hún held- ur á Bandaríkjafánanum i hend- ínni til þess að láta i ljós ósk sina um að verða þegn Bandaríkjanna. Hún kom til Bandarikjanna með foreldrum sínum, sem ekki gátu farið frá Evrópu, áður en barnið fæddist, vegna stríösins. Móðir Mariu litlu er Assunta Habsburg- Bourbon stórhertogadóttir frá Spáni og er frænka Alfonso, sem var konungur á Spáni. Thomas Parran yfirlæknir í hernum kemur aftur til Banda- ríkjanna með skipinu „Éxcali- bur". Myndin er tekin, þegar hann var að koma til Nevr York frá Lissabon. Parran var að rannsaka heilbrigðisástand- ið í Englandi. Hann sagði, að nauðsyn væri að senda þangað hjúkrunarkonur, lækna og hjúkrunargögn frá Ameríku. Kona Franklin D. Roosevelt forseta er í sumarleyfi í Golden Beaeh á Florida. Hún nýtur þess að vera úti í garðinum við húsið, sem hún hefir tekiö á leigu. Hún sagði við blaða- mennina: ,,Ég ætla ekki að gera eitt einasta handtak." Frétt'amyndir. 1 mnrásinni, sem Bretar gerðu á Lofoten i Noregi voru teknir 225 fangar bæði þýzkir og norskir nazistar. Á myndinni sjást þeir vera að fara um borð í fangaskipið og eru allir með bundið 'fyrir aug- un, til þess að þeir sjái ekkert, sem gæti komið sér vel fyrir óvinina að vita. Bretar höfðu einnig á brott með sér 300 Norðmenn, sem vildu fara í striðið gegn nazismanum. Henry A. Wallace varaforseti Bandarikjanna (til vinstri) færir Robért Doughton (í miðjunni) frá North Karolina og Pat Harrison frá Mississippi heillaóskir, þegar þeir halda hátíðlegt 30 ára þing- sufmæli sitt. Claire Shepafd dansar niður með miðstúkunni á hermannaskemmt- un. sem haldin var i Camp Edward fyrir hermenn, sem voru á heræfingum. Mennimir em úr 182. hersveitinni og flestir frá Boston. Petta var fyrsta skemmtunin þeirra og hún virðist hafa tekizt vel. Nína systir Clarie er bak við hana.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.