Vikan - 01.02.1945, Page 12
12
VIKAN, nr. 5, 1945
hana. með öryg-gisnælu, og þegar hann sá blóðið
drjúpa úr litla sárinu, gat hann ekki þolað við
lengur; hann bar bamið inn til fátækrar, skozkr-
ar konu, sem var með fimm börn, sem hún átti
til þess að hugsa um, og bað hana um að hugsa
um dóttur sina, eftir því sem hún bezt gæti. Hún
hugsaði vel um litlu stúlkuna, en vanrækti um
leið algjörlega bömin sín, og kapteininn borgaði
henni vel fyrir það. Veðrið batnaði, og þau sigldu
in til Quebec yndislegan morgim í maí.
En þau bjuggu aðeins í eitt ár í Quebec. Húsið
í St. Louisgötu var kalt og dimmt og fullt af
minningum um óhugnanlega fortið. Kirkjuklukk-
ur hljómuðu alltaf í eyrum þeirra, og Filippus, sem
komst að því, að Aðalheiður fór stundum í leyni
til rómversk-kaþólskrar messu, fór að óttast, að
hún gjörðist kaþólsk. En eins og þau höfðu verið
nógu lengi í London til þess að láta mála af sér
myndina, þá vom þau nógu lengi í Quebec til
þess að eignast son. Gagnstætt Ágústu litlu þá
var hann hraustur og duglegur. Þau nefndu hann
Nikulás eftir frændanum, sem hafði arfleitt
Filipus að húsinu.
Með tvö böm í köldu og óþéttu húsi, með
Aðalheiði, sem var svo heilsulítil að þau vom
alltaf kvíðin, og með alitof marga Frakka í
Quebec, þá áleit Whiteoak kapteinn ráðlegast að
leita að einhverjum öðrum stað til frambúðar.
Whiteoak kapteinn átti vin, fyrrverandi brezk-
indverskan ofursta, sem hafði setzt að á hinum
frjósama stað við suðurenda Ontario. Héma,
skrifaði hann, em vetumir mjög mildir. Það
snjóar litið, og á hinum löngu, heitu summm
ræktum við mikið af komi og ávöxtum. Hér er-
um við að mynda nýlendu af ágætu fólki. Þú og
hin gáfaða eiginkona þín væmð hjartanlega vel-
komin hingað til okkar.
Húsið í Quebec var selt. Mahonihúsgögnin, mál-
verkin, bömin tvö og bamfóstran voru send á
þennan útvalda stað. Vinurinn Vaugham ofursti,
hýsti þau í næstum heilt ár, á meðan verið var að
reisa hús þeirra.
Filippus Whiteoak keypti þúsund ekmr af frjó-
sömu landi af stjómini, og yfir miðja landar-
eignina rann lítil á, sem var full af marglitum
urriðum. Hluti af jörðinni var ræktaður, en mest
var óræktað og ósnortið. Þama vom há og
ótrúlega þétt greni- og fumtré, ásamt eik og
álmi, þetta var hinn dásamlegasti staður fyrir
óteljandi söngfugla, skógardúfur, akurhænsni og
lynghænur, þarna var líka mikið af refum, kan-
ínum og broddgöltum. Og með fram ánni var
ilmandi kjarr, þar sem vatnarottur, þvottabirnir
og bláir hegrar héldu til.
Vinnuaflið var ódýrt. Hópur verkamanna var
fenginn til þess að búa til enskan lystigarð úr
skóginum, og til þess að reisa hús, sem átti að
bera af öllum öðmm í nágrenninu. Þegar því var
lokið, var það lika sómi héraðsins. Það var fer-
hymt, rautt múrsteinshús með stórum dyrum úr
steini, stórum kjallara, þar sem eldhúsið og
vinnufólksherbergin voru, á fyrstu hæð var
geysistór dagstofa, bókasafn, (það var nefnt svo,
þótt þar væri í rauninni ekki margar bækur),
borðstofa og svefnherbergi. Uppi vom sex stór
svefnherbergi, og á löngu, lágu háaloftinu voru
líka tvö svefnherbergi. Gluggakarmar og hurðir
vöm úr hnotutré. Ur fimm ömum lagði reyk-
in upp úr reykháfnum, sem stóð upp úr trjátopp-
unum.
Af rómantískri tilfinningarsemi nefndu Aðal-
heiður og Filippus staðinn Jalna, eftir bænum þar
sem þau höfðu fyrst kynnzt. Allir vom sammála
um, að það væri fallegt nafn, og Jalna væri hús,
sem alltaf væri mannmargt og skemmtilegt.
Andrúmsloftið þar var þmngið af vellíðan. í
þessu stóra vistlega húsi i miðjum trjágarðinum
með stóm akbrautinni og þúsund ekrum eins og
grænt teppi á allar hliðar, voru Whiteoakamir
eins hamingjusamir og mönnum er mögulegt að
vera. Þeim fannst þau vera algjörlega slitin frá
móðurlandinu, þó að þau sendu börn sín í skóla
í Englandi.
Á Jalna eignuðust þau tvo syni. Annar var
nefndur Emest, af því að Aðalheiður, rétt áður
en hann fæddist, hafði verið svo hrifin af sög-
unni um Emest Maltravers. Hinn var nefndur
Filippus eftir föðursínum, Nikulás, sáelzti, kvænt-
ist i Englandi, en eftir stutt og órólegt hjóna-
band, fór konan frá honum með ungum írskum
liðsforingja, og Nikulás fór aftur til Kanada og
sá hana aldrei meir. Emest kvæntist aldrei, en
eyddi öllum tímum í að kynna sér verk Shake-
speare. •
Hann hafði auk þess alltaf verið heldur heilsu-
lítill. Filippus, sá yngsti, kvæntist tvisvar. 1 fyrra
MAGGI
OG
RAGGI.
Teikning eftir
Wally Bishop.
Málarinn: Sæll, drengur minn, áttu heima
hérna ?
Raggi: Jam!
Málarinn: Ég sá engan heimamann, en taldi
víst, að ég mundi mega mála þessa fallegu hlöðu.
Raggi: Ég skal spyrja frænda minn að því. —
Raggi: Frændi segir, að það þurfi ekki að mála
hlöðuna, en honum þætti vænt um, ef þú vildir
gera svo vel að mála fyrir hann íbúðarhúsið og
fjósið!
skiptið dóttur skozk læknis, sem hafði sezt að
nálægt Jalna, og aðstoðað við fæðingu tilvon-
andi tengdasonar síns. Hún hafði eignast Möggu
og Renny. Önnur kona hans var hin fallega,
unga bamfóstra, sem hann hafði fengið til þess
að hugsa um böm sín, sem höfðu snemma orðið
móðurlaus. Með annari konu sinni, sem öll fjöl-
skyldan kom undarlega fram við, átti hann fjóra
syni. Eden, sem var þeirra elztur, var nú tuttugu
og þriggja ára, Pievs tuttugu, Finch sextán og
Wakefield litli níu ára.
Filippus hafði alltaf verið eftirlæti föður síns,
og þegar kapteinninn dó, arfleiddi hann yngsta
son sinn að Jalna og öllum ekrununum — þær
voru reyndar ekki lengur þúsund, því að hann
hafði neyðzt til að selja eitthvað af þeim til þess
að greiða brjálæðislegar skuldir Ernests og óhóf
Nikulásar. Þeir höfðu fengið sinn hluta — og
meira til, fjandinn hirði mig, bölvaði Whiteoak
kapteinn. ■
Hann hafði aldrei kært sig um einkadóttir
sína, Ágústu. Hann hafði, ef til vill, aldrei fyrir-
gefið henni hinn hræðilega tíma um borð á skip-
inu frá Englandi til Kanada. En þó að hann
hefði aldrei kært sig um hana, hafði hann heldur
aldei haft ástæður til að kvarta undan henni.
Hún hafði gifzt mjög ung — áhrifalausum ung-
um Englendingi, sem seinna hafði komið þeim öll-
um á óvart með því að erfa barónstitil vegna
óvænts dauða einhvers frænda.
Þó að faðir Ágústu hefði aldrei getað fyrir-
gefið henni hinn flókna útbúnað hennar á hinni
frægu ferð, þá átti móðir hennar enn þá erfið-
ara með að fyrirgefa henni, að hún varð hærri
aö tign í mannfélaginu en hún sjálf! Raunar
var Court-fjölskyldan miklu fínni en Buckley-
fjölskyldan; hún var hafin upp yfir nafnbæt-
urnar, og Sir Edwin var aðeins fjórði barónn; V
en það var samt hart að heyra Agústu ávarp-
aða „yðar náð“. Aðalheiður var mjög ánægð,
þegar Sir Edwin dó, og einhver frændi erfði
nafnbótina, þannig að minna bar á Ágústu eftir
það.
Allt þetta gerðist fyrir mörgum árum. White-
oak kapteinn var fyrir löngu dáinn. Filippus og
báðar konur hans voru dáin. Renny var húgbónd-
inn á Jalna, og Renny sjálfur var þrjátíu og átta
ára gamall.
Það var eins og tíminn stæði kyrr á Jalna.
Frændur Rennys, Nikulás og Ernest álitu hann
ekkert nema stóran skóladreng. Og gömlu frú
Whiteoak fannst synir sínir alltaf vera smástrák-
ar og Filippus heitinn, veslings, lítið, dáið vöggu-
bam.
Hún hafði setið við sama borðið í næstum sjö-
tíu ár. Við þetta sama borð hafði hún setið undir
Nikulási og matað hann. Nú sat hann við hlið
hennar, feitlaginn maður, sjötíu og tveggja ára
gamall. Við þetta sama borð hafði Ernest æpt
af hræðslu, þegar hann í fyrsta skipti heyrði
hvellinn í knalli. Nú sat hann við hina hlið henn-
ar, hvíthærður — en það var hún ekki sjálf.
Hún var farin að rugla dálítið. Hún sá syni sína
fremur sem smástráka en það, sem þeir voru
núna.
öteljandi sólargeislar höfðu skinið inn um
gluggana á Jalna og á Whiteoakfjölskylduna,
þegar þau sátu eins og í dag, þau borðuðu,
drukku mikið te, og allir töluðu í einu.
Hver einstakur fjölskyldumeðlimur sat á sín-
um ákveðna stað við borðið með þungu diskun-
um og fötunum og enska silfurborðbúnaðinum.
Wakefield átti lítinn hníf og gaffal og slitinn
silfurbikar, sem hafði gengið í arf frá bróður til
bróður, og oft hafði honum verið kastað í kæti
yfir í hinn enda stofunnar. Við annan borðend-
ann sat Renny, húsbóndinn, langur og mjór,
með þykkt dökkrautt hár, andlitið var mjó-
slegið og augun voru leiftrandi og brún; beint
á móti honum sat Magga, eina systir lians. Hún
var fjörutíu ára, en leit út fyrir að vera eldri
vegna þess að hún var dálítið feitlagin.