Vikan


Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 7

Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 7
VIKAN, nr. 16, 1946 7 SÆSKRÍMSLIÐ Finnbog-i, kunningi minn, og ég áttum leið með fram ströndinni við Eyrartún. Við vorum staddir á bæ einum, Sæbóli, svo sem þriggja kortéra gang frá kauptúninu. Þetta var á einu vetrarkvöldi. Var nokkuð á mörkum með frost. Tunglið óð í skýjum. Við áttum leið eftir fjörunni. Klettar með sundum á milli voru út frá ströndinni alla leiðina. — Svo lögðum við af stað. Það var hálf drauga- legt umhorfs — allir þessir svörtu klettar úti við sundin. — En við land voru hvítar snjó og is- breiður, en þó auð jörð sumstaðar á milli. — Við héldum ferðinni áfram hægt og sígandi. Það var heldur seinfarið vegna íshröngla og snjó. Finnbogi, félagi minn, var maður heldur fátalaður,- Nú gekk hann hægt og drumbslega og horfði myrkum, þungbúnum augum út yfir sund og svarta kletta og muldraði í hálfum hljóðum stef gamalla vísna um auðnir og ís og skuggabaldra myrkranna. Stundum hvarf tunglið á bak við skýjakafið og þá var æði draugalegt að sjá klettadrangana úti á sjónum, sem og þústir ýmis- konar uppi úr snjónum á landi og voru það steinar og aðrar myndanir, sem gnæfðu þar upp. —• Allt í einu stöðvaði Finnbogi mig og benti á eitthvað kolsvart úti á klettasnös við sjóinn, eitthvaö skrítið, sem gnæfði þama upp. Hvað var það? Ég gerði ráð fyrir að þetta væri ein- ungis klettur eða drangi, sem mændi þarna upp. Það var þó hreint ekki ólíkt einhvers- konar veru — eins og með hettu yfir höfði. Gat það átt sér stað( að þarna væri einhver skepna á ferðiími, lifandi eða dauð, — draugur, ofurseldur ríki skugganna, — eða maður, gæddur lífsins hamrandi hjartaslagi. — En nú kom tungl- ið út úr skýjunum. — Og sjá! — Eg hafði þá rétt fyrir mér, í þeirri ætlun minni að þetta væri einungis klettadrangi. Það sýndi sig sem sé þegar tunglið glampaði á hann. Það var þá bara traust- ur, gamall klettur, eins og þeir tíðkuðust svo margir þarna. — Ég sá að Finnboga létti greini- lega. Það hafði sýnilega gripið hann sem snöggv- ast einhver óhugnaðartilfinning. Og ég hafði jafn- vel smitast af þessari tilfinningu. — Maður er .svo næmur fyrir á dimmum vetrarkvöldum, við is og hjarn og svarta kletta. — Við héldum áfram ferðinni. — Ja, þetta var nú að vísu missýning, jánkaði Finnbogi, þegar ég eins og brosti — ögrandi, yfir því að þetta hefði ekki verið neitt! „Þetta var nú svo sem ekkert að hræðast", sagði ég og hló, vist heldur háðslega. —- Er. ekki náði ég svo mikið sem votti að brosi frá Finnboga, enda þótt tilgangur minn hefði verið sá að fá hann til að hlæja með. — Hann þrammaði þarna einungis áfram myrkur á svip og muidraði eitthvað á milli tannanna í öm- uriegum kuldatón. — Ferðinni var enn haldið áfram, jafnt og þétt þrömmuðum við þarna áfram i fjörunni. — En þá snarstoppaði Finnbogi allt í einu, honum var auðsjáanlega mikið niðri fyrir, og hann hreytti út úr sér, og það bara alveg formálslaust um leið og hann benti ákafur út á tanga einn all- langt í burtu. Þarna er þá sæskrímsli! —• Það hummaði svona hálfgert í mér við ^essi tíðindi, sem komu mér alveg óvænt, og ég snar- stoppaöi lika. — Ég sé Finnboga grina út í myrlcrið óttafullan, en þó áfergjulega, rétt eins og augun ætluðu út úr höfðinu á lionum. — Nú, en hvað var þetta þá eiginlcga? Ég sá eitthvað grátt þarna úti í myrkrinu, eitthvað í dýrsmynd. Nú, en var þetta þá ekki bara missýning, eins og áður? Nei, varla, til þess sást þó of greinilega að þetta var cinhvcr skepna, og hún hreyfði sig ofurlítið, því varð ekki neitað. Ég vil nú helst ekki vera hjátrúarfullur. En get ég afneitað vitn- SMÁSAGA eftir ÁRNA ÖLAFSSON. isburði minna eigin skynfæra? Við hlið mér stóð Finnbogi og glápti ennþá eins og bergnuminn á skepnuna. Það var áreiðanlegt að hann fann til óhugnaðar og einhvemveginn læddist sá óhugn- aður einnig inn i mig. „Það er sæskrímslið, það er það,“ tautaði Finnbogi með skelkaðri röddu. — Hálfrökkur hafði verið á, því að tunglið huldi sig á bak við ský. En nú kom það aiit i einu fram úr skýjunum í öliu sinu veldi og skein á sæskrímsliö. — Og hvílk sjón! — Það er bezt að ég láti Finnboga hafa fyrir því að lýsa því, enda gerði hann það rækilega. (Ég sá það nú reyndar heldur ekki eins greinilega og hann). En þessi var lýsing hans: — Sæskrímslið er hesti hærra og siifurgrátt að lit. Augu þess hafa blóðsins rauða lit. Það hefir gríðar sverieik og hárvöxt mikinn. Á kviðn- um ber það — eins og glöggt má sjá — og Finn- bogi benti í áttina til skepnunnar — já, á kviðn- um, endurtók hann, — endilöngum, ber það röð af spenum — kvendýrið — sjáðu — og hann kinkaði spakmannlega kolli framan í mig. Svo benti hann aftur -— það hefir ægilegar klumps- legar tennur. — Ég gríndi á skepnuna af öllum mætti sjónar minnar og mér sýndist ég virki- lega sjá röð af klumpslegum tönnum, ógurlegum að stærð. — Og að síðustu glumdu svo í eyrum mér lokaorðin í lýsingu Finnboga — þetta er ægileg skepna og ógurleg! — Og svo þagnaði Finnbogi og starði aðeins þarna fram á við til dýrsins. Og ég fann mig heldur ekki til þess knúinn að segja aukatekið orð eftir þessa mögnuðu lýsingu Finnboga. Þvi að mér var satt að segja ekki orðið almennilega um sel sjálfum. Ég starði og starði á skepnuna, eins og ég ætlaði að glápa úr mér augun, en samt gat ég ekki betur séð en að lýsing Finnboga passaði að flestu leyti. Einna einkennilegast virt- ist mér það, hvað kviðurinn á skepnunni var síð- ur, svona eins og á kú og með öllu þessu áföstu, sem virtist, eða var, röð af spenum. En þó var skepnan var há eins og hæstu hestar eða hærri, — hærri, fullyrti Finnbogi! — Þetta hafði nú allt verið áhrifamikil sjón hingað til, en þó áttu áhrifín eftir að vaxa. Því að nú gaf skepnan frá sér hljóð — virkilega und- ariegt hljóð og ólíkt því sem gerist um skepnur úr mennskum heimi, og því óviðkunnanlegt og óhugnanlegt í hæsta máta, og þetta hljóð líktist einskonar samblandi af fuglsgaggi og bjölluhring- ingu. — Varö ekki annað álitið en að svo ótút- legt hljóð, úr barka svo ókindarlegrar skepnu, bæri sannanlegan vott þess, að hún væri frá ann- arlegri veröld og tengd' myrkranna makt! Og sjálfsagt hafa þessar eða líkar hugleiðingar orðið þess valdandi, að nú var félaga mínum, Finnboga, nóg boðið og hann tók til fótanna. Einnig mér var nóg boðið, en vildi þó ekki flýja alveg af hólmi, hljóp þó á eftir Finnboga, en einungis til þess að grípa í hann og stöðva hann. — Og svo stóðum við báðir kyrrir um stund og ég vil ekki neita því að okkur þótti báðum nóg um. Ég sjálfur raunhyggjumaðurinn var fylltur óhugnaði. Við stóðum þarna eins og á nál- um. En einhver breyting varð að verða, það fann ég vel. Þetta gat ekki svo til gengið áfram! — Og til allrar hamingju kom breyting. — Eitthvað í huga mér, eitthvað það, sem eftir var af raunhyggjumanninum i mér, vildi ekki eim almennilega trúa þessari sýn. Og ég leitaði að úrræðum í huga mér til þess að sleppa við hana, en þó án þess að finna nokkurt. — En í því hugarvili og vandræðum, sem af þessu leiddu, kom þó allt i einu linun nokkur. — Ég heyrði, sem sé, eða þóttist heyra.hljóð, sem var mér gamalkunnugt. — Við fáum seinna að heyra hvaða hljóð það var. — Og varð ég nú hughraust- ari og tók að smáfeta mig í áttina til sæskrímslis- ins. — Ég vildi þó — Fjárinn hafi það! — vita vissu mína um það, hvort að þetta væri nú virki- lega það, sem það sýndist vera -- sæskrímsli eða ekki ? — Ég varð að hálftoga félaga minn, Finn- boga, með mér, því að hann var eins og skiljan- Framh. á bls. 14. Barnið fannst — en faðirinn ekki. Ung, harmilostin móðir, sem þekkir lík og föt tíu mánaða dóttur sinnar, er týndist og fannst aftur í skurði. En faðir barnsins, sem hvarf éinnig, kom ekki fram. Myndin er frá Ame- ríku.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.