Vikan - 03.06.1943, Side 10
10
VIKAN, nr. 22, 1945
ucimii m
n c i iii i l ■ u
Matseðillinn.
Gulrótasúpa.
2 1. þunnt kjötsoð, 500 gr. gul-
rætur, 20 gr. smjörlíki, 20 gr.
hveiti. 1—2 eggjarauður, salt,
pipar.
Gulrætumar em þvegnar og flysj-
aðar, soðnar í kjötsoðinu þar til þær
eru meyrar. Soðið siað, smjörlíkið
brúnað, hveitið sett út í, þynnt út
með heitu soðinu. Látið sjóða nokkr-
ar mínútur. Eggjarauðumar em
hrærðar vel, og súpan að lokum jöfn-
uð með þeim. — Salt og pipar sett út
í eftir bragði. — Gulrætumar em
skomar í smábita og settar út í
siðast.
Steiktir kjúklingar.
4 kjúklingar, 50 gr. smjör, 50
gr. flesk, y2 1. soð, 2% dl.
rjómi. 1 tesk. salt, svolítið af
pipar.
Kjúklingarnir em reyttir og síðan
sviðnir yfir logandi brennsluspritti,
sem hellt hefir verið á\matarsalt.
Haus og fætur skorið af. Rist þvert
yfir, fyrir aftan bringuna, þvi hún
verður að vera heil, og öll innýflin
tekin burtu. Þvegnir vel og þurrk-
aðir bæði utan og innan. Saltinu og
pipamum nuddað innan í. Fleskið
skorið í ræmur, og því velt upp úr
salti, síðan stungið á við og dreif í
fuglinn. Smjörið brúnað í potti og
fuglamir settir þar í og brúnaðir vel.
I>á er sjóðandi soðinu hellt yfir. Ef
ekki er til soð, þá heitu vatni, og látið
sjóða ca. 1 klst., við hægan hita.
Sósan.
3 dl. soð, 2 y2 dl. rjómi, 25 gr.
smjör, 15 gr. sagomjöl, 1 mat-
skeið tómatsósa, 1 matskeið af
rjómanum þeytt.
Sagómjölið er hrært út með rjóm-
anum, nema því, sem tekið er frá
til þess að þeyta, hellt út í soðið og
sett í pott og látið sjóða, ásamt
tómatsósunni. Smjörið síðan látið út i
og salt, ef með þarf. Þeytti rjóminn
látinn i sósukönnuna um leið og sós-
an er borin fram. Ef vill má setja
rifshlaup í sósuna.
Nú er sumarið komið og allar
ungar stúlkur vilja vera léttklæddar.
Þessi kjóll er mjög hentugur fyrir
þær stúlkur, sem eru mikið úti.
Munið, að þvo og þurrka brauð-
kassann yðar ekki sjaldnar en viku-
lega.
Þvoið ullarábreiður úr veiku sápu-
vatni; sterkt sápuvatn getur orsakað
það, að ábreiðumar hlaupi.
IIIIBréf frá húsmóður.
Eftir CLEVERLAND MYERS
Ég hefi oft haldið þvi fram í þess-
um greinum mínum, að ungir feður
og húsbændur, sem hjálpuðu til við
heimilisstörfin og við að líta eftir
börnunum, leggðu með því grund-
völl að gæfuríku heimilislífi í fram-
tíðinni. Hér fylgir á eftir skemmti-
legt bréf:
„Kæri Myers: Fyrir nokkm birt-
uð þér bréf frá ungri móður, sem
sagði, að sér þætti það hlægilegt, að
sumar konur vildu, að mennimir
þeirra hjálpuðu þeim, eftir að þeir
hefðu unnið úti allan daginn, og, að
það væri eingöngu tilkomið af þvi, að
þær nenntu ekki að vinna sjálfar. Nú
langar mig til að segja frá minni
reynslu í þessu máli.
Maðurinn minn er skólakennari,
og fær 100 dollara í laun á mánuði.
Við eigum fimm börn — það elzta
níu ára og það yngsta átta mánaða
— og við búum í húsi, sem er frekar
gamaldags. Síðastliðið ár hefi ég soð-
ið niður 600 fjórðunga af ávöxtum
og kartöflum. Ég þvæ sjálf alla
þvotta, og geri öll heimilisstörfin. Ef
þarf að mála eða veggfóðra, þá geri
ég það líka. Ég sá alveg um garðinn
í sumar, af því að maðurinn minn
stundaði vinnu langt í burtu frá
heimilinu. Ég sauma allt sjálf, þar
á meðal buxur og skyrtur á dreng-
ina mína, og legg aldrei neitt frá
mér óviðgert.
Mér gefst tími til að lesa eina og
stundum tvær sögur fyrir krakkana
á hverju kvöldi. Ég kenni tveim elztu
telpunum mínum að spila á píanó, og
tveim öðrum telpum úr nágrenninu.
Ég er skrifari sunnudagaskólans, sem
maðurinn minn hefir umsjón með.
Ég hefi haldið dagbók siðan ég var
tólf ára, og aldrei haft svo mikið að
gera, að ég gæfi mér ekki tíma til
þess að skrifa í hana á hverjum degi.
Ég les dagblöðin og fylgist vel með
öllu eftir þvi, sem efni leyfa.
Með öðrum orðum, ég lifi, ég elska,
ég hlæ, ég vinn og skemmti mér með
manni mínum og fjölskyldu.
Auðvitað þurfum við að spara, við
verðum að halda vel utan að hverj-
um eyri, nota kápur og önnur föt í
ár, sem eru frá því í fyrra. Ég liða
sjálf hár mitt og stoppa sokkana
mína. Og með þessu móti komumst
við af. Við erum yfirleitt ekki ver
klædd en gengur og gerist. Um hver
mánaðamót ákveðum við, hversu
margar krónur skuli fara í þetta eða
hitt. Bömin, þó þau séu ekki eldri,
vita hvaðan peningamir koma og
hvert þeir fara. Þau vita, hvers vegna
þau geta ekki fengið peninga fyrir
sælgæti, eða fengið að fara í kvik-
myndahús.
Ég læt börnin öll læra að vinna.
Telpumar hjálpa mér í húsinu, þvo
af diskum, búa upp rúm. Drengurinn,
sem er níu ára, sækir spýtur og kol
og kveikir í arineldinum.
Samt sem áður, þveröfugt við kon-
una, sem hélt sig hafa svo mikið að
gera, þá bið ég manninn minn oft
að . hjálpa mér. Hann hugsar að
mestu leyti um garðinn, og allar við-
gerðir utan húss. Ef hann kemur
þreyttur heim frá vinnu og sér, að
ég er önnum kafin við að ljúka
heimilisstörfunum, þá hjálpar hann
mér óbeðinn. Oft höfum við til dæm-
js unnið fram að miðnætti, við niður-
suðu eða eitthvað þess konar.“
Heimili sem það, er að ofan greinir,
eru hjarta sérhvers þjóðfélags. Okk-
ur mundi öllum þykja skemmtilegt
að vera velkomin inn á slíkt heim-
ili, sem þessi kona lýsir.
Húsráð.
Ef þér ætlið að sjóða egg, sem
hefir sprungið, er ágætt að smyrja
með smjöri yfir sprunguna.
N0TIÐ eingöngu
LINIT
PERFECT LAUNDRY STARCH
ÆMIíl Ji. iíli- ÍHHnMJMZ
; COnOH LOOK AKO FEEL UKEjt
STÍFELSI
Heildsölubirgðir:
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON * CO.
Swaw
rakkrem mýkir og
styrkir húðina og
gerir raksturinnað
ánægju.
t
i
Heildsölubirgöir:
Agnar Norðfjörð & Co.h.f.
Sími 3183.
Dömur!
Hjá okkur getið þér fengið
J A K K A
prjónaða eftir máli,
og valið sjálfar um
liti og snið.
PRJÓNASTOFAN
IOPI & GARIU
Skeggjagötu 23. Sími 5794.
Austurstræti 14.
Sími 5904.