Vikan


Vikan - 05.03.1942, Blaðsíða 13

Vikan - 05.03.1942, Blaðsíða 13
VIKÁN, nr. 5, 1942 / 13 Glataða dóttirin. Hvers vegna segið þér mér ekki söguna hennar langömmusystur " yðar?“ sagði ég við Don Eduardo, sem átti einhverjar stærstu ekrurnar í ríkinu Guerrero, og sem enn þótti ákaf- lega gott sherry og hafði gaman af að segja sögur. „Ég skal segja yður söguna með mestu ánægju, Senor,“ sagði Don Eduardo og horfði hugsandi ofan í tómt glasið sitt. „Moises," kallaði ég til þjónsins. „Annað glas af Amontillado handa Don Eduardo.“ Eftir að Moisés hafði fyllt glas Don Edu- ardos, byrjaði hann strax á sögunni. „Senor, langömmusystir mín, Gloria Mereedes Mazon de la Pena var í raun og veru mjög einkennileg kona. Hún var alin upp í Guadaljara og var fegurri en nokk- urt blóm. Hún hafði græn augu, rauðgyllt hár og hörund, sem var hvítt eins og fíla- bein og í viðbót við allan þennan yndis- þokka hafði hún töfrandi fagra söngrödd. Þegar Gloria var átján ára gömul yfirgaf hún Guadalajara og fór til Mexico City, ekki af því, sem þér haldið, heldur vegna þess að hún var orðin leið á fjölskyldu sinni, sem þrátt fyrir göfugar ættarvenj- ur, var ákaflega broddborgaraleg og vana- föst, og vinir Gloriu voru engu betri. Brott- för Gloriu vakti auðvitað geysilegt hneyksli í Guadalajara. Aldrei fyrr hafði slíkt kom- ið fyrir í allri sögu Mazon de la Pena fjöl- skyldunnar. Það er óþarfi aðtakaþað fram, að Gloria var strax gerð arflaus. Upp frá þeim degi var nafn hennar aldrei nefnt af meðlimum Mazon de la Pena ættarinnar. Hvað þeim viðvék, var eins og Gloria hefði aldrei fæðzt i þennan heim. Flest allar konur, sem komá félitlar og vinasnauðar til Mexico City, þjást og líða mikið, en þannig var það ekki um Gloriu. Löngu áður en Gloria hafði eitt seinasta skilding sínum, var hún búin að fá eig- anda fjölsóttasta veitingahússins til að ráða sig sem söngkonu. Þremur mánuðum seinna var hún ekki einungis vinsælasta söngkona Mexico City, heldur einnig eftir- sóttasta kona borgarinnar. Stjórnmála- menn, hershöfðingjar, rikir ekrueigendur og jafnvel óbrotnir borgarar skriðu fyrir fótum hennar og jusu yfir hana gjöfunum. En Gloria hafði aldrei neinar dýpri tilfinn- ingar fyrir þeim. Að vísu varð hún sem snöggvast ástfangin af ljóðskáldi og seinna fiðluleikara, en það kom í ljós, að hvorugur þessara ungu manna var nægilega vel f jáð- ur til að halda áhuga hennar vakandi í lengri tíma. Eftir fáein ár varð Gloria leið á Mexico City. Þar gat hún ekki unnið sér nægilega hylli og frama, svo að hún ákvað að fara til Evrópu. Sú staðreynd, að hún hafði ekki lagt einn einasta eyri til hliðar, stóð ekki í vegi fyrir áformum hennar. Hún fór strax að daðra við hershöfðingja nokkurn, lof- S m á s a g a eftir Kim Schee. aði að verða ástmey hans fyrir vissa fjár- upphæð, sem skyldi greidd fyrirfram. Kvöldið, sem fyrsta stefnumót þeirra hafði verið ákveðið, yfirgaf hún hershöfðingj- ann og fór til Vera Cruz. Það var sagt, að vesalings hershöfðinginn, sem var bæði uppstökkur og hafði of háan blóðþrýsting, hefði fengið slag sama kvöldið. Hvort það hefir verið vegna peninganna, sem hann hafði greitt fyrirfram, eða vegna stúlkunn- ar, er ómögulegt að segja, því að hann gat aldrei talað framar og dó nokkrum vikum seinna og lét eftir sig heitt elskaða eiginkonu og níu börn, sem öll syrgðu hann. Gloria vakti strax geysilega athygli í Evrópu. Hún söng í dýrustu veitingahús- um og sönghöllum allt frá Konstantínopel til London. Hún var tízkufyrirmynd í öll- um þeim löndum, sem hún ferðaðist um og hún hélt áfram að ganga í augu karlmann- anna. Dagblöðin skrifuðu ótrúlegustu sög- ur um líf hennar í Mexico og var alltaf lögð áherzla á, að hún væri af einni rík- ustu og tignustu ætt Mexico. En Gloria varð brátt leið á öllum þessum fagurgala. Þessar skepnur, eins og hún kallaði menn- ina, sem alltaf voru í kringum hana, voru ekki lengur skemmtilegir. Hún þóttist nú Z % 1 Dægrastytting Orðaþraut. ' AL A F AR Æ S A L I N Æ L A LlN AUS Ý S A Fyrir framan hvert þessara orða á að setja einn staf, svo að ný orð myndist. Séu þeir stafir lesnir að ofan og niður eftir, myndast nýtt orð. í>að er nafn á íslenzku fjalli. Heilabrot. 1. ,,Hvað verðið þér gömul á næsta afmælis- degi yðar?“ spurði telpa unga stúlku. ,,Það getur þú sjálf reiknað út, þú ert svo dugleg að reikna. Aldur minn er þrisvar sinnum hærri tala en mánaðardagurinn, sem ég er fædd á, og helmingi hærri en tala mánaðarins í árinu. Ef allar tölurhar eru lagðar saman, aldur minn, tala mánaðarins í árinu og mánaðardagurinn, þá koma út fjörutiu og fjórir. Reiknaðu nú út, hve gömul ég er, og hvenær ég á afmæli.“ Telpan reyndi og henni tókst það. 2. Hvaða vagni er ekki hægt að aka í? Sjá svör á bls. 14. sjá, að það, sem hana vantaði, var ást, óbrotnir lifnaðarhættir og um fram allt að vera ekki fræg. En þessi breyting í lífi hennar var ekki algjörlega frumleg. Gloria hafði komizt mjög við af meðferð Söruh Bernhardts á hlutverki „Kamilíufrúarinn- ar“, og allt í einu hafði henni orðið það ljóst, að þetta fjölbreytta líf, sem hún hafði lifað, var henni ekki samboðið, og það mundi að lokum eyðileggja hana eins og Kamilíufrúna. Þannig stóð á því, að Gloria lék hlutverk Kamilíufrúarinnar um stuttan tíma, og hún fann sér líka Armand og eftir mikla umhugsun hafnaði hún öll- um veraldlegum gæðum og flutti í lítið hús í Normandy. En þetta tímabil varð samt sem áður mjög stutt og ólánssamt. Eftir þrjá mán- uði var Gloria komin aftur til Parísar, far- in að syngja á veitingahúsi og Armand hennar var aðeins bitur minning. Tilbreyt- ingaleysi fuglakvaksins, einveran í sveit- inni og þessar venjulegu deilur elskenda þreyttu Gloriu fljótlega, og eftir það lýsti hún „Kamilíufrúnni“ sem „pura caca“, sem ég vona að Frakkar reyni áldrei að þýða. Næstu fimm árin var Gloria oftast í París. En vinsældir hennar sem söngkonu fóru 'að réna. Það varð stöðugt minna og minna um atvinnu, þangað til Gloría var komin í burt, og enda þótt karlmennirnir sveimuðu enn í kringum hana, þá hafði hún misst hæfileikann til að nota sér þá. I fyrsta sinni á ævi sinni gat Gloria ekki fundið neina lausn á málum sínum, og þá fór húíl að biðjast fyrir eins og sanntrú- aðri kaþólskri konu sæmir. Stuttu síðar fór Gloria að þjást af ein- kennilegum þrautum í maganum. Hún fór til læknis síns, og eftir að hafa skoðað hana, lýsti hann því yfir, að hún væri með gallsteina, og að það yrði að skera hana upp hið fyrsta. Gloria fann á sér, að þessi uppskurður yrði hættulegur, og þetta fannst henni vera svar við bænum sínum. Guð hafði fundið úrlausn. En ef hún ætti að deyja, varð hún að deyja á eins stór- fenglegan hátt, og hún hafði lifað, svo að hún tók að undirbúa dauða sinn af engu minni leikni en hún hafði lifað lífinu. Með aðdáunarverðri ró útvegaði hún sér bezta skurðlækninn í París til að framkvæma uppskurðinn. Síðan valdi hún skrautleg- asta herbergið í dýrasta spítalanum og lét setja ný húsgögn í það og fylla það af sjaldgæfustu og dýrustu blómunum, sem fengust. Fáeinum dögum seinna, þegar hún var lögst á spítalann, lét hún kalla á forstöðu- mann spítalans og talaði lengi við hann: Hún byrjaði á að segja honum, að ef svo skyldi fara, að hún kæmist ekki yfir upp- skurðinn, þá ætlaði hún að semja erfða- skrá og arfleiða spítalann að öllum eign- um og ekrum, sem hún hefði erft eftir hina frægu fjölskyldu sína í Mexico. Hún hafði orð á, að þetta mundi vera nokkurra mill- jóna virði eða meira. I staðinn vildi hún láta stjórn spítalans undirskrifa samning, þar sem spítalinn ábyrgðist að sjá um

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.