Vikan - 01.02.1945, Page 3
VIKAN, nr. 5, 1945
3
»■ /
Utvegsbœrinn Isaljördur
(Sjá forsíðu).
Skutulsf jarðareyri fékk verzlunarréttindi árið 1786,
en bæjarréttindi og bæjarstjórn 1866. I»á voru þar
röskir 200 íbúar. Nú eru á Isafirði tæp 3000 manns.
íbúatalan hefir því fimmtánfaldast.
egar rætt er um „höfuðstað Vesturlands“, fsafjörð, er ekki
úr vegi að byrja á upphafinu og segja frá því, hvernig
nafn fjarðarins, Skutulsfjarðar, sem bærinn stendur við, er til
komið. 1 Landnámu segir, að Helgi, sonur
Hrólfs úr Gnúfufelli, hafi farið til fslands
að vilja frænda sinna. Þegar hann kom í
Eyjaf jörð, var þar albyggt. „ ... eftir það
vildi hann utan og varð afturreka í Súg-
andafjörð; hann var um veturinn með Hall-
varði, en um vorið fór hann að leita sér bú-
staðar; hann fann fjörð einn og hitti þar
skutil í f læðarmáli; það kallaði hann Skutils-
f jörð; þar byggði hann síðan .. .“.
Þótt byrjað hafi verið svona langt aftur i
tímanum, er ekki ætlunin að rekja hér sögu
staðarins, enda ekki rúm til þess. ísaf jörður
hefir lengi verið mikill verzlunar- og útgerð-
arbær, og eru skipin, sem þaðan hafa gengið
að undanförnu 14—25 tonna landróðrabátar,
40—80 tonna útilegubátar og eitt 300 tonna
síldveiðá- og flutningaskip. Þar er og fjöldi
opinna vélbáta. í hinu stór-fróðlega riti,
Skútuöldin, eftir Gils Guðmundsson, er sagt
frá því, í kaflanum um ísafjörð, að snemma
hafi „kaupmenn og siglingamenn veitt því
athygli, hversu góð hafnarskilyrði eru á
sumum stöðum við ísafjarðardjúp. Meðan
Þjóðverjar ráku hér verzlun á 15. óg 16. öld,
höfðu þeir einhverja helztu bækistöð á Lang-
Fiskþurrkun í Neðstakaupstaönum. (Myndin úr „Skútuöldín“).
Skipshöfnin á Geysi, einu af smáskipum Ásgeirsverzlunar. Skipstjórinn, Sigurbjöm Kristjánsson, er yzt til hægri í
fremri röð. Myndin er úr „Skútuöldin I.“, eftir Gils Guðmundsson.
Isafjörður.
eyri í Álftafirði. Þar er hin
ágætasta höfn fyrir innan
eyrina og verzlunarviðskipti
auðveld um allt Djúp..........
Önnur bezta höfnin við Isa-
fjarðardjúp var fyrir innan
Skutulsf jarðareyri, og er hún
með þeim ágætum frá nátt-
úrunnar hendi, að hún á vart
sinn líka, þótt leitað sé um
gjörvallt landið. Þarna munu
kaupmenn snemma hafa tek-
ið sér bólfestu. Árið 1602,
þegar einokunarverzlunin var
stofnsett, var Sltutulsf jarðar-
eyri eða Isafjörður, eins og
staðurinn nefndist síðar, einn
af hinum föstu verzlunarstöð-
um landsins. Kaupsviðið tók
yfir Súgandafjörð, Isafjarð-
ardjúp, Jökulfirði og Horn-
strandir, allt að Geirólfsgnúp.
Líklegt má telja, að hús ein-
okunarkaupmanna hafi jafn-
Framhald á bls. 7.