Vikan


Vikan - 01.11.1945, Síða 2

Vikan - 01.11.1945, Síða 2
2 VIKAN, nr. 44, 1945 Pósturinn Kæra Vika! Við undirritaðar óskum eftir að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 12—14 ára ein- hversstaðar á landinu. Með fyrirfram þökk. Jóhanna 1. Sigurjónsdóttir, Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði. Svava Hallgrímsdóttir, Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði. Kæra Vika. Viltu gjöra svo vel að koma mér í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 10—12 ára einhversstaðar á landinu. Með fyrirfram þökk. Hörður S. Jónsson, Fáskrúðsfirði. Kæra Vika! Viitu vera svo góð að gefa mér einhverjar upplýsingar um kvik- myndadísina Deanna Durbin. Beztu þakkir, Fía. Svar: Hið raunverulega nafn Deanna Durbin er Edna May og er hún fædd 4 desember 1922 í Winni- peg. Faðir hennar var ættaður frá . Manchester. Eldri systir Ednu litlu ^kostaði hana til söngnáms og hófst frægðarferill hennar með kvikmynd- «inni „Three smart girls“ 1936. 'Deanna Durbin er bláeygð og með brúnt hár; giftist hún Vaugham Paul kvikmyndastjóra 1941, en skildi við hann eftir skamman tíma. Meira getum við ekki sagt þér um í dísina. Kæra Vika! | Viltu vera svo góð, að koma okk- 'ur í bréfasamband við pilta og stúlk- ur á aldrinum 15—17 ára hvar sem er á landinu. Erla og Hrönn Armannsdætur Tindum og Sólveig Óskarsdóttir Framnesi. (Allar á Norðfirði). Vestmannaeyjar 29/9 ’45. Kæra Vika! Getur þú gefið mér ráð við spum- ingum mínum. 1. Eg er ákaflega óframfærin og roðna svo mjög þegar mér er strítt og þarf ekki stríðni með, hvað á ég að gera til að losna við þetta. 2. Hvað á ég að gera til að fá fallegt hár. Hárið á mér er svo aga- lega þunt og vex svo illa. 3. Hvernig líst þér á skriftina mína með fyrir fram þökk fyrir svarið. Mary. Svar: Eg kann engin ráð til að gefa þér. Þú hlýtur að vera ákaflega tilfinninganæm ung stúlka, ef þú þolir ekki meinlaust gaman án þess að roðna. En ég get sagt þér aðeins til að hugga þig, að piltunum finnast stúlkumar aldrei eins „sætar“ og þegar þær eru örlítið rjóðar í kinn- um, hvort sem það er af feimni eða öðru. 2. Eina ráðið til að öðlast fallegt hár er að hirða það vel, þvo það úr góðum hárþvottaefnum, bursta það daglega með stinnum bursta og helzt að særa brodda hársins sem oftast til að auka vöxt þess. Varast skal samt að þvo hárið of oft, helzt eigi nema á 10—12 daga fresti, því að það slítur hárinu og gerir það feitt með tímanum. Gott er einnig að ganga ekki alltaf með höfuðföt, heldur lofa loftinu að leika sem mest um hárið. 3. Hvað skriftinni viðvíkur, þá finnst mér þú gjarnan mega vanda þig meira, því að auðséð er, að þú hefir gerst löt, þegar fram í bréfið sótti. Annars er byrjunin bara góð. það er ekki leyfilegt að láta í ljósi álit sitt á því, hvernig fólk lítur á tilvemna, og hvort hún hefir ekki sérstakan ákveðinn tilgang. Ég er nefnilega ,,spennt“ fyrir að gmfla útí þess konar hluti. Ef það er leyfi- legt, má ég þá senda þér álit mitt á þessu efni, í þeim tilgangi að þú vildir vera svo góð, að segja mér álit þitt, á þeim hugmyndaskapnaði. Með mjög góðu fyrirfram þakk- læti. Þín Ihugul. Svar: Það sakar ekki að senda okkur þetta álit í stuttu máli og svo sjáum við til, hverju hægt er að svara. Svar til „Aðdáanda:“ Við treystum okkur ekki til að fara út á þá braut að gefa upplýsingar um, hvort til- teknir Islendingar eru trúlofaðir eða giftir, jafnvel þótt um fræga menn sé að ræða! öðru máli er að gegna um heimsfræga kvikmyndaleikara, því að þeir eru kapítuli útaf fyrir sig. Kæra Vika! Af því að ég, e. t. v„ er óeðlilega mikið gefin fyrir alvarlegar hugleið- ingar, þá langar mig að biðja þig að gjöra svo vel, að segja mér, hvort Kæra Vika! Viltu gera svo vel og koma mér i bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 14—16 ára einhvers staðar á landinu. Með fyrirfram þökk. Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Hafnamesi, Fáskrúðsfirði. NYKOMIÐ: Drengja- Barna- Kjólar Kápur Frakkar Föt Húfur Mikið úrval (f\eykja vik^ Otgefandi: V3KAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, BÍmi 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.