Vikan - 01.02.1945, Page 5
VIKAN, nr. 5, 1945
5
Ný framhaldssaga: ...................
Hver er Evans ?
............ Sakamálasaga eftir Agatha Christie
„Kannske hefir hann haldið, að þú hafir
séð eitthvað, sem þú álítur einskisvert, en sem
var í rauninni þýðingarmikið. Þetta virðist
kannske asnalegt, en þú skilur við hvað ég á?“
Bobby kinkaði kolli.
„Já, ég veit, hvað þú átt við, en það er samt
mjög ólíklegt."
„Ég er sannfærð um, að kletturinn kemur
þessu eitthvað við. I>ú varst þama á staðnum
— fyrsti maðurinn.“
„Thomas var þar líka,“ minnti Bobby hana
á. „Og enginn hefir reynt að gefa honum inn
eitur.“
„Þeir eiga það kannske eftir,“ sagði Prankie
glaðlega. „Eða það hefir kannske misheppnast."
„Þetta virðist allt mjög langt sótt.“
„Ég held að það sé alveg rökrétt. En bíddu,
allt er þegar þrennt er.“
„Hvað?“
„Starfið, sem þér var boðið. Það er auðvitað
smávægilegt atriði, en það var skrýtið, þú verð-
ur að viðurkenna það. Ég hefi aldrei heyrt getið
um útlend fyrirtæki, sem sóttust eftir óþekkt-
um, fyrrverandi sjóliðum."
„Sagðirðu óþekktum?"
„Þú varst ekki kominn í B. L. B. þá. En þú
veizt, hvað ég meina. Þú sást eitthvað, sem þú
áttir ekki að sjá — eða svo álíta þeir (hverjir
sem þeir eru). Nú, þeir reyna fyrst að losna við
þig með því að bjóða þér atvinnu í útlandinu. Svo
þegar það tekst ekki, þá reyna þeir að drepa
þig.“
„Væri það ekki nokkuð hrottalegt? Og að
minnsta kosti mjög mikil áhætta?“
„Ó, morðingjar eru alltaf svo hræðilega fram-
hleypnir. Eftir því sem þeir fremja fleiri morð,
því fleiri langar þá til að fremja."
„Eins og þriðji blóðbletturinn," sagði Bobby
og minntist eftirlætis skáldsögu sinnar.
„Já, og líka í lífinu sjálfu, — Smith og kon-
umar hans og Armstrong —.“
„En Frankie, hvað í ósköpunum á ég að hafa
séð?“
„Það er nefnilega vandamálið," samþykkti
Frankie. „Ég veit, að það hefir ekki verið, þegar
manninum var hrint fram af, af því að þá hefðir
þú sagt frá því. Það hlýtur að vera eitthvað við-
víkjandi manninum sjálfum. Hann var kannske
með fæðingarblett eða vanskapaðan fingur eða
eitthvað líkamseinkenni."
„Þú ert að hugsa um dr. Thomdyke, sé ég. Það
gæti ekki verið neitt þvílíkt, af því að lögregl-
an hefði séð það eins vel og ég.“
„Vissulega. Þetta var della úr mér.“
„Þetta er mjög skemmtileg tilgáta,“ sagði
Bobby, „og mér finnst ég vera mjög þýðingar-
mikil persóna, en ég tiúi samt ekki, að það sé
meira en tilgáta.“
„Ég er viss um að ég hefi á réttu að standa.“
Frankie stóð upp. „Ég verð að fara núna. Á ég
að líta inn til þín aftur á morgun?“
„Ó, gerðu það! Þvaðrið í hjúkrunarkonunum
er svo tilbreytingarlaust. En meðal annarra orða,
þú kemur fljótt frá London?“
„Góði minn, undir eins og ég heyrði um þig, þá
flýtti ég mér til baka. Það er ekki daglegt brauð
að vinum manns sé gefið inn eitur á svona
rómantískan hátt.“
„Ég veit elcki, hvort það er svo rómantiskt
að gleypa morfín," sagði Bobby og smjattaði á.
„Jæja, ég lít inn á morgun. Á ég kannske að
kyssa þig?“
a . Bobby Jones er að leika
* golf með Thomas lækni.
Bobby missir boltann niður í gjótu og þeg-
ar heinn fer að leita hans, finnur hann þar
dauðvona mann. Læknirinn fer að sækja
hjálp, en Bobby er kyrr hjá manninum.
Maðurinn segir aðeins þessa einu setningu:
„Hvers vegna báðu þau ekki Evans?“.
Síðan deyr hann. Bobby finnur mynd af
fallegri konu í vasa dauða mannsins, en
lætur hana aftur á sinn stað. Bobby hefir
áhyggjur út af því, að hann á að leika á
orgel við kvöldmessu hjá föður sínum, séra
Thomas Jones, klukkan sex. En ókunnur
maður kemur og býðst til að leysa hann af
hólmi og vera hjá líkinu þangað til læknir-
• inn kemur aftur. Bobby fer heim og lendir
honum í orðasennu við föður sinn. Eftir
þetta fer Bobby í ferðalag með járnbraut
og hittir þar æskuvinkonu sina lafði Franc-
es Derwent, sem segir honum, að það hafi
komið á daginn, hver dáni maðurinn er.
Bobby og Frankie tala saman um væntan-
leg réttarhöld. Frú Cayman segir hinn
dána, Alex Pritchard vera bróður sinn, sem
lítið hafi dvalizt á Englandi. Cayman og
kona hans þakka Bobby. Bobby vill fara í
bílafyrirtækið með Badger Beadon, en föð-
ur hans lízt ekki á það. Bobby hafði fengið
bréflega tilboð um atvinnu erlendis. Hann
verður á óskiljanlegan hátt fyrir morín-
eitrun og liggur nú á spítala.
Forsag
„Það er ekki smitandi," sagði Bobby hvetjandi.
„Þá ætla ég að fullkomna skyldu mína við
sjúklinginn.
Hún kyssti hann létt.
„Sé þig á morgun aftur.“
Hjúkrunarkonan kom inn með te handa Bobby,
og Frankie fór út um leið.
„Ég hefi oft séð myndir af henni í blöðunum.
Hún er samt ekkert lík þeim. Og ég hefi auðvit-
að líka oft séð hana aka i bílnum sínum, en ég
hefi aldrei komið svona nærri henni áður. Hún
er ekkert drambsöm, er það?“
„Ó, nei, nei!“ sagði Bobby. „Ég mundi aldrei
segja um Frankie að hún væri drambsöm."
„Ég sagði við systur, sagði ég, hún er svo
blátt áfram, ekkert tilgerðarleg. Ég sagði við
systur, hún er alveg eins og þú og ég, sagði ég.“
Bobby, sem var ákaflega ósamþykkur þessu
áliti, svaraði engu. Hjúkrunarkonan, sem varð
fyrir miklum vonbrigðum af áhugaleysi hans, fór
út úr herberginu.
Bobby var skilinn eftir í þönkum sínum.
Hann lauk við að drekka teið sitt. Svo fór hann
að brjóta heilann um, hvort eitthvað gæti verið
til í hinni furðulegu tilgátu Frankie, og að lok-
um var hann ákveðinn á móti henni.
Hann kom auga á vasana með liljunum. Það
var afskaplega fallega gert af Frankie að færa
honum öll þessi blóm, og þau voru auðvitað
yndisleg, en hann óskaði þess, að hún hefði heldur
fært honum nokkrar leynilögreglusögur. Hann
leit á borðið, sem var við hliðina á rúminu. Þar
var ýmislegt drasl, þar á meðal vikublaðið í
Marchbolt og John Halifax. Hann tók upp John
Halifax.
Éftir fimm mínútur lagði hann það frá sér.
Fyrir mann, sem var vanur bókum eins og Þriðji
blóöbletturinn, Myrti erkihertoginn og Ævintýri
Florentine Dagger, skorti John Halifax allt að-
dráttarafl.
Hann andvarpaði um leið og hann tók upp sið-
asta tölublað vikublaðsins í Marchbolt.
Nokkrum augnablikum síðar þrýsti hann á
bjölluna undir koddanum af svo miklum krafti,
að hjúkrunarkonan kom hlaupandi á harða
spretti.
„Hvað er að, herra Jones? Hefir yður versn-
að?“
„Hringið upp í kastalann," hrópaði Bobby.
„Segið við lafði Frances, að nún veröi að koma
hingað aftur undir eins.“
„Ó, herra Jones, þér getið ekki sent slik skila-
boð.“
„Get ég það ekki?“ sagði Bobby. „Ef ég mætti
rísa upp úr þessu bölvaða rúmi, þá munduð þér
fljótt sjá, hvort ég gæti það eða ekki. En þar
sem svona stendur á, þá verðið þér að gera það
fyrir mig.“
„En hún er varla komin heim.“
„Þér þekkið ekki þann græna."
„Hún mun heldur ekki hafa drukkið teið sitt.“
„Heyrið, stúlka góð,“ sagði Bobby, „það þýðir
ekkert að þræta við mig. Hringið eins og ég segi
yður að gera. Segið henni að hún verði að koma
strax, af þvi að ég þurfi að segja henni nokkuð,
sem er mjög mikilvægt.“
Hjúkrunarkonan fór gjörsigruð en samt treg.
Hún leyfði sér að breyta skilaboðum Bobbys
lítilsháttar.
Ef það væri ekki til neinna óþæginda fyrir
lafði Frances, þá vildi herra Jones gjarnan að
hún kæmi, þar sem hann þurfti að tala við
hana, en ef það gerði lafði Frances ónæði, þá
skyldi hún ekki leggja það á sig.
Lafði Frances svaraði stuttlega, að hún kæmi
undir eins.
„Þið getið verið sannfærðar um það,“ sagði
hjúkrunarkonan við starfssystur sínar, „hún er
ástfangin af honum og ekkert annað."
Frankie kom með miklum gusti.
„Hvað á þetta að þýða að gera boð eftir mér
svona í hvellinum."
Bobby sat uppi í rúminu og var með eldrauð-
an blett á báðum vöngum. Hann hélt á vikublað-
inu í Marchbolt.
„Sjáðu þetta, Frankie."
Frankie horfði.
„Nú?“ spurði hún.
„Þetta er myndin, sem þú áttir við, þegar þú
sagðir, að hún væri eins og þessi frú Cayman.“
Bobby benti með fingrinum á nokkuð ógreini-
lega prentaða mynd af ljósmynd. Undir henni
stóðu þessi orð: Myndin, sem fannst á dauöa
manninum, og með hennar hjálp var komist að
því, hver hann var. Frú Amelía Cayman, systir
hins látna.
„Eg sagði það, og það er satt. Eg sé enga
ástæðu til þess að vera að rugla út af þvi.“
„Ekki heldur ég.“
„En þú sagðir —.“
„Ég veit, hvað ég sagði. En sjáðu nú til
Frankie.“ — Bobby talaði með mjög mikilli
áherzlu. — „Þetta er ekki myndin, sem ég stakk
aftur í vasa dána mannsins ...“
Þau horfðu á hvort annað.
„Ef svo er,“ sagði Frankie hægt, „þá hljóta
annað hvort að hafa verið tvær Ijósmyndir —.“
„Sem er ekki líklegt —.“
„Eða —.“
Þau þögnuðu.
„Maðurinn — hvað hét hann-“ sagði Frankie.
, ,Bassington-ffrench! “ sagði Bobby.