Vikan


Vikan - 14.10.1943, Blaðsíða 6

Vikan - 14.10.1943, Blaðsíða 6
6 VIKANr nr. 41, 1943 og ég er dálítið þreytt. Ég er heldur ekki ung lengur, ég má líka hugsa til þess — að vor- dagar lifs míns eru liðnir; mér finnst ég vera orðin gömul og föl.“ Hún hló, en hlátur hennar var uppgerðarlegur, og Revelstone horfði dapurlega á hana. Hvað var það, sem gerði hana svona dapra, hvað hafði komið fyrir hana, þessa þróttmiklu konu, sem hann alla tið hafði ,dáð og virt svo mikið — þennan glaða og hrausta félaga hans, sem um síðir hafði tekizt að endurlífga lífsgleði hans, útrýmt hinum skuggalegu og döpru hugsunum hans, og fengið hann til þess að gleyma sinni sorglegu fortíð ? Var ekki vinskapur Barböru lifsnauðsyn- legur fyrir hann? „Föl og gömul,“ endurtók hann dauflega. „Hvað áttu við.“ „Ég á við það, sem ég sagði,“ svaraði hún og brosti um leið og hún beygði sig niður og fór að skoða bláklukku, sem óx í garðinum, og indælan ilm frá blóminu lagði að vitum þeirra. Sjáðu nú til, Revelstone lávarður. Burton kemur heim frá útlöndum og ætlar nú að setjast um kyrrt. Ég býst við honum á hverjum degi úr þessu, og þá verður brúðkaup okkar innan skamms. Heldurðu ekki, að hann verði fyrir dá- litlum — vonbrigðum, þegar hann sér mig? Það eru vorblómin, sem vekja hjá mér tilfinningar um það, að ég sé orðin gömul — vorblómin og Ethnee!“ „Góða, frú Maloney, þú gengur alveg fram af mér með svona tali!" „1 þessu augnabliki ofbýður mér það sjálfri, hversu tíminn líður hratt,“ sagði Barbara. „Ég mundi ekki hafa látið þetta dragast svona öll þessi ár, ef ég hefði ráðið. Ég hefði viljað gefa Howard lausan strax eða giftast honum; en í hvert sinn, er ég ámálgaði það við hann í bréf- unum, að það væri betra fyrir okkur að giftast strax, þá svaraði hann því ævinlega ákveðið neit- andi. Fyrir fimm árum var ég ákveðin, og vildi giftast honum — ég var komin á fremsta hlunn með að yfirgefa Glenns-kastala um tíma og fara til hans, en þá var það, sem Ethnee fékk botn- langabólguna og varð að láta skera sig upp. Þá varst þú mér hjálplegur og góður eins og fyrri daginn, þú varst sannarlega mín stoð og stytta þann erfiða tíma!“ Revelstone kinkaði kolli. „Þú varst mjög kvíðafull þá, það vissi ég vel. Ég sé það fyrir mér eins og það hafi skeð í gær! Ég sat inni hjá þér á meðan uppskurður- inn var gerður." Hann þagnaði við. Svo hélt hann áfram í glaðlegri tón:: „Auðvitað gazt þú ekkl farið í burtu frá Ethnee, á meðan hún var að ná sér. Það var líka ekki hægt fyrir þig að hafa hana með þér, með öðrum orðum, það varð að fresta brúðkaupinu, og að endingu ákvað Burton að koma sjálfur til þín.“ „Já, hann ætlaði að gera það,“ svaraði Bar- bara, „en þá var það sem Glinkon-banki varð gjaldþrota, og Howard misti næstum allar eign- ir sínar. Það var mjög mikil áræðni hjá honum og þróttur, að hann skyldi strax leggja út á þá braut, að reyna að vinna upp aftur, það sem hann hafði tapað. En fyrir það varð hann að hætta við ferðalagið og dvelja áfram kyrr í Rhodesia. Ég bauð honum, að ég skyldi koma til hans, strax, þegar Ethnee væri orðin sæmi- lega hress, en um það vildi hann ekki heyra. Hann vildi ekki gifta sig fyrr en hann væri aft- ur orðinn rikur maður — hann var alltof stór- brotinn til þess að bjóða mér upp á fátæklegt heimili, eftir alit það, sem hann hafði heitiö mér. Já, það var sjálfsvirðing Howards sem eyði- lagði það, og það var ekki i fyrsta sinni.“ Hún stundi við — mjög hugsandi. „En nú er þetta alltsaman orðið gott!“ sagði Revelstone hughreystandi. Nú kemur Burton heim — biðtimanum er lokið.“ „Æska mín er lika liðin! Ö, ég fann það svo vel, að Howard gerði mjög mikla vitleysu í þá daga, þegar hann batzt mér, fyrir níu árum síð- an. Ég reyndi líka að leiða honum það fyrir sjónir, og koma honum í skilning um það.“ „Ég skil hann mæta vel, honum hefir fundist það ómaksins vert að bíða eftir þér, og þú værir þess fullkomlega verð.“ Revelstone talaði hægt og rólega, en sólarbirtan hafði auðsjáanlega skinið i augu hans, því hann deplaði þeim ofurlítið. Barbara hristi höfuðið. „Það er nú það, — og það hörmulegasta er og það, sem ég ber mestar áhyggjur af, að hon- um fannst það þá, að ég væri þess virði, að beðið væri eftir mér, og það mundi borga sig, en heldur þú ekki að honum snúist hugur nú, þegar hann sér mig? Hann mun verða fyrir mjög miklum vonbrigðum. Hann býst við ungri og fríðri stúlku, en hittir í staðinn fyrirgengilega miðaldra konu.“ „Hættu nú að ímynda þér svonalagað! Þú ert auðvitað ekki jafn ung og fyrir níu árum, en án efa engu síður töfrandi en þá! Og andlit þitt hefir aftur á móti miklu meiri festu í svip, heldur en áður!“ „Ó, góði Revelstone lávarður, þú ert alltof góður við mig allar stundir! Hér ert þú og vilt leggja það á þig, að reyna að hughreysta mig, og gylla hlutina fyrir mér! En ég hefi farið eftir því, sem spegillinn hefir sagt mér.“ Barbara þagnaði um stund og strauk hárlokk frá enni sér. „Annars þarf ég ekki að eyða tímanum fyrir framan spegilinn, til þess að sjá ellimörkin á mér, því upp á síðkastið hefi ég fundið mörg grá hár í lokkum míngm, og hrukkurnar í andliti mínu vitna einnig um það, að ég sé búinn að lifa mitt fegursta!" „Þetta er bara mas!.“ Revelstone hristi höfuðið. „Ég segi þér — og það er hreinn sannleikur — að þú -ert hrifandi fögur ennþá. Og trúir þú því ekki þar að auki, að persónuleiki þinn hafi nokk- uð að segja ? Ég get 'sagt þér, að það er persónu- leiki þinn og manngildi, en ekki fegurðin, sem hér hefir ráðið mestu um, hvernig þér hefir tekizt að stjóma þessum óupplýstu bændum, sem búa hér í kring á eignum þinum, og hvernig þú hefir getað unnið ást stjúpbamanna svo, að þau til- biðja þig.“ „Persónuleiki minn —,“ hún brosti háðslega, „ég hélt að ég ætti hann ekki til. En ég veit að eitt sinn var ég ung og frið, en nú er ég orðin þrjátíu og sex ára!“ „Það skiptir engu máli, hve gömul þú ert! Þú getur verið tuttugu og sex ára, eða þrjátíu og sex ■— þú ert alltaf sú sama, hvort heldur sem væri! Ég þekki þig, frú Maloney, og ég veit, að þú ert ein af þeim konum, sem alltaf eru jafn ungar og fallegar i augum þeirra, sem elska þær-! Þú fyrirgefur mér, þó ég tali svona blátt áfram, en, við erum góðir vinir, og ég á þér mikið að þakka." „Hefir þú mikið að þakka mér?“ „Já. Þegar ég hitti þig fyrst var ég bitur og napur sérvitringur, og það var af því að kona hafði gert mér vonbrigði, og valdið mér hryggð- ar — vesæl og aumkunarverð kona i raun og vera! Mér fannst ég eiga í stríði við lífið — og vera kaldhæðinn og gerði gys að öllu og öllum, fannst allt tilgangsleysi. En þú kenndir mér að meta lífið og gafst mér trúna á, að til væru góð- mennska, ást og viljaþrek!" Hann þagnaði augnablik. Síðan tók hann hönd Barböra og lyfti henni upp að vörum sér. „Þú ért eins og góður garðyrkjumaður, frú Maloney — mjög góður garðyrkjumaður, og eins og þú hefir útrýmt illgresinu úr garðinum hér í Glenns-kastala og plantað blómum í staðinn, svo hefir þú og upprætt illgresið úr sál minni." Erla og unnust- inn. Erla: Oddur minn, elskan, komdu snemma, mér finnst heil eilífð síðan ég sá þig seinast í gærkveldi, ástin min.“ Skrifstofumaðurinn: Hvers vegna ertu svona ánægður? Oddur: Draumadísin mín — kallaði mig ástina sína. Ég hlakka til, þegar við verðum gift. Þá skulum við búa í yndislegu litlu húsi uppi í sveit og nefna það „Birkilaut". Oddur: Ég sé mig í anda sitja við skrif- borðið, á inniskónum. — Elsku konan min sýður svo kvöldmatinn, en á eftir sitjum við fyrir framan arininn og röbbum saman —. Oddur: Aldrei rifrildi eða illt orð. -— Við stöndum saman í blíðu og stríðu. Hún verður elskulega blómlega húsmóðirin, og svo heimatilbúni maturinn. — Lífið verður leikur. Skrifstofumaðuxinn: Þetta er þá það, sem þú hugsar þérl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.