Vikan


Vikan - 30.11.1944, Blaðsíða 4

Vikan - 30.11.1944, Blaðsíða 4
4 VIKAN, nr. 43, 1944 Fráskili Hver hringdi dyrabjöllunni, María .. ?“ „Það var kona, sem vill fá að tala við frúna, hún bíður frammi í forstofu." „Hver er hún?“ „Frú Annalísa Níelsen!“ „Hvað segið þér? Fyrri kona mannsins míns ...“ „Konan sagði, að frúin mundi áreiðan- lega.taka á móti henni.“ „Hvers vegna ætti ég að gera eitthvað fyrir hana?“ „Hún sagði líka, að þér munduð taka á móti henni vegna yðar sjálfrar!" „FVrir mig sjálfa! Hvað á hún við með því? Jæja þá — biðjið frú Nielsen um að koma inn.“ * „Þér ætlið að tala við mig?“ „Já, takk.“ „Hefði yður ekki fundist það óþægilegt, ef maðurinn minn væri heima, og þér hefð- uð mætt honum?“ „Ég vissi, að hann væri ekki heima; og auk þess hefir hann valdið mér svo mikils sársauka, frá því að hann fór að líta á yður, að mig munar lítið um einhver óþægindi!" „Ég hélt, að þér væruð farnar að jafna yður eftir fimm ára skilnað?" „Já, það var ég líka.“ „Það ber lítið á því!“ „Það er auðvitað dálítið undarlegt fyrir mig að koma hingað í þetta hús, sem ég hefi sjálf búið í, og þar sem þér og hann búið nú —.“ „Það var líka mér að kenna, að hann seldi það ekki og keypti annað í staðinn, þegar við giftumst, en hann gat ekki hugs- að til þess að flytja í annað hús.“ „Nei, hann var húsinu tryggur.“ „En til hvers komið þér hingað? Hvaða gagn er að þessum óþægilega fundi okk- ar?“ „Ég kem til þess að aðvara yður!“ „Við hverju?“ „Örlögum mínum!“ „Hvað eigið þér við með því?“ „Þér tókuð manninn minn frá mér, og nú eigið þér sjálfar á hættu að missa hann!“ „Það er ekki satt!“ „Þér vitið vel, að það er satt?“ „Já, já, ég veit það, og ég er örvingluð af því — en það er andstyggilegt af yður að koma hingað til þess að njóta hræðslu minnar — andstyggilegt!!“ „Ég kem til þess að hjálpa yður!“ „Mér!“ „Já, það virðist, ef til vill einkennilegt, og það er ekki af því að ég hafi samúð- með yður, þó að ekki sé til í þessum heimi nein uppreisn handa þeim, er verður fyrir Smásaga eftir Jens Locher órétti, þá er kannske til hegning handa þeim, er fremur óréttlætið!“ „Og sem hegning fyrir það, að Jóhanni leizt betur á mig, þá á ég nú að missa hann?“ „Nei, yður er áreiðanlega nógu hengt með þeim ótta, er hefir gagntekið yður undanfarið!" „Já, ég er hrædd, ó, ég er svo hrædd! Hann fjarlægist mig meira með hverjum degi, sem líður — hvernig á ég að fara að því að halda í hann, ég er þó falleg enn þá —!“ „Það er undarlegt, að þér spyrjið mig að því! Ekki gat ég haldið í hann, þegar þér vilduð taka hann frá mér.“ „Þekkið þér konuna, sem hann vill nú eignast? Er hún fallegri en ég?“ „Fyrst þér gátuð tekið hann frá mér, gæti þá ekki einhver önnur auðveldlega tekið hann frá yður?“ „Hvers vegna ætti það að vera auð- velt?“ „Af því að sumum mönnum finnst þeir bæta upp þann órétt, er þeir gerðu fyrstu konunni, með því að taka þá þriðju!“ „Þér segið satt; ég held, að hann hafi aldrei gleymt yður alveg!“ „Jú, en hann hefir aldrei fyrirgefið yður, að hann kom svona fram við mig!“ „Þér eruð víst betur gefin en ég.“ „Maður verður gáfaður af því að þjást —.“ „En þar sem þér viljið mér ekki neitt illt, hvers vegna komuð þér þá hingað?“ „Ég ætlaði að aðvara yður! Þér eruð svo dapurlegar. Það sést á yður, að þér eruð hræddar um að missa manninn yðar, og þér hafið líklega líka ásakað hann —?“ i : [ VEIZTU—? ■ " I I. I I I MUB ■ ■ ■ ■ ■ ■ 1. Hvenær var enska skáldið William i : Makepeace Thackeray uppi og hvar : fæddist hann? 2. Hvenær var sænska skáldið Kari Mikael Bellman uppi? 3. Eftir hvem er þessi vísa, og úr hvaða ■ kvæði er hún? ■ Tungan geymir i tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, darraðar ljóð frá elztu þjóðum; heiftar eim og ástarbríma, örlaga-hljóm og refsidóma, land og stund í lifandi myndum ljóði vígðum — geymir í sjóði. ■ 4. Hvað hefir gorillan margar tennur? | : 5. Hvað var örkin hans Nóa stór? i 6. Hvenær var hin fræga franska leik- : kona Sarah Bemhardt uppi? ; 7. Hver var ættfaðir Bourbonfjölskyld- unnar ? 8. Hvar er Casablanca? 9. Hver var Gaetano Donizetti og hvenær var hann uppi? 10. Hvaða ár er kvikmyndaleikarinn Nelson Eddy fæddur? Sjá svör á bls. 14. „Vitanlega!“ „Það megið þér ekki gera! Þér*hafið áreiðanlega sagt honum, að hann væri vondur og miskunnarlaus við yður, og sú kona, sem hann biðlaði til, væri leiðinleg og undirförul?“ „Hvernig vitið þér það?“ „Af því að ég sagði það sjálf við mann- inn minn, þegar þér —.“ „En hún er svona!“ „Svona eru þær venjulega!“ - „Þér eigið við, að ég líka —?“ „Ég kom til þess að hjálpa yður, fyrir- gefið yður get ég ekki!“ „En hvað á. ég að gera?“ . „Þér reynið að gæta hans, þér eruð af- brýðisamar, þér ásakið hann — alveg eins og ég gerði!“ „Vitanlega geri ég það!“ „Gerið þvert á móti. Látið sem þér séuð hamingjusamar, stríðið honum dálítið með þessu, eins og það væri bara yfirsjón, sýnið ást yðar ekki með sorg, heldur með gleði. Verið ungar, fallegar, hælið honum og gerið hann ánægðan með heimilið! Mun- ið að sú, sem ætlar að taka hann frá yður, er jafnhrædd og þér. Hrædd um að það heppnist henni ekki. Konur, sem taka eiginmenn annarra, eru alltaf hræddar um að hljóta sömu örlög sjálfar. Hefði ég verið jafnvitur þá og ég er nú, þá hefðuð þér aldrei tekið Jóhann frá mér, en ég syrgði og flýði af hólmi. Það megið þér ekki gera. Þér getið sigrað enn. Þér eruð fallegri en hún, og þér eruð reyndari! Berjist — berjist fyrr en það er um sein- an!“ „Ég skal gera eins og þér segið — en hvers vegna komið þér hingað og hjálpið mér svona vel?“ „Það geri ég fyrir mig sjálfa. Ég þoli ekki meiri biturleika í hug mér, þá gæfist ég upp. Ef Jóhann skilur nú líka við yður, þá væri það, eins og ég hefði verið vegin í annað sinn og reynst léttari. Ég verð að trúa því, að ég á mínum tíma hafi verið svikin vegna konu, sem var eina rétta eiginkonan handa honum, og ekki aðeins af því að hún væri yngri, og þess vegna tapaði aftur fyrir annarri, sem er enn yngri. Þá fyndist mér lífið alltof tilgangs- laust og ekki vert þess að lifa.“ Skrítlur. Gesturinn: Mér þykir þjónustustúlkan haga sér frekjulega gagnvart yður. Húsmóðirin: Já, en maður verður að þola gömlum hjúum margt. Hún er búin að vera hjá mér i þrjá mánuði. Bílstjóri (eftir að hafa ekið á slátrarasendi- svein): Er nokkuð að þér? Drengurinn: Við skulum sjá, hérna er lærið og þama er lifrin, en hvar era nýrun? Hún: Ég verð að segja þér það, pabbi er orð- inn gjaldþrota. Hann: Þetta vissi ég alltaf, að hann mundi finna upp á einhverju til þess að stía okkur sundur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.