Vikan


Vikan - 24.08.1944, Side 7

Vikan - 24.08.1944, Side 7
VIKAN, nr. 34, 1944 \ 7 I'rancis X. Bushman, var fyrir um tveim áratugum álitinn lang karlmannlegasti og vin- sælasti leikarinn. Ham^er nú aftur að leika i kvikmjmd, úr æfisögu Wilsons Bandaríkja- forseta. A síðari árum hefir það tíðkast, að tveim kvik- myndaleikurum, karli og konu, eru veitt verð- laun fyrir beztu mynd og bezta leik hvers árs. Verðlaun þessi er lítil silfurstytta, sem gengur undir nafninu „Oscar". Árið 1942 voru Greer Garson veitt þessi verðlaun fyrir leik sinn í mynd- inn „Random Harvest“. Mary Pickford, sem átti eftir að ná meiri vinsældum en nokkur önnur kvikmyndastjama, sézt hér til vinstri í fyrstu kvikmynd sinni, „Draugahúsið". KVIKMYNDAGERÐIN I sumar eiga kvikmyndimar 50 ára afmæli. Á fimmtíu árum hefir kvikmyndatæknin breytzt frá því að gera ófullkomnar, mínútulangar smá- myndir í voldugan iðnað til fræðslu og skemmt- unar tugum, já hundruðum milljóna manna. Það var vorið 1894, að fyrstu kvikmyndirnar voru sýndar almenningi. Það voru tveir bræður í New York, sem breyttu skóverzlun sinni og komu þar fyrir tíu ,,kinetoskop“-vélum, sem Thomas A. Edison hafði fundið upp og smíðað. Edison hafði fengizt við tilraunir sinar með þessi nýju tæki í 7 ár, er almenningi gafst fyrst kostur á að sjá þau. Hémmbil það eina, sem var sameigin- legt þessum fyrstu kvikmyndum og kvikmyndum nútimans var það, að þær hreyfðust, og hve miklum vinsældum þær náðu. Fyrsti kvikmyndatöku „salurinn" var þaklaus skúr, sem hægt var að snúa þannig, að nota mætti sólarljósið allan daginn. Þessa furðusmíði átti Edison félagið í New Jersey. 1 mörg ár voru einu kvikmyndirnar örstuttar ræmur, sem gengu undir ýmsum nöfnum: „fréttamyndir", „leiksýn- ingar", ,,atvik“ og „töframyndir". Deikaramir voru aldrei nefndir með nafni. Hvað það snerti, þá voru leikstörf aðeins hjáverk þeirra; aðal- starfið lá i málun leiktjalda, smíðum o. s. frv. — Það, sem mjög einkenndi þessar myndir var handahófsfrágangur og barnaleg atvik i þeim. En um 1903 hófst öld furðulegra uppfinninga- og framfara á þessu sviði. Á þvi ári lét Edison •einn af framkvæmdastjórum sínum, Edwin S. Porter, gera kvikmynd, sem hét „Ævi amerísks slökkviliðsmanns", en sú mynd er nú álitin fyrsta kvikmynd með líku sniði og nú er, og „Járn- brautarlestarránið mikla", fyrsta myndin með söguþræði í. 1 þeirri mynd var í fyrsta skipti tekið upp á því að taka myndir úr mismunandi fjarlægð — til þess að sýna atburðina frá tveim mismunandi stöðum. — Snemma voru gerðar tilraunir til þess að sameina kvikmyndirnar hljóm og lit, með grammófóninum og handlitun, en það varð ekki fyrr en þrem áratugum síðar, að þessar tilraunir báru lífvænlegan árangur. Er árin liðu, eignaðist Edison marga keppi- nauta. Einn hinna fyrstu, sem náði árangri með tilraunir sinar var Frakkinn George Melies, sjón- hverfingamaður, sem uppgötvaði, að hann gat villt mönnum sýn í sjónhverfingarbrögðum sín- um með því að nota kvikmyndir. Það var hann, sem fyrst notaði mörg tæknisbrögð, eins og til dæmis að láta myndina hverfa í þoku, leysast á hálfrar aldar afmœli Ein bezta myndin, sem gerð var í síðustu heimsstyrjöld, var „Hjörtu heimsins" (Hearts of the World), sem stjórnað var af D. W. Griffith. Þessi mynd, sem var fyrsta stríðsmyndin, með því sniði, sem við þekkjum þær í þessu stríði. Til hægri er hinn þekkti leikritahöfundur Noel Coward, sem síðan hefir orðið frægur fyrir leikrit sín, kvikmyndir og lagasmíði. Pearl White var um skeið ein- hver allra vinsælasta kvik- myndastjaman. Hún hóf kvik- myndaleik sinn 1914 og lék í kvikmyndum þangað til 1923, en þá fluttist hún til Frakk- lands, þar sem hún lézt 1938. upp og láta tvær myndir renna saman. Frægasta kvikmynd Melies’, „Ferðalagið til tunglsins", byggt á sögu Jules Veme, stóð tæknislega langt- um framar en allar eldri kvikmyndir. Árið • 1909 var gerð fyrsta teiknikvikmyndin, „Gertie", og voru í henni 10.000 teikningar. Þess- ar Gertie-myndir, sem voru teiknaðar af Winsor McCay, voru lang vinsælastar sinnar gerðar, þar til Walt Disney kom fram með Mickey Mouse 19 árum síðar. Fram til 1907 voru öll Amerísku kvikmynda- félögin í austurríkjunum eða í Chicago, en þá var fyrsti kvikmyndatökusalurinn reistur á vest- urströndinni. Um 1915 var miðstöð iðnaðarins komin til Hollywood. Þegar á tilraunaárunum höfðu Ameríkumenn og Evrópumenn skipzt á hugmyndum og efni, og nú hófust þau skipti á leikurum, stjómendum og vélfræðingum, sem áttu eftir að gera Hollywood að alþjóðaeign og skapa þar eirja stærstu skemmtimiðstöð heims. Smám saman fór kvikmyndaiðnaðinum fram á öllum sviðum. Um og eftir 1914 var farið að leggja meiri áherzlu en áður á góð leiksvið, og leitazt við að skapa leiklist með einhverju gildi. Margir viðurkenndir listamenn leiksviðsins fet- uðu í fótspor Söru Bemhardt, sem 1912 lék „Elisabetu drottningu“ fyrir Louis Merchanton í Frakklandi. Og kvikmyndalistin skapaði sinar eigin stjöm- ur — Mary Pickford, Charlie Chaplin, Gloria Swanson og margir fleiri. — Árið 1915 var eitt- hvert hið þýðingarmesta í sögu kvikmyndanna. Þá var það, sem D. W. Griffith stjórnaði og lét gerð fyrstu stórmyndina, mynd, sem var, og er, listrænt og tæknislegt meistaraverk. Myndin hét „Hvemig þjóð verður til,“ og hún átti drjúgan þátt í þvi, að milljónir manna fóru að taka til- lit til kvikmyndalistarinnar og setja hana á bekk með leiklistinni og bókmenntunum. Næsta ár gerði Griffith aðra stórmynd, „Um- burðarleysi", sem lýsir anda umburðarleysisins gegnum aldirnar. Með þeirri mynd fullkomnaði hann enn tæknina, og leiksviðsútbúnaður og hóp- sýningar þeirrar myndar hafa verið teknar til fyrirmyndar síðan. Á öðrum tug þessarar aldar náðist fullkomn- un þeirrar listar að nota andlitsfarða og allskon- ar blekkingar, og ennfremur var þá til fullnustu notuð ljósmyndavélin, þannig að myndir vora Framhald á bls. 15.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.