Vikan


Vikan - 30.11.1944, Blaðsíða 2

Vikan - 30.11.1944, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 43, 1944 Pósturínn \ Rvík, 7. 7. ’44. Kæra, fjölfróða Vika! Mig- langar til þess að biðja þig um að gefa mér nokkrar góðar upplýs- ingar eftir því sem þú hefir efni á. Mig langar ákaflega mikið til þess að læra að spila á „trompet". En ég hefi lítil auraráð. Getur þú sagt mér, hvað slikt hljóðfæri muni kosta ? Ennfremur: Hve mikið kostar kennsla í trompet-leik ? Hverjir kenna ? Hve lengi þurfa menn að vera hjá kennara? Með fyrir fram þökk fyrir svör- in, óska ég þér allra heilla. Þinn „Músikant”. Svar: Trompetar hafa verið seldir hér á stríðsárunum frá 500—1200 kr., en kostuðu fyrir stríð, I. flokks og nýjir, (þeir, sem seldir hafa verið hér undanfarin ár hafa flestir verið notaðir) 400 kr. (lakari tegundir allt ofan í 50 kr.). — Talið fyrst við kenn- ara áður en þér festið kaup á hljóð- færi. — Karl O. Runólfsson tónskáld kennir trompetleik, og gjaldið fyrir klst. er 20 kr. Hann er kennari við Tónlistarskólann og býr á Lauga- vegi 52. Kæra Vika! Viltu vera svo góð og segja mér, hvort hér í bókaverzlunum fæst bók um hænsnarækt, á Islenzku eða ein- hverju öðru máli. - Matthías, sem segir satt. Svar: 1 bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar fæst bók, sem heitir „Hænsnarækt" og kostar hún 2 kr. Nýjcar raótnaúfgólur eftfr Hallgrím Helgason 1. Tuttugu og fimm íslenzk þjóðlög. 2. Sexlítil lög (fyrir blandaðan kór). 3. Tuttugu og tvö íslenzk þjóðlög. 4. Heilög vé (hátíðarkantata Jóns Magnússonar). 5. Þrjátíu smálög (fyrir píanó eða harmóníum). 6. íslands Hrafnistumenn (fyrir píanó, einsöng, karla- kór). 7. Fjögur sönglög (fyrir eina rödd og undirleik). 8. Fjögur íslenzk þjóðlög (fyrir einsöng með undirleik). 9. Sónata fyrir píanó nr. 1. 10. Almenn tónfræði, 1. hefti. Undirrit- óskar að fá sent af nótna- Vegna takmarkaðs upplags verða þessi verk eingöngu ætluð útgáfu eftir Hallgrím Helgason: áskrifendum. Nr Eru þeir beðnir að útfylla meðfylgjandi miða og senda í: Nafn: Pósthólf 121, Heimili: - Reykjavík. Kæra Vika! Mig hefir alltaf langað svo til þess að læra kvæðið „Á Glæsivöllum“ eftir Grim Thomsen, viltu nú ekki vera svo góð að birta það fyrir mig? Með innilegu þakklæti. S. S. Hér kemur kvæðið. Á GlæsivöUum. Hjá Goðmundi’ á Glæsivöllum gleði er í höll, glymja hlátra sköll, og trúðar og leikarar leika þar um völl, en lítt er af setningi slegið. Áfengt er munngátið og mjöðurinn er fom, mögnuð drykkjarhom, en ómynnishegri og illra hóta nom undir niðri’ í stiklunum þmma. Á Grim’ enum góða af gulli höfuð skín, gamalt ber hann vín; en homs yfir öldu eiturormur gin, og enginn þolir drykkinn nema jötnar. Goðmundur kóngur er kurteis og hýr, yfir köldu býr; fráriar eru sjónir, en fölur er hans hlýr, og feiknstafir svigna í brosi. Á Glæsivöllum aldrei með ýtum er fátt, allt er kátt og dátt en bróðemið er flátt mjög og gamanið er grátt, í góðsemi vegur þar hver annan. Hom skella’ á nösum og hnútur fljúga’ um borð, hógvær fylgja orð; en þegar brotna hausar og blóðið litar storð, brosir þá Goðmundur kóngur. Náköld er Hemra, því Niflheimi frá nöpur sprettur á; en kaldara und rifjum er konungsmönnum hjá, kalinn á hjarta þaðan slapp ég. Kæra Vika! Mig langar til að spyrja þig, hver er maður hennar Greer Garson. Forvitin. Svar: Greer Garson er gift Rich- ard Ney, sem er í ameríska sjóhem- um. r Urvalsbœkur til jólagjafa: Minningar Sigurðar Briem. Nýjar sögur eftir Þóri Bergsson. Úr byggðum Borgarfjarðar, eftir Kristleif Þorsteinsson, frá Stóra-Kroppi. Fridtjof Nansen. Óður Bernadettu. Bókaverzlun ísafoldar. Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.