Vikan - 14.10.1943, Side 1
Nr. 41, 14. október 1943.
Ad og snœtt
undir berum himni.
að eru ekki þeir tímar núna, að þjóð-
höfðingjar geti ferðast um í frið-
samlegum erindagerðum eða leitað sér
dægrastyttingar og hvíldar fjarri heima-
landi sínu. Vér birtum nú á forsíðu mynd,
sem tekin var þremur árum eftir lok
heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Árið 1921 komu Kristján konungur tí-
imdi, Alexandrine drottning og synir þeirra
í heimsókn til íslands, ásamt föruneyti.
Dvöldu þau nokkra daga í Reykjavík og
var þá, meðal annars, rafmagnsstöðin við
Elliðaárnar opnuð af konungi. Veizluhöld
fóru fram í Reykjavík og á Þingvöllum.
Var fyrst haldið í bifreiðum til Þingvalla,
en þaðan á hestum að Geysi og Gullfossi
og niður Hreppa að Stóru-Laxá hjá Lang-
holtsvaði. En þessa leið ók drottningin í
léttivagni. Frá Stóru-Laxá var síðan hald-
ið í bifreiðum til Reykjavíkur með stuttri
viðdvöl við Sogsfossana.
Myndin að ofan er tekin við Brúará, af
Ólafi Magnússyni hirðljósmyndara, en þar
var staðnæmst á ferðalaginu og notið
hressingar. Fjöllin í baksýn er Högnahöfði
og Miðfell.
Fyrir miðju borðinu má sjá konung og
snýr hann andliti fram, en gegnt honum
situr drottningin og við hlið hennar Frið-
rek ríkiserfingi. Sömu megin og konungur,
en lengra til hægri, situr Knútur konungs-
sonur og gegnt honum Jón biskup Helga-
son og frú. Standandi lengst til hægri er
Jón Magnússon forsætisráðherra og fyrir
framan hann, bakvið mann með hvítt
kaskeiti, sést á Axel Tulininus, en hann
var fararstjóri. Við hægri enda borðsins,
og sést rétt á kollinn, er Guðmundur
Björnson landlæknir og gegnt honum
Klemens Jónsson fyrv. ráðherra. Stand-
andi, lengst til vinstri, má þekkja Matt-
hías Þórðarson fornminjavörð.