Vikan - 20.07.1944, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 29, 1944
3
AKUREYRI.
(Sjá forsíðu).
Innst við Eyjafjörð, á eyri þeirri, sem
hlaðizt hefir af árframburði fram í
fjörðinn, inn með firðinum þar fyrir
'innan og uppi á brekkunum vestanvert við
eyrina, Oddeyri, liggur Akureyri, hinn
fagri höfuðstaður Norðurlands. Fegurra
umhverfi er vart hægt að kjósa sér en
Eyjafjörðinn og fjallahringinn umhverfis
hann. — Að austan blasir við Vaðlaheiðin,
björt og brosandi á sólríkum sumardög-
um, en dimm og drungaleg, er þokubakk-
arnir teygja sig niður í miðjar hlíðar.
Sunnan við bæinn tekur við blómleg sveit,
Eyjafjörðurinn. Að vestan, uppi á brekk-
unni, er töluvert undirlendi og rennislétt
tún, en þar yfir gnæfa tignarleg fjöll, svo
sem Súlur og Hlíðarfjall. 1 norðri stendur
Lúðrasveit leikur á Báð-
hústorginu. Háðhústorg-
ið er miðdepill bæjarins.
Að vísu er ekki enn risið
þar ráðhús, sem fyrir-
hugað er, en þar eru
stór verzlunarhús, bif-
reiðastöðvar, kvikmynda-
húsið o. fl. myndarlegar
byggingar. Á miðju
torginu er, eins og sjá
má á myndinni, gras-
blettur með nokkrum há-
vöxnum birkitrjám, en
umhverfis hann eru
bekkir. — Gatan, sem
sést aftan til á mynd-
inni er Aðalstræti og
f ramhald hennar, Brekku-
gata, en til hægri sést
upphaf Strandgötu, sem
liggur út á Oddeyrina. —
Ljósm.: Eðvarð Sigur-
geirsson.
af allt fram til þess er bærinn fekk kaup- legu atvinnulífi og gegnum og dyggum
staðarréttindi árið 1862. borgurum, sem þykir vænt um bæinn sinn
Kaldbakur eins og útvörður og lokar útsýn Hin ágæta höfn Akureyrar, Pollurinn,
til sjávar. — mun að fornu hafa verið nefnd Hofsbót,
Nýtizku íbúðarhús á Akur-
eyri. Fyrstu verzlunarhúsin
á Akureyri voru reist inni
,,í fjöru“, allmiklu innar en
þar, sem nú er miðdepill
bæjarins, og þar risu einnig
elztu íbúðarhúsin. Síðar
færðist byggðin úteftir, út
á Oddeyri og upp á brekk-
una, þar sem þessi mynd
er tekin, en þar eru nú að
rísa nýju íbúðarhverfin.
r, '7~ m %'
■ .
•5:: • :
og vilja veg hans sem mestan.
Það er aðkomumanninum líka augljóst,
að Akureyringar vilja bæinn sinn sem bezt
útlítandi, bæði hið ytra og innra. Hvert,
sem litið er, blasa við fagrir skrúðgarðar,
sem bera ræktendum sínum þes vott, að
alúð og vinna hefir ekki verið spöruð af
bæjarbútun til þess að fegra bæinn. Einnig
annarsstaðar má sjá að hreinlæti og snyrti-
mennska er Akureyringum í blóð borin og
sýnir það m. a. hina ágætu umgengni á
hinum mörgu og góðu gisti- og veitinga-
stöðum, sem eins og áður er sagt, er til
fyrirmyndar.
En nú spyrja menn e. t. v.: „Á hverju
lifa þessir ágætismenn, sem virðast hafa
svona góðan tíma til þess að halda bænum
sínum hreinum og snyrtilegum ?“ Það yrði
langt mál að svara því til hlítar.
Atvinnulíf á Akureyri er sennilega f jöl-
breyttara en á nokkrum stað öðrum á
Akureyrar mun fyrst vera getið með
nafni um 1580, en sennilega er verzlunar-
staðurinn ekki eldri en frá því skömmu
eftir að einokunarverzlunin hófst. Þá fengu
kaupmenn frá Helsingjaeyri einkaleyfi á
'verzlun við „Akkersöen“. Nafnið Akkersö
eðaAkkerseyri mun hafa verið notuð lengst
en hvar það hof hefir staðið, sem nafnið
er dregið af, vita menn ekki nú.
Bærinn óx og þróaðist, og á þeim stað,
sem einokunarkaupmennirnir dönsku
reistu búðir sínar endur fyrir löngu, er
nú myndarlegur kaupstaður, næststærsti
bær á Islandi, með fjölbreyttu og blóm-
landinu, miðað við fólksfjölda. Þar eru
reknar hérumbil allar þær atvinnugreinar,
sem hugsanlegar eru hér á landi, iðnaður,
útgerð, verzlun, búskapur, skipasmíðar og
yfirleitt allar þær atvinnugreinar, sem
nöfnum tjáir að nefna, í skjóli þessara
aðalflokka.
Framhald á bls. 7.
Akureyri kringnm 1870—1880.
Húsaþyrpingin, sem sést á
myndinni, mun vera elzti hluti
bæjarins. •— Húsið fremst á
myndinni er gamli spítalinn,
en hitt eru gömlu verzlunar-
húsin, flest brunnin eða rifin
nú. Ofanvert við miðja mynd-
ina lengst til vinstri sést á
Torfunefið, en þar er aðal-
byggðin nú. Oddeyri, sem sést
i baksýn var á þessum tíma
næstum alveg óbyggð, en bygg-
ingamar, sem sjást á miðri
eyrinni, em verzlunarhús
Gránufélagsins.
■
-
ifeSllilS