Vikan - 20.07.1944, Síða 7
VIKAN, nr. 29, 1944
7
AKUREYRI.
Framhald af bls. 3.
Á Akureyri er sennilega mesti iðnaður
á landinu, miðað við fólksfjölda. Helztu
iðnfyrirtæki eru hinar miklu verksmiðjur
Sambands Islenzkra Samvinnufélaga,
ullarverksmiðjan Gef jun og Leður- og skó-
verksmiðjan Iðunn. Sambandið á þar einnig
að nokkru leyti sápuverksmiðjuna Sjöfn.
Auk þess eru mörg blómleg iðnfyrirtæki í
einstaklingseign, svo sem efnagerð, kaffi-
bætisverksmiðja, vélsmiðjur, trésmíða-
verkstæði, smjörlíkisgerð, skipasmíða-
stöðvar o. s. frv. Auk þess rekur Kaup-
félag Eyfirðinga, sem er einn stærsti
atvinnurekandi í bænum, talsverðan iðnað,
skipasmíðastöð, brauðgerð, smjörlíkisgerð
o. fl. Önnur atvinnufyrirtæki, sem skapazt
hafa vegna legu Akureyrar sem verzlunar-
miðstöð í frjósamri landbúnaðarsveit og
mætti e. t. v. teljast til iðnaðar eru t. d.
mjólkurvinnslu stöðin og sláturs- og frysti-
húsið.
Til alls þessa iðnaðar þarf mikið raf-
magn. — Árið 1921 var Glerá fyrir norðan
bæinn virkjuð, en sú virkjun varð von
bráðar of lítil, og var þá hafizt handa um
virkjun Laxár í Þingeyjarsýslu. Þeirri
virkjun var lokið 1939, og var þá Laxár-
stöðin tekin til notkunar. Nú stendur yfir
mikil aukning rafstöðvarinnar við Laxá,
og mun henni senn lokið. Vatnsveitu
bæjarins var komið upp 1914; fæst vatn
úr Hlíðarfjalli fyrir vestan og ofan bæinn.
Vegna legu sinnar er og mun Akureyri
alltaf vera mikil verzlunarmiðstöð;
þangað senda fjölmennar sveitir afurðir
sínar annað hvort til vinnslu, sölu eða út-
Framhald á bls. 14.
Frá Gróðrarstöðinni á Akureyri. Gróðrarstöðin á Akureyri er eign Rækt-
unaríélags Norðurlands. Félagið var stofnað 1903 og hóf starfsemi sina
við Gróðrarstöðina skömmu síðar. Auk trjágarðsins, sem er einn hinn
stærsti og fegursti hér á landi, eru í sambandi við Gróðrarstöðina reknar
ýmsar tilraunir í jarðrækt. Framkvæmdarstjóri Ræktunarfélagsins er nú
Olafur Jónsson, en hann tók við árið 1924. Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.
Höfnin á Akureyri. Fyrir stríð komu flest stóru ferðamannaskipin við á
Akureyri, og sést eitt slíkt hér á myndinni. Polurinn, eins og höfnin er
kölluð, er eitthvert bezta skipalægi, sem hugsazt getur af náttúrunnar
hendi. Hafskipabryggjur eru við hann, en hafnarmannvirki hafa verið
með minnsta móti þar til í vetur, en þá var hafizt handa um hafnargarðs-
byggingu og hafnargerð á Oddeyri. — Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.
P RENTVERK
Björnssonar
AKUREYRI
Stofnsett 1901
Símar 45 og 370
Pósthólf 45
cdká 1943:
MESTA BÖKAPRENTSMIÐJA Á ÍSLANDI.
/