Vikan - 01.11.1945, Side 15
VIKAN, nr. 44, 1945
15
Fegurðarlyf í fögrum
umbúðum.
Framhald af bls. 10.
ýmsum vörumerkjum. Má það að
vísu einu gilda, því að helztu áhrif
slíkra kremtegunda eru ekki önnur
en þau, að þær mýkja og losa um
óhreinindi í húðinni, svo auðvellt er
að þurrka þau burtu.
Athuganir voru gerðar á bræðslu-
marki varalita (sem má helzt ekki
vera mikið hærra en líkamshitinn).
Einnig var athugað, hve auðvelt var
að ná litnum af með þurrum klút eða
með sápu og vatni, og hvort auðvelt
væri að ná því úr klútum með því
að sjóða þá í sápuvatni. Af þeim
fjórum tegundum sem prófaðar voru,
reyndist tegund B, sem kostaði tæpar
7 krónur únsan, jafn vel og tegund
C, sem kostaði tæpar 50 krónur úns-
an. Tegund D (frá snyrtistofu)
reyndist eins illa og tegund A, þó að
hún væri tíu sinnum dýrari.
Andlitsvötnin, sem prófuð voru,
reyndust vera nálega eingöngu
hreint vatn og vínandi. Áhrif þeirra
á hörundið eru hressandi, en aðeins
í svip — húðlæknar segja að sömu
hressandi áhrif megi fá með því að
dýfa andlitinu ofan í kalt vatn. 1
öllum fjórum tegundunum, sem
rannsakaðar voru, reyndist vera 23%
vínandi; efnasamsetning þeirra var
hin sama, en litur og ilmur breyti-
legt. Ekkert kom i ljós við efnagrein-
inguna, sem réttlætti verðmismun, en
ódýrasta tegundin kostaði 40 aura
únsan og sú dýrasta kr 1.70.
Flest fegurðarlyf eru búin til eftir
meira og minna algildum formúlum,
sem allir framleiðendur þekkja.
Margar stórar fegurðalyfjaverk-
smiðjur hafa ekki einu sinni efna-
fræðing í þjónustu sinni. ötrúlega
margir „framleiðendur" framleiða
ekki einu sinni vörur sínar sjálfir,
heldur fá þær tilbúnar frá efnaverk-
smiðju. Eg komst að því að ein slík
verksmiðja framleiddi ódýrt krem
með sérstöku vörumerki handa stóru
vöruhúsi, en setti jafnframt nákvæm-
lega samskonar krem í skrautlegar
umbúðir, fyrir þekkta snyrtistofu og
var það selt á 40 krónur krukkan!
En fegurðarlyf hafa einn eigin-
leika, sem engin efnagreining getur
sannprófað. Það má kalla hann von
eða trú. Það eykur á fegurð konu,
ef henni sjálfri finnst hún vera falleg.
Skrautlegar umbúðir og hátt verð
geta stuðlað að því að efla slíka til-
finningu.
Hvaða kona mundi finna uppörv-
un í því að fara inn í næstu búðar-
holu og fá þar afgreidd fegurðarlyf
eftir vigt, eins og tólg.
En skynsöm kona kaupir vonina
ekki of háu verð. Hún gerir sér ljóst,
að hin fögru fyrirheit auglýsinganna
eru ótrygg sem verðgrundvöllur. Hún
veit, að beztu vörurnar eru sjaldan í
íburðarmiklum skrautumbúðum, og
að með skynsamlegu vali muni henni
lánast að bæta um handarverk nátt-
úrunnar án allt of mikils tilkostnað-
ar.
Iðnþing íslendinga.
Framhald af bls. 3.
um og hafa einkum að því unnið
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavik,
Iðnráð Reykjavíkur og Landssam-
band i^naðarmanna. Landssambandið
hefir innt mikið starf af höndum í
þágu iðnaðarmála landsins.
Hlutverk iðnráðanna er m. a. að
vera iðnaðarmönnum til aðstoðar og
veita þeim ráð og úrskurði, þegar um
ágreinings- eða vandamál er að ræða.
Þau eiga og að vera til ráðuneytis um
iðnaðarmál ríkisstjórn, bæjarstjóm-
um og lögreglustjórum. Þau líta og
eftir, að lögum og reglugerðum sé
framfylgt, gera tillögur um próf-
nefndir, hafa eftirlit með aðbúð og
kennslu iðnnema o. s. frv. I hverju
iðnráði á sæti fulltrúi fyrir hverja
iðngrein, en þau kjósa sér fram-
kvæmdastjóm.
Iðnaðarfulltrúar voru fyrst skipað-
ir 1938. Hlutverk þeirra er að hafa
eftirlit með námssamningum og árita
þá.
Þinginu var slitið fimmtudaginn
25. okt., og voru öll mál, sem fyrir
því lágu, og að framan er getið, af-
greidd.
1 þinglok var kosin stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna og eiga nú
sæti i henni. Forseti Helgi Hermann
Eiríksson, skólastjóri, sem hefir verið
það frá upphafi; varaforseti Einar
Gíslason, málarameistari; gjaldkeri
Guðm. H. Guðmundsson, húsgagna-
smíðameistari; ritari Sveinbjöm Jóns-
son, forstjóri, og vararitari Guðjón
Magnússon, skósmíðameistari, Hafn-
arfirði. Skrifstofustjóri Landssam-
bandsins er, eins og áður, Guðm. H.
Þorláksson.
Stúlkan; Nú, þér lítið þá svona út!
Röddin hljómaði svo fallega í sínjan-
um, að ég hélt þér væruð allt öðru-
vísi!
Hin ótrúa eiginkona var látin. Við
jarðarförina vildi svo til, að eigin-
maðurinn fékk sæti við hlið keppi-
nautar síns, þegar likræðan var flutt.
Friðiliinn grét sáran og virtist
alveg miður sín af sorg. Ekkjumað-
urinn sneri sér að honum, klappaði
á öxl hans og sagði:
„Taktu þetta ekki svona nærri þér,
Jöi. Ég gifti mig aftur, vertu viss.“
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
w
væntanleg frá Bretlandi eftir áramótin.
Nauðsynlegt að leggja inn pantanir sem
allra fyrst.
Bíla- og málningarvöruverzlun
FRIÐKIK BERTELSEN
Hafnarhvoli. Símar 2872, 3564.
Frystihúsaeigendur!
Uigerdarmenn!
Útvegum Atlas hraðfrystivélar.
Smíðum nýtízku hraðfrystitæki, ásamt
vélknúðum fiskþvottavélum og færi-
höndum.
Leitið til vor um allar upplýsingar við-
víkjandi tækjum til hraðfrystihúsa.
Leitið tilboða hjá oss, ef þér hugsið til
að byggja frystihús eða stækka það hús,
sem þér eigið fyrir.
H.f. HAMAR
■ : j
il 1111111111111111111111111 i 111111111.................11111111 ■ 11111111111 i 111111111111111111111111111111111111111111‘ -*